Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2000. Útgáfa 125b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði]1)
1989 nr. 92 1. júní
1)L. 15/1998, 36. gr.
[1. gr.]1) Sýslumenn fara, hver í sínu umdæmi, með stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Þar á meðal fara þeir með lögreglustjórn, tollstjórn og innheimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún er ekki falin öðrum, sbr. þó [3. gr.] 1)
1)L. 15/1998, 36. gr.
[2. gr.]1) Landið skiptist í [25] 2) stjórnsýsluumdæmi auk Reykjavíkurumdæmis, sem nær yfir Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ … 2) og Kjósarhrepp. Aðsetur sýslumanna eru sem hér segir: 1. Reykjavík, 2. Akranes, 3. Borgarnes, 4. Stykkishólmur, 5. Búðardalur, 6. Patreksfjörður, 7. Bolungarvík, 8. Ísafjörður, 9. Hólmavík, 10. Blönduós, 11. Sauðárkrókur, 12. Siglufjörður, 13. Ólafsfjörður, 14. Akureyri, 15. Húsavík, 16. Seyðisfjörður, 17. … 2) 18. Eskifjörður, 19. Höfn í Hornafirði, 20. Vík í Mýrdal, 21. Hvolsvöllur, 22. Vestmannaeyjar, 23. Selfoss, 24. Keflavík, 25. Keflavíkurflugvöllur, 26. Hafnarfjörður, 27. Kópavogur. Umdæmi sýslumanna skv. 2.–27. tölul. skulu ákveðin með reglugerð 3) að fenginni umsögn viðkomandi sýslumanna og sveitarstjórna.
Eigi má fækka stjórnsýsluumdæmum eða taka upp ný nema með lögum.
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 95/1999, 1. gr. 3)Rg. 57/1992, sbr. 500/1996 og 74/1998.
[3. gr.]1) Með þau verkefni, sem sýslumönnum eru falin í öðrum umdæmum, fara lögreglustjórinn í Reykjavík, tollstjórinn í Reykjavík og sýslumaðurinn í Reykjavík sem hér segir:
1. Lögreglustjórinn í Reykjavík fer með lögreglustjórn, þar á meðal útlendingaeftirlit, ásamt þeim störfum sem honum eða lögreglustjórum eru almennt falin með fyrirmælum einstakra laga.
2. Tollstjórinn í Reykjavík fer með tollstjórn, innheimtu tekna ríkissjóðs, að því leyti sem hún er ekki sérstaklega falin öðrum, og lögskráningu skipshafna, auk starfa samkvæmt fyrirmælum einstakra laga.
3. Með önnur störf en þau, sem falla innan marka 1. og 2. tölul., fer sýslumaðurinn í Reykjavík.
Dómsmálaráðherra sker að öðru leyti úr um hvaða verkefni heyri undir einstök embætti skv. 1. mgr.
1)L. 15/1998, 36. gr.
[4. gr.]1) Sýslumaður skal hafa skrifstofur í umdæmi sínu eftir því sem dómsmálaráðherra kveður á um hverju sinni og fé er veitt til á fjárlögum. 2)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)Rg. 57/1992.
[5. gr.]1) [Ráðherra skipar sýslumenn til fimm ára í senn.] 2) Málefni sýslumanna eiga undir dómsmálaráðherra.
Engan má skipa sýslumann, nema hann fullnægi [almennum skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara, öðrum en um lágmarksaldur]. 1)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 83/1997, 27. gr.
[6. gr.]1) Sýslumenn hafa yfirumsjón og ábyrgð á rekstri embætta sinna.
Dómsmálaráðherra getur að tillögu sýslumanns kveðið á um skiptingu sýslumannsembættis í starfsdeildir eftir verkefnum. Heimilt er að [ráða] 2) sérstaka deildarstjóra sem veita viðkomandi starfsdeildum forstöðu á ábyrgð sýslumanns. Ef starfsdeildir við sýslumannsembætti eru fleiri en ein skal einn deildarstjóra teljast staðgengill sýslumanns, enda fullnægi hann hæfisskilyrðum til skipunar í sýslumannsembætti.
Við sýslumannsembætti skal auk sýslumanns vera það starfslið sem [sýslumaður] 2) telur þörf á. Um hæfisskilyrði löglærðra fulltrúa sýslumanns gilda [sömu reglur og um sýslumenn að öðru leyti en um starfsreynslu]. 1)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 83/1997, 28. gr.
… 1)
1)L. 15/1998, 36. gr.
[7. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1992.
… 2)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 92/1991, 103. gr.
… 1)
1)L. 91/1991, 161. gr. og l. 15/1998, 36. gr.