Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o.fl.1)
1954 nr. 106 17. desember
1)Rg. 284/1999. Rg. 471/1999.
1. gr. Nú leggja lög tiltekinn flokk mála til eins og sama ráðherra og skal það ekki vera því til fyrirstöðu, að við skiptingu starfa með ráðherrum sé ráðherra þeim, sem falin er framkvæmd varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna, er löggiltur var með lögum nr. 110 1951, fengin meðferð slíks málaflokks í lögsagnarumdæmi Keflavíkurflugvallar og á öðrum landssvæðum, er varnarliðinu eru fengin til afnota á hverjum tíma. Slík heimild gildir um dómsmál, að því er varðar brot, sem framin eru á varnarsvæðunum.