Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu
1974 nr. 36 2. maí
1. gr. Tilgangur laga þessara er að stuðla að verndun Mývatns- og Laxársvæðisins í Suður-Þingeyjarsýslu.
2. gr. Ákvæði laganna taka til Skútustaðahrepps og Laxár með hólmum og kvíslum allt að ósi árinnar við Skjálfanda, ásamt 200 metra breiðum bakka meðfram Laxá báðum megin.
3. gr. Á landssvæði því, er um getur í 2. gr., er hvers konar mannvirkjagerð og jarðrask óheimilt, nema leyfi [Náttúruverndar ríkisins] 1) komi til.
Breytingar á hæð vatnsborðs stöðuvatna og rennsli straumvatna eru einnig óheimilar nema til verndunar og ræktunar þeirra, enda komi til sérstakt leyfi [Náttúruverndar ríkisins]. 1)
Heimilar skulu þó framkvæmdir, sem nauðsynlegar og eðlilegar teljast til búskapar á lögbýlum, nema spjöllum valdi á náttúruverðmætum að dómi [Náttúruverndar ríkisins]. 1)
[Þá eru heimilar án sérstaks leyfis Náttúruverndar ríkisins byggingar samkvæmt staðfestu skipulagi, enda hafi stofnunin fallist á skipulagsáætlun þá sem um er að ræða.] 1)
1)L. 93/1996, 41. gr.
4. gr. Reisa skal og reka náttúrurannsóknastöð við Mývatn. [Umhverfisráðherra skipar stjórn stöðvarinnar samkvæmt tilnefningum Náttúrufræðistofnunar Íslands, raunvísindadeildar Háskóla Íslands, hreppsnefndar Skútustaðahrepps, Landeigendafélags Laxár og Mývatns og Náttúruverndar ríkisins og skal fulltrúi hennar vera formaður stjórnar.] 1)
Stjórn stöðvarinnar sér um framkvæmdir og rekstur. Hún er stjórnvöldum til ráðuneytis um allt það, er lýtur að framkvæmd laga þessara. Í reglugerð, 2) er [umhverfisráðherra setur, að fengnum tillögum stjórnar náttúrurannsóknastöðvarinnar], 1) skal nánar kveðið á um starfshætti stjórnarinnar og starfsemi stöðvarinnar, m.a. um samstarf við heimamenn og aðstöðu til námskeiðahalds fyrir háskólanema í náttúrufræðum.
1)L. 93/1996, 41. gr. 2)Rg. 136/1978, sbr. 522/2000.
5. gr. [Umhverfisráðherra setur, að fengnum tillögum Hollustuverndar ríkisins og Náttúruverndar ríkisins], 1) reglugerð 2) um varnir gegn hvers konar mengun svæðis þess, er lögin taka til, og skal þar m.a. kveðið á um sérstakar mengunarvarnir Kísiliðjunnar við Mývatn. Í reglugerðinni skal enn fremur kveðið á um verndun lífríkis á svæðinu og skynsamlega nýtingu þess, svo sem um takmörkun á aðgangi ferðamanna að tilteknum stöðum á svæðinu.
1)L. 93/1996, 41. gr. 2)Rg. 136/1978, sbr. 522/2000.
6. gr. [Náttúruvernd ríkisins] 1) getur, að fengnum tillögum stjórnar rannsóknastöðvarinnar ráðið starfsmann til eftirlits með framkvæmd laga þessara og reglugerða, er settar verða samkvæmt þeim.
1)L. 93/1996, 41. gr.
7. gr. Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum.
8. gr. Brot gegn lögum þessum og reglugerðum, er settar eru samkvæmt þeim, varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum]. 1) Sektir renni í ríkissjóð.
Beita má dagsektum, er renna í ríkissjóð, allt að [10.000 krónum], 2) til að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum, sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum, eða láta af atferli, sem er ólögmætt.
1)L. 82/1998, 165. gr. 2)L. 116/1990, 37. gr.
9. gr. Að öðru leyti fer um verndun Laxár- og Mývatnssvæðisins eftir reglum í lögum um náttúruvernd.