Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um talnagetraunir
1986 nr. 26 2. maí
1. gr. Dómsmálaráðherra er heimilt að veita Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ) leyfi til þess að starfrækja saman, í nafni félags sem samtök þessi munu stofna, getraunir er fram fara með þeim hætti að á þar til gerða miða er skráð eða valin röð talna og eða bókstafa.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimild þessi gildir til ársloka 2005.
2. gr. Félagi því, sem starfrækir getraunir samkvæmt 1. gr., skal stjórnað af fimm manna stjórn er skipuð skal til eins árs í senn. Skipar Íþróttasamband Íslands tvo, Öryrkjabandalag Íslands tvo og Ungmennafélag Íslands einn. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Aðilar skipa formann til skiptis, tvö ár í senn, samkvæmt samkomulagi aðila, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.
![](/lagas/hk.jpg)
Að öðru leyti gera aðilar með sér samkomulag, sem dómsmálaráðherra staðfestir, um rekstur félagsins, þar á meðal um ábyrgð á rekstri þess og skiptingu ágóða.
3. gr. Gjald fyrir þátttöku í getraununum (miðaverð) ákveður dómsmálaráðherra að fengnum tillögum frá stjórn félagsins.
4. gr. Dómsmálaráðherra ákveður, að fengnum tillögum frá stjórn félagsins, fjárhæð vinninga, annaðhvort sem hlutfall af heildarsöluverði miða hverju sinni, sem varið skal til vinninga, eða fjárhæð einstakra vinninga.
![](/lagas/hk.jpg)
Vinningar getrauna eru undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, öðrum en eignarskatti, á því ári sem þeir falla.
5. gr. Ágóða af getraunastarfseminni skal varið til eflingar íþróttum á vegum áhugamanna um íþróttir í landinu í félögum innan Íþróttasambands Íslands og Ungmennafélags Íslands og til að greiða stofnkostnað við íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja á vegum Öryrkjabandalags Íslands eða til að standa undir annarri starfsemi bandalagsins í þágu öryrkja.
6. gr. Dómsmálaráðherra setur í reglugerð
1) nánari ákvæði um getraunastarfsemina, að fengnum tillögum stjórnar félagsins, og hefur að öðru leyti eftirlit með starfsemi þess.
1)Rg. 516/1995, sbr. 634/1995; rg. 892/1999, sbr. 133/2000 og 126/2001.
7. gr. Óheimilt er öðrum en framangreindu félagi Íþróttasambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og Öryrkjabandalags Íslands að starfrækja getraunir með þeim hætti sem um ræðir í 1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
…
8. gr. Brot á lögum þessum varða sektum.
9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.