Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins
1990 nr. 73 18. maí
1. gr. Íslenska ríkið er eigandi allra auðlinda á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga og svo langt til hafs sem fullveldisréttur Íslands nær samkvæmt lögum, alþjóðasamningum eða samningum við einstök ríki.
![](/lagas/hk.jpg)
Hugtakið auðlind samkvæmt lögum þessum tekur til allra ólífrænna og lífrænna auðlinda hafsbotnsins annarra en lifandi vera.
![](/lagas/hk.jpg)
[Hugtakið netlög merkir í lögum þessum sjávarbotn 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði landareignar.]
1)
1)L. 101/2000, 1. gr.
2. gr. Enginn má leita að efnum til hagnýtingar á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga, sbr. 1. gr., nema að fengnu skriflegu leyfi iðnaðarráðherra.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra er heimilt að veita leyfishafa fyrirheit um forgang að leyfi skv. 3. gr. í allt að tvö ár eftir að gildistíma leyfis til leitar er lokið og um að öðrum aðila verði ekki veitt leyfi til leitar á þeim tíma.]
1)
1)L. 101/2000, 2. gr.
3. gr. Óheimilt er að taka eða nýta efni af hafsbotni eða úr honum, sbr. 1. gr., nema að fengnu skriflegu leyfi iðnaðarráðherra.
![](/lagas/hk.jpg)
[Iðnaðarráðherra er heimilt að ákvarða eða semja um endurgjald (leigu) fyrir töku eða nýtingu sem hann heimilar skv. 1. mgr. Tekjum af leyfum skal að jafnaði varið til hafsbotns- og landgrunnsrannsókna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.]
1)
1)L. 101/2000, 3. gr.
4. gr. Leyfi til hagnýtingar efna á, í eða undir hafsbotni skal bundið við ákveðið svæði og gilda til ákveðins tíma sem ekki má vera lengri en 30 ár. Í leyfisbréfi skal m.a. ætíð greina hverjar ráðstafanir leyfishafi skuli gera til að forðast mengun og spillingu á lífríki láðs og lagar.
![](/lagas/hk.jpg)
[Við veitingu leyfa samkvæmt lögum þessum skal gætt ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum.]
1)
1)L. 101/2000, 4. gr.
5. gr. Með reglugerð skal iðnaðarráðherra setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal nánari ákvæði um þau leyfi sem um ræðir í 3. og 4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Í reglugerð skal tilgreina helstu ákvæði sem fram skulu koma í leyfunum, m.a. um tímalengd leyfis, staðarmörk vinnslusvæða, gerð efnis, magn og nýtingarhraða ef um nýtingarleyfi er að ræða, upplýsingaskyldu og skil gagna, öryggis- og umhverfisráðstafanir, eftirlit og greiðslu kostnaðar af eftirliti og leyfisgjald.
![](/lagas/hk.jpg)
Í reglugerð skal einnig kveðið á um þau atriði sem umsækjandi skal tiltaka í umsókn um leitar- og rannsóknarleyfi skv. 2. gr. og í umsókn um vinnsluleyfi skv. 3. gr.]
1)
1)L. 101/2000, 5. gr.
6. gr. Brot á lögum þessum og reglugerðum, settum samkvæmt þeim, varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum],
1) enda liggi ekki við þyngri refsingar samkvæmt öðrum lögum.
1)L. 82/1998, 197. gr.
7. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
I. Þeir, sem við gildistöku laganna taka efni af eða úr hafsbotni, skulu innan sex mánaða sækja um leyfi skv. 4. gr.
[II. Þeir sem hafa leyfi til leitar og hagnýtingar efna á, í eða undir hafsbotni skulu halda þeim í fimm ár frá gildistöku laga þessara.]
1)
1)L. 101/2000, 6. gr.