Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum
1999 nr. 90 30. nóvember
I. kafli. Gildissvið og skilgreiningar.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
1. Greiðslukerfi: Formlegt fyrirkomulag þriggja eða fleiri þátttakenda sem byggist á sameiginlegum reglum og stöðluðu fyrirkomulagi við framkvæmd greiðslufyrirmæla milli þeirra, enda hafi a.m.k. einn þátttakendanna aðalskrifstofu sína hér á landi, og greiðslukerfið fullnægir þeim kröfum sem gerðar eru og það hefur verið tilkynnt til eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sbr. 3. gr.
2. Stofnun:
a. Viðskiptabanki eða sparisjóður sem hlotið hefur starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði.
b. Fyrirtæki sem hlotið hefur starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði.
c. Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu samkvæmt lögum nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti.
d. Deild eða deildir í stofnun, sbr. a–c-lið hér að framan, sem ekki teljast sérstakar persónur að lögum en tilheyra eftirlitsskyldri erlendri stofnun sem hefur starfsleyfi og útibú hér á landi.
e. Seðlabanki Íslands eða stofnun með ríkisábyrgð sem heimild hefur til að stunda að hluta eða öllu leyti starfsemi sem fellur undir a–c-lið.
3. Milligönguaðili: Aðili sem hefur milligöngu fyrir stofnun í greiðslukerfi og hefur einkarétt á miðlun greiðslufyrirmæla viðkomandi stofnunar.
4. Uppgjörsaðili: Aðili sem stofnar og sér um uppgjörsreikninga fyrir stofnanir og milligönguaðila og sér um framkvæmd á greiðslufyrirmælum þeirra og veitir þeim eftir atvikum lán í þessu skyni.
5. Greiðslujöfnun: Að umbreyta í eina kröfu eða skuldbindingu mörgum kröfum eða skuldbindingum sem eiga rót að rekja til greiðslufyrirmæla sem þátttakendur hafa annaðhvort gefið eða eiga að taka við frá einum eða fleiri þátttakendum svo að aðeins ein (nettó) krafa eða skuldbinding myndast um greiðslu eða greiðsluskyldu þátttakanda.
6. Uppgjörsreikningur: Reikningur í seðlabanka, hjá milligöngu- eða uppgjörsaðila sem er notaður til að varðveita innstæður og verðbréf til uppgjörs á greiðslum milli þátttakenda í greiðslukerfi.
7. Greiðslufyrirmæli: Sérhver fyrirmæli þátttakanda um að móttakanda sem þar er vísað til séu afhentir fjármunir með því að leggja með reikningsfærslu tiltekna fjárhæð inn á reikning stofnunar, seðlabanka eða uppgjörsaðila, eða sérhver fyrirmæli sem skuldbinda hann eða leysa hann undan skyldu til að inna af hendi greiðslu eins og hún er nánar skilgreind í reglum greiðslukerfisins, eða fyrirmæli þátttakanda um að framselja bein eða óbein eignarréttindi í verðbréfum með rafrænni eignarskráningu, eða önnur sambærileg fyrirmæli.
8. Greiðslujöfnunarstöð: Aðili sem vinnur úr greiðslufyrirmælum sem berast frá stofnunum og annast greiðslujöfnun þeirra á milli, einnig milligöngu- og uppgjörsaðili, ef það á við.
9. Þátttakandi: Stofnun, milligönguaðili, greiðslujöfnunarstöð eða uppgjörsaðili.
10. Óbeinn þátttakandi: Lánastofnun sem fellur undir a- eða b-lið 2. tölul. um skilgreiningu á stofnun og sem gert hefur samning við stofnun sem á aðild að greiðslukerfi og sem gerir lánastofnuninni fært að senda greiðslufyrirmæli í gegnum greiðslukerfið.
11. Veðtryggingar: Allar seljanlegar eignir, þ.m.t. peningainnstæður, verðbréf og samningar um endurhverf viðskipti eða aðrir sambærilegir samningar sem gerðir eru eða lagðir fram til tryggingar í greiðslukerfi eða í seðlabönkum.
12. Seðlabanki: Seðlabanki í aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu eða Seðlabanki Evrópu.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
II. kafli. Greiðslujöfnun og greiðslufyrirmæli.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
III. kafli. Ákvæði er varða gjaldþrotaskipti.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
IV. kafli. Vernd veðréttinda gegn gjaldþrotaskiptum á búi veðþola.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
V. kafli. Upplýsingagjöf vegna þátttöku í greiðslukerfi o.fl.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
VI. kafli. Gildistaka o.fl.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)