Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Happdrætti Háskóla Íslands
1973 nr. 13 13. apríl
![](/lagas/sk.jpg)
a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr 60.000, er skiptist í 12 flokka á ári hverju, og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, dráttur 1. flokks í janúarmánuði og 12. flokks í desembermánuði. Heimilt er að gefa út 4 flokka hlutamiða, sem greinist að með bókstöfunum E, F, G og H, en auk þess er heimilt að gefa út sérstakan flokk, B-flokk, sem hafa skal fimmfalt gildi á við hvern hinna flokkanna, bæði að því er varðar endurnýjunariðgjald og fjárhæð vinninga.] 1)
b. Iðgjald fyrir hvern hlut ákveður dómsmálaráðherra að fengnum tillögum happdrættisráðs og happdrættisstjórnar Háskólans.
c. Vinningar skulu eigi vera færri en svo, að að minnsta kosti fjórði hver miði hljóti vinning árlega að meðaltali, og skal vinningsfjárhæð nema að minnsta kosti 70% af iðgjöldum samantöldum í öllum 12 flokkum.
d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem dómsmálaráðherra skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.] 2)
e. [Einkaleyfi til að reka happdrættið má veita til 1. janúar 2004.] 3) Ágóðanum skal varið til að reisa byggingar á vegum Háskóla Íslands. Enn fremur er heimilt að verja honum til greiðslu kostnaðar af viðhaldi háskólabygginganna, til fegrunar á háskólalóðinni, til þess að koma á fót og efla rannsóknarstofur við hinar ýmsu deildir Háskólans, svo og til að greiða andvirði rannsóknar- og kennslutækja, sem Háskólinn telur sér nauðsyn að eignast. Leyfishafi greiði í ríkissjóð 20% af nettóársarði í einkaleyfisgjald.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 96/1974, 1. gr. 2)L. 55/1976, 1. gr. 3)L. 23/1986, 1. gr. 4)L. 77/1994, 1. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
1) 638/1995, 654/1995, 625/1996, 705/1997, 688/1998, 790/2000 og 907/2000. Rg. 410/1991, sbr. 22/1992, 139/1992, 193/1992, 406/1992, 496/1993 og 595/1994. Rg. 455/1993, sbr. 529/2001.
![](/lagas/sk.jpg)
1)L. 82/1998, 163. gr.