Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
1993 nr. 29 13. apríl
I. kafli. Almenn ákvæði og gjaldskylda.
1. gr. Greiða skal í ríkissjóð vörugjald af ökutækjum sem skráningarskyld eru samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, o.fl., svo sem nánar greinir í lögum þessum, sbr. 87. kafla viðauka I við tollalög, nr. 55/1987, og eldsneyti, sbr. 27. kafla viðauka I við tollalög, nr. 55/1987, eftir því sem segir í lögum þessum.
Gjaldskylda.
2. gr. Gjaldskyldan nær til allra vara, sbr. 1. gr., nýrra sem notaðra, sem fluttar eru til landsins eða eru framleiddar, unnið er að eða settar eru saman hér á landi. Vara, sem seld er úr landi, er þó ekki gjaldskyld.
Við flokkun til gjaldskyldu samkvæmt lögum þessum skal fylgt flokkunarreglum tollalaga, nr. 55/1987, og gilda ákvæði þeirra um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um flokkun vara jafnframt um vörugjald.
II. kafli. Vörugjald af ökutækjum o.fl.
Gjaldflokkar ökutækja.
3. gr. [Á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. gr., skal lagt vörugjald í eftirfarandi gjaldflokkum miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % | ||
I | 0–2.000 | 30 | ||
II | Yfir 2.000 | 45 | ]1) |
4. gr. [Vörugjald af eftirtöldum vörum skal vera sem hér segir:
1. Eftirtalin ökutæki skulu undanþegin vörugjaldi:
a. Hópferðabifreiðar, þ.e. ökutæki sem aðallega eru ætluð til fólksflutninga, sem skráðar eru fyrir 18 manns eða fleiri að meðtöldum ökumanni.
b. Dráttarbifreiðar fyrir festivagna og sem aðallega eru gerðar til að draga annað ökutæki, sem eru yfir 5 tonn að heildarþyngd.
c. Ökutæki sem aðallega eru ætluð til vöruflutninga og eru yfir 5 tonn að heildarþyngd.
d. Vélknúin ökutæki til sérstakra nota, gálgabifreiðar, kranabifreiðar o.fl., sem ekki eru aðallega hönnuð til flutnings á mönnum eða vörum og ekki eru tilgreind annars staðar í þessari grein, að heildarþyngd yfir 5 tonn.
e. Tengivagnar og festivagnar til vöruflutninga sem eru yfir 5 tonn að leyfðri heildarþyngd.
2. 10% vörugjald: Dráttarvélar.
3. 15% vörugjald:
a. Kranabifreiðar og borkranabifreiðar sem eru 5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd.
b. Grindur með hreyfli fyrir vélknúin ökutæki.
c. Yfirbyggingar, þar með talin ökumannshús fyrir vélknúin ökutæki.
d. Tengivagnar og festivagnar til vöruflutninga sem eru 5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd, aðrir tengi- og festivagnar.
4. 20% vörugjald:
a. Dráttarbifreiðar fyrir festivagna og sem aðallega eru gerðar til að draga annað ökutæki, að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
b. Ökutæki, sem aðallega eru ætluð til vöruflutninga, að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
c. Vélknúin ökutæki til sérstakra nota, gálgabifreiðar o.fl., sem ekki eru aðallega hönnuð til flutnings á mönnum eða vörum og ekki eru tilgreind annars staðar í þessari grein, að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
5. 30% vörugjald: Hópferðabifreiðar sem skráðar eru fyrir 10–17 manns að meðtöldum ökumanni.
6. [30%] 1) vörugjald:
a. Bifhjól (þar með talin stigin bifhjól) og reiðhjól með hjálparvél.
b. Beltabifhjól (vélsleðar).
c. Fjórhjól.
d. Önnur vélknúin ökutæki sem ekki eru sérstaklega talin upp í þessum kafla.] 2)
… 3)
1)L. 8/2000, 2. gr. 2)L. 83/1998, 6. gr. 3)L. 104/2000, 18. gr.
5. gr. Ökutæki í eigu erlendra sendiráða, sendiræðisskrifstofa og sendiræðismanna eru undanþegin gjaldskyldu samkvæmt kafla þessum sé slíkt skylt samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Sama gildir um alþjóðasamtök og -stofnanir sem hér eru. [Þá eru ökutæki sem hafa í för með sér hverfandi mengun og eru knúin óhefðbundnum orkugjafa, svo sem rafhreyfli eða vetni, undanþegin gjaldskyldu.] 1)
[Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal vörugjald af eftirfarandi ökutækjum vera sem hér greinir:
1. Eftirtalin ökutæki skulu undanþegin vörugjaldi:
a. Dráttarbifreiðar að heildarþyngd 4 tonn eða meira sem gerðar eru til nota utan þjóðvega.
b. Snjóplógar.
c. Slökkvibifreiðar í eigu ríkis, sveitarfélaga eða stofnana á þeirra vegum.
d. Sjúkrabifreiðar í eigu ríkis, sveitarfélaga eða stofnana á þeirra vegum.
e. Sjálfhlaðandi eða sjálflosandi tengivagnar og festivagnar til landbúnaðarnota.
f. Bifreiðar í eigu ríkis, sveitarfélaga eða stofnana á þeirra vegum, sérstaklega búnar til flutnings á fötluðum, þ.m.t. búnar hjólastólalyftu og samþykktar af Tryggingastofnun ríkisins.
g. Dráttarvélar til nota á lögbýlum.
h. Beltabifreiðar (snjóbílar), yfir 700 kg að eigin þyngd, sérstaklega ætlaðar til aksturs í snjó.
i. Haffær ökutæki á hjólum fyrir láð og lög.
j. Ökutæki sem knúin eru rafhreyfli og flutt eru inn eða smíðuð í tilraunaskyni.
k. Sérsmíðaðar keppnisbifreiðar sem eru skráðar sem slíkar og einungis notaðar í skipulögðum keppnum og æfingum á vegum samtaka akstursíþróttamanna, svo og til aksturs til og frá slíkum atburðum. Skráningarmerki bifreiðanna skulu auðkennd sérstaklega. Ráðherra setur nánari reglur um gerð og útbúnað þeirra, svo og til hvaða atburða akstursheimildin taki. Sé brotið í bága við þær reglur skal vörugjald innheimt að fullu.
[l. Bifreiðar fatlaðra sem eru sérstaklega búnar til flutnings á þeim, þ.m.t. búnar hjólastólalyftu, og samþykktar af Tryggingastofnun ríkisins.] 2)
[m. Ökutæki sem ætluð eru fyrir starfsemi björgunarsveita enda liggi fyrir staðfesting landssamtaka björgunarsveita á að viðkomandi ökutæki verði einungis notuð í þágu björgunarsveita.] 3)
2. Greiða skal 10% vörugjald af hópferðabifreiðum sem eru skráðar fyrir 10–17 manns að meðtöldum ökumanni og eru í eigu hópferða- eða sérleyfishafa eða í fjármögnunarleigu vegna fjármögnunarleigusamnings við hópferða- eða sérleyfishafa. 4) Gjaldið skal lækka í 5% frá 1. janúar 2000.
3. … 2)
4. [Vörugjald af leigubifreiðum til fólksflutninga skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 10 |
II | Yfir 2.000 | 13 |
[5. Vörugjald af bifreiðum sem ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum skal vera:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 10 |
II | Yfir 2.000 | 13 |
[6. Vörugjald af bifreiðum til ökukennslu skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 10 |
II | Yfir 2.000 | 13 |
Ökuskólar geta jafnframt notið lækkunar samkvæmt þessum tölulið. Skilyrði þess eru að ökuskóli hagi skráningu á akstri bifreiðar sem nýtur lægra vörugjalds þannig að á hverjum tíma sé unnt að gera grein fyrir akstri bifreiðarinnar í þágu ökukennslu. Tollstjóri getur án fyrirvara óskað eftir gögnum þar um. Sé bifreið notuð til annars er tollstjóra heimilt að innheimta fullt vörugjald skv. 3. gr. laganna með 50% álagi. Við mat á því hvort bifreið hafi einungis verið notuð til ökukennslu skal miðað við að unnt sé að gera grein fyrir a.m.k. 80% af akstri hennar í þágu ökukennslu með framvísun þar til gerðrar akstursbókar eða öðrum hætti sem tollstjóri metur fullnægjandi. Ráðherra getur í reglugerð sett nánari reglur um þær bifreiðar sem njóta undanþágu samkvæmt þessum tölulið.
Brot á þeim skilyrðum sem sett eru í þessum tölulið varðar því að hinn brotlegi, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili, missir rétt til lækkunar í þrjú ár frá síðasta broti.
7. Vörugjald af bifreiðum sem notaðar eru til ökukennslu og leigubifreiðaaksturs skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 10 |
II | Yfir 2.000 | 13 |
[Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari skilyrði um þau ökutæki sem falla undir 2. mgr., svo sem um notkun ökutækis, búnað þess og hvað teljist vera aðalatvinna skv. 4. tölul. 2. mgr., svo og ákvæði um endurgreiðslu á mismun vörugjalds skv. 3. gr. annars vegar og 2. mgr. hins vegar ef skilyrðunum er ekki fylgt.] 2)] 6)
1)L. 140/1997, 2. gr. 2)L. 8/2000, 3. gr. 3)L. 104/2000, 19. gr. 4)Rg. 254/1993, sbr. 360/1998 og 705/1999. 5)L. 56/2001, 1. gr. 6)L. 151/1998, 11. gr.
Innflutt ökutæki.
6. gr. Þegar ökutæki er innflutt skal innflytjandi þess afhenda viðkomandi tollyfirvaldi með aðflutningsskýrslu staðfestingu um forskráningu ökutækis þar sem m.a. skal gerð grein fyrir stærð aflvélar þess.
Þegar ekki er unnt að leggja fram gögn um forskráningu við tollafgreiðslu er heimilt að leggja fram önnur þau gögn um vélarstærð ökutækis er tollyfirvöld meta fullnægjandi.
7. gr. [Ákvæði 3. gr., 6. tölul. 1. mgr. 5. gr. og 1.–6. og 11. tölul. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 55/1987, skulu ná til vörugjalds af ökutækjum samkvæmt lögum þessum eftir því sem við getur átt.] 1)
1)L. 104/2000, 20. gr.
Innlend framleiðsla og aðvinnsla.
8. gr. Sá aðili, er framleiðir eða vinnur að breytingum á ökutæki áður en það er skráð samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, skal skila gjaldi af ökutækinu í samræmi við verðmæti þess við skráningu og samkvæmt þeim gjaldflokki sem það þá fellur undir samkvæmt lögum þessum.
Heimilt er að draga frá greiðslu skv. 1. mgr. það vörugjald sem þegar hefur verið greitt af ökutækinu eða efnivörum til þess.
9. gr. Sé ökutæki, sem skráð hefur verið samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, breytt þannig að það flokkist í hærri gjaldflokk en við upphaflega skráningu skal skráður eigandi þess greiða viðbótarvörugjald eigi breytingin sér stað innan fimm ára frá upphaflegum skráningardegi.
Viðbótargjald skv. 1. mgr. skal ákveðið með eftirfarandi hætti:
a. Á framreiknaðan og afskrifaðan upphaflegan gjaldstofn skal reikna viðbótarvörugjald sem nemur mismun á nýjum gjaldflokki skv. 1. mgr. og þeim gjaldflokki er upphaflega var greitt samkvæmt.
b. Af verðmætaaukningu vegna aðvinnslu eða breytinga á ökutækinu skal greiða vörugjald samkvæmt nýjum gjaldflokki, sbr. 1. mgr.
c. Frá álögðu vörugjaldi skv. a- og b-liðum er heimilt að draga vörugjald sem greitt hefur verið vegna aðfanga til aðvinnslunnar eða breytingarinnar.
Ýmis ákvæði.
10. gr. Tollstjóri getur krafist þess að gjaldskyldir aðilar leggi fram upplýsingar frá framleiðanda ökutækis um sprengirými aflvélar þess eða samsvarandi upplýsingar innlends aðila sem annast hefur aðvinnslu eða breytingar á ökutækinu.
11. gr. Óheimilt er að skrásetja gjaldskylt ökutæki fyrr en gjald samkvæmt lögum þessum hefur verið greitt.
Þeir aðilar, sem skrá og skoða ökutæki, skulu ganga úr skugga um það við skráningu ökutækis að gjald skv. II. kafla hafi verið greitt af viðkomandi ökutæki. Komi í ljós að gjald sé vangreitt skal synjað um skráningu og/eða skoðun og viðkomandi tollstjóra þegar tilkynnt um það.
12. gr. Ákveða má í reglugerð að ökutæki, sem falla undir lög þessi og ekki eru ætluð til einkanota eða undanþegin eru gjaldi samkvæmt lögum þessum, verði auðkennd sérstaklega.
13. gr. Ráðherra getur með reglugerð heimilað endurgreiðslu vörugjalds af ökutækjum sem seld eða leigð eru úr landi. Fjárhæð endurgreiðslu skal miða við fyrningargrunn og fyrningarhlutföll samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
III. kafli. Vörugjöld af eldsneyti.
Almennt vörugjald af eldsneyti.
14. gr. [Greiða skal 10,50 kr. vörugjald af hverjum lítra af bensíni.] 1)
1)L. 86/1999, 1. gr.
Sérstakt vörugjald af eldsneyti.
15. gr. [Auk vörugjalds skv. 14. gr. skal greiða sérstakt vörugjald, bensíngjald, af bensíni. Af blýlausu bensíni skal greiða 28,60 kr. af hverjum lítra og af öðru bensíni skal greiða 30,43 kr. af hverjum lítra.] 1)
[Tekjum af bensíngjaldi skal einungis varið til vegagerðar samkvæmt vegáætlun, að frádregnum 0,5% sem renna í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við álagningu og innheimtu gjaldsins.] 2)
1)L. 86/1999, 2. gr. 2)L. 159/1998, 6. gr.
16. gr. … 1)
1)L. 86/1999, 3. gr.
17. gr. [Bensín sem verður notað eða hefur sannanlega verið notað á flugvélar skal undanþegið vörugjaldi.] 1)
1)L. 86/1999, 4. gr.
IV. kafli. Gjaldskyldir aðilar, gjaldstofn og gjalddagar.
18. gr. Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru:
1. Allir þeir sem flytja til landsins vörur sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum hvort sem er til endursölu eða eigin nota.
2. Allir þeir sem framleiða hér á landi vörur sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum, vinna að þeim eða setja þær saman hvort sem er til endursölu eða eigin nota.
Þeir sem gjaldskyldir eru skv. 2. tölul. 1. mgr. skulu ótilkvaddir skila vörugjaldsskýrslu vegna ökutækis o.fl. til innheimtumanns ríkissjóðs í því umdæmi þar sem þeir eru heimilisfastir og greiða gjald það sem þeim ber að standa skil á.
Gjaldstofn.
19. gr. Gjaldstofn vörugjalds samkvæmt lögum þessum af innfluttum vörum er tollverð þeirra eins og það er ákveðið skv. 8.– 12. gr. tollalaga, nr. 55/1987, að viðbættum gjöldum eins og þau eru ákveðin samkvæmt þeim lögum.
20. gr. Gjaldstofn vörugjalds samkvæmt lögum þessum af gjaldskyldum vörum, sem framleiddar eru, unnið er að eða settar eru saman hér á landi, er verksmiðjuverð þeirra, þ.e. söluverð framleiðanda þeirra án vörugjalds til óháðs aðila, sbr. 8. gr. tollalaga. Sé erfiðleikum bundið að ákvarða framleiðsluverð skal tollstjóri meta það. Skal við matið höfð hliðsjón af tollverði hliðstæðrar innfluttrar vöru eða framleiðsluverði hliðstæðrar vöru sem framleidd er hérlendis.
21. gr. Gjaldstofn ökutækis, sem breytt hefur verið eða unnið hefur verið að, sbr. 8. og 9. gr., skal vera verðmæti ökutækis eftir breytingu eða aðvinnslu.
Sé erfiðleikum bundið að finna verðmæti ökutækis skv. 1. mgr. skal tollstjóri áætla það, sbr. 20. gr.
Gjalddagar.
22. gr. Vörugjald af innfluttum gjaldskyldum vörum skal innheimt við tollafgreiðslu. Vörugjald af innlendum framleiðsluvörum eða vörum, sem hlotið hafa aðvinnslu hér á landi, reiknast við sölu eða afhendingu gjaldskyldrar vöru frá framleiðanda eða heildsala og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram.
23. gr. Þrátt fyrir ákvæði 22. gr. skal vörugjald af … 1) skráningarskyldum ökutækjum greitt áður en skráning þeirra fer fram, en þó ekki síðar en [tólf] 1) mánuðum eftir tollafgreiðslu.
1)L. 41/1995, 4. gr.
24. gr. Heimilt er að ákveða með reglugerð að innflytjendur fái gjaldfrest á greiðslu vörugjalds af eldsneyti er miðast við sölu birgða.
V. kafli. Álagning, innheimta, eftirlit o.fl.
25. gr. Gjöld, sem lögð eru á samkvæmt lögum þessum, mynda gjaldstofn til virðisaukaskatts.
Tollstjórar annast álagningu og innheimtu vörugjalds samkvæmt lögum þessum og hafa með höndum eftirlit.
26. gr. Heimilt er að stöðva ökutæki og færa það til skoðunar ef ástæða er til að ætla að brot hafi verið framið samkvæmt lögum þessum. Reynist vera um brot að ræða er heimilt að taka skráningarmerki af ökutækinu til varðveislu.
27. gr. Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu, álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, samræmingu gjalda, eftirlit, innheimtu, vörslusviptingu, veð, uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðrar framkvæmdir varðandi gjald skv. 1. gr. skulu gilda ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, og laga nr. 97/1987, um vörugjald, eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim.
Breyting á skráningarskyldu frá því sem nú er ákveðið samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, hefur ekki áhrif á gjaldskyldu samkvæmt lögum þessum.
28. gr. Ráðherra getur með reglugerð 1) sett nánari fyrirmæli varðandi framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 255/1993, sbr. 511/1993, 55/1996, 257/1996, 355/1996, 474/1997, 725/1997, 339/1998, 360/1998, 43/1999, 356/1999 og 682/2000. Rg. 331/2000, sbr. 792/2000 og 555/2001.
VI. kafli. Gildistaka, brottfallin lagaákvæði o.fl.
29. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1993.
30. gr. …
Ákvæði til bráðabirgða.
I. Ákvæði laga þessara skulu gilda um allar vörur er ekki hafa verið teknar til tollafgreiðslu við gildistöku þeirra.
II. …
[III. …] 1)
1)L. 41/1995, brbákv.
[IV. …] 1)
1)L. 140/1997, brbákv.
[V. …] 1)
1)L. 83/1998, 8. gr.
[VI. …] 1)
1)L. 151/1998, 12. gr.
[VII. Vörugjald af bifreiðum sem eru gjaldskyldar skv. 3. gr. laganna og búnar eru vélum sem nýta metangas eða rafmagn að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skal vera 120.000 kr. lægra en ella væri samkvæmt greininni.
Heimild til lækkunar skv. 1. mgr. gildir til 31. desember 2003.
Ráðherra getur sett nánari reglur um lækkun vörugjalds samkvæmt þessu ákvæði, svo sem um tæknilegan búnað bifreiðar, hvað teljist vera „að verulegu leyti“ skv. 1. mgr. og þau gögn sem leggja þarf fram með umsókn um lækkun vörugjalds á grundvelli þessa ákvæðis.] 1)
1)L. 38/2000, 1. gr.