Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum
1993 nr. 83 18. maí
1. gr. [Lög þessi gilda um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir tilskipanir [89/48/EBE, 92/51/EBE eða 1999/42/EB],
1) sem og viðauka við þær svo sem þeir eru á hverjum tíma, sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið nær til og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi gilda einnig um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir samninga sem ríkisstjórnir Norðurlanda gera og öðlast hafa gildi að því er Ísland varðar og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.
1)L. 49/2001, 1. gr. 2)L. 37/1997, 1. gr.
2. gr. [Ríkisborgarar í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, svo og norrænir ríkisborgarar sem uppfylla skilyrði þessara tilskipana eða samninga sem falla undir 1. gr., eiga rétt á að gegna hér á landi starfi sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til, hvort heldur er sjálfstætt eða sem launþegar, með sömu skilmálum og gilda um íslenska ríkisborgara.]
1)
1)L. 76/1994, 2. gr.
3. gr. Þau stjórnvöld, sem fara með málefni er varða hlutaðeigandi starf, skulu sjá um að skilyrði þau sem greinir í 2. gr. til að gegna starfinu hafi verið uppfyllt.
4. gr. [Ráðherra, sem í hlut á, getur með reglugerð
1) veitt undanþágu frá ákvæðum í lögum að því er varðar ríkisfang, búsetu eða viðurkenningu á prófum að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er felast í tilskipunum þeim eða samningum sem falla undir 1. gr.]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra, sem í hlut á, setur reglur um hæfnispróf eða viðbótarmenntun eftir því sem við á. Hann getur einnig ákveðið að umsækjandi skuli greiða kostnað vegna prófs eða viðbótarmenntunar. Ráðherra setur og reglur um gjöld er krefja má vegna umsóknar um heimild til að gegna starfi hér á landi.
1)Rg. 94/1994. Rg. 244/1994, sbr. 369/1994 og 342/2001. Rg. 101/1998. Rg. 327/1999. 2)L. 76/1994, 3. gr.
5. gr. Menntamálaráðuneytið skal sjá um og samræma framkvæmd þeirrar tilskipunar og samninga sem falla undir 1. gr. Nánari ákvæði um þá framkvæmd skulu sett í reglugerð.
1)
1)Rg. 249/1999.
6. gr. Menntamálaráðuneytið, svo og stjórnvöld sem í hlut eiga, sbr. 4. gr., geta krafið umsækjanda um upplýsingar, sem þörf er á, til að taka megi afstöðu til umsóknar um heimild til að gegna lögvernduðu starfi hér á landi.
7. gr. …