Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2003. Útgáfa 128a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um verðbréfaviðskipti
1996 nr. 13 28. mars
I. kafli.
Almenn ákvæði.
1. gr. [Lög þessi taka til verðbréfaviðskipta eins og þau eru skilgreind í 2. gr.]
1)
1)L. 161/2002, 115. gr.
2. gr. Í lögum þessum merkir:
1. [
Verðbréfaviðskipti: Starfsemi skv. 25. gr. laga um fjármálafyrirtæki.]
1)
2. [
Fjármálafyrirtæki: Fyrirtæki sem fengið hefur starfsleyfi skv. 6. gr., sbr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki.]
1)
3.
Verðbréf:
a. Hvers konar framseljanleg kröfuréttindi til peningagreiðslu eða ígildis hennar, svo og framseljanleg skilríki fyrir eignarréttindum að öðru en fasteign eða einstökum lausafjármunum.
b. Skilyrt skilríki til peningagreiðslu á grundvelli tiltekins verðbréfs eða verðbréfa skv. a-lið.
[4.
Trúnaðarupplýsingar: Upplýsingar um útgefanda verðbréfa, verðbréfin sjálf eða önnur atriði sem ekki hafa verið gerð opinber en eru líkleg til að hafa áhrif á markaðsverð verðbréfanna ef opinber væru. Upplýsingar teljast opinberar þegar þeim hefur verið miðlað á verðbréfamarkaðinum með opinberum og viðurkenndum hætti. Tilkynningar til kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða teljast opinberar þegar þeim hefur verið miðlað þaðan, sbr. lög um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.
5.
Innherjar:
a. Fruminnherjar:
Aðilar sem búa yfir eða hafa að jafnaði aðgang að trúnaðarupplýsingum vegna eignaraðildar, aðildar að stjórn, rekstri eða eftirliti eða vegna annarra starfa á vegum útgefanda verðbréfa sem skráð hafa verið eða óskað hefur verið eftir að verði skráð í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi.
Einstaklingar eða lögaðilar sem eiga beinan eða óbeinan eignarhlut í útgefanda verðbréfa, sem skráð hafa verið eða óskað hefur verið eftir skráningu á í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, og eiga fulltrúa í stjórn viðkomandi útgefanda á grundvelli eignarhlutarins.
b. Aðrir innherjar:
Aðili sem ekki telst fruminnherji skv. a-lið en hefur vegna starfs síns, stöðu eða skyldna tímabundinn aðgang að trúnaðarupplýsingum.
Aðili sem ekki telst fruminnherji skv. a-lið en hefur fengið vitneskju um trúnaðarupplýsingar, enda hafi viðkomandi vitað eða mátt vita hvers eðlis upplýsingarnar voru.
6.
Viðskiptalota: Fjöldi verðbréfa í sama flokki, eða lágmarksmarkaðsverðmæti sem þarf til þess að geta átt samfelld viðskipti í viðskiptakerfi kauphallar eða skipulegs tilboðsmarkaðar, samkvæmt reglum sem stjórn kauphallar eða skipulegs tilboðsmarkaðar setur.]
2)
[7.
Safnskráning: Þjónusta verðbréfafyrirtækis sem felur í sér að fyrirtækinu er heimilt að halda utan um eignir viðskiptamanna sinna á eigin reikningi (safnreikningi) og taka við greiðslum fyrir hönd viðskiptamanna sinna frá einstökum útgefendum verðbréfa.]
3)
[8.]
3) [
Almennt útboð: Sala verðbréfa í sama verðbréfaflokki sem boðin eru almenningi til kaups með kynningu eða með öðrum hætti.]
2)
[9.]
3)
Fastur rekstrarkostnaður: Rekstrargjöld að frátöldum fjármagnsgjöldum og óreglulegum gjöldum.
[10.]
3)
Fjárvarsla: Þjónusta, veitt samkvæmt sérstökum samningi gegn endurgjaldi sem felur í sér að taka við fjármunum til fjárfestingar í verðbréfum eða öðrum verðmætum fyrir eigin reikning viðskiptamanns.
[11.]
3)
Gistiríki: Ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem innlent [fjármálafyrirtæki]
1) starfrækir útibú eða veitir þjónustu.
[12.]
3)
Heimaríki:
a. Ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem lögaðili, sem hefur heimild til að stunda verðbréfaviðskipti hér á landi, hefur skráða skrifstofu eða, hafi hann enga skráða skrifstofu í samræmi við eigin landslög, það ríki þar sem hann hefur aðalskrifstofu.
b. Ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem skipulegur verðbréfamarkaður hefur skráða skrifstofu eða, hafi markaðurinn enga skráða skrifstofu í samræmi við eigin landslög, það ríki þar sem hann hefur aðalskrifstofu.
[13.]
3)
Náin tengsl: Innbyrðis tengsl tveggja eða fleiri lögaðila sem fela í sér beina eða óbeina hlutdeild þessara aðila sem nemur a.m.k. 20% af eigin fé eða atkvæðisrétti fyrirtækis. Einnig er um náin tengsl að ræða ef fyrrgreindir aðilar, eða dótturfélög þeirra, hafa vegna samninga yfirráð í fyrirtæki eða sambærileg innbyrðis tengsl eins eða fleiri lögaðila eða einstaklinga við fyrirtæki.
[14.]
3)
Skipulegur verðbréfamarkaður:
a. [Kauphöll sem hlotið hefur starfsleyfi hér á landi og hliðstæðar kauphallir innan Evrópska efnahagssvæðisins [og í aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu].
4)]
5)
b. Aðrir verðbréfamarkaðir innan Evrópska efnahagssvæðisins [og í aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu]
4) þar sem verðbréf ganga kaupum og sölum og sem eru opnir almenningi, starfa reglulega og eru viðurkenndir með þeim hætti sem [Fjármálaeftirlitið]
6) metur gildan.
c. Markaðir skv. a- og b-lið sem staðsettir eru í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins [og aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu]
4) og eru viðurkenndir með þeim hætti sem [Fjármálaeftirlitið]
6) metur gildan.
[15.]
3)
Sölutrygging: Samningur milli [fjármálafyrirtækis]
1) skv. 8. gr. og útgefanda eða eiganda verðbréfa þar sem fyrirtækið skuldbindur sig til þess að kaupa ákveðinn hluta eða öll verðbréf í tilteknu útboði innan fyrir fram ákveðinna tímamarka og á fyrir fram ákveðnu verði.
[16.]
3)
Veltubók: Verðbréf sem [fjármálafyrirtæki]
1) hefur eignast eða heldur eftir með endursölu í huga og/eða í því skyni að hagnast á skammtímabreytingum á markaðsvirði þessara skjala eða öðrum verð- eða vaxtabreytingum. Jafnframt teljast til veltubókar stöður í fjármálaskjölum sem verða til við samtímis skipti á höfuðstólsfjárhæðum, svo og fjármálasamningar sem [fjármálafyrirtæki]
1) er aðili að í því skyni að baktryggja aðra þætti veltubókar. Til veltubókar teljast enn fremur áhættuþættir tengdir óuppgerðum og ófrágengnum viðskiptum og afleiddum skjölum sem verslað er með innan og utan verðbréfamarkaðar, svo og áhættuþættir er tengjast skuldbindingum [fjármálafyrirtækis]
1) sem myndast vegna viðskipta með verðbréf í veltubók.
[17.]
3) [
Verðbréfafyrirtæki: Fjármálafyrirtæki sem fengið hefur starfsleyfi skv. 5. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki.]
1)
[18.]
3) …
1)
[19.]
3)
Viðskiptavaki: [Fjármálafyrirtæki]
1) skv. 8. gr. eða annar aðili sem til þess hefur heimild samkvæmt lögum og hefur skuldbundið sig formlega til að kaupa og selja fyrir eigin reikning tiltekin verðbréf, í því skyni að greiða fyrir því að markaðsverð skapist á verðbréfunum, og tilkynnt það opinberlega.
[20.]
3)
Virkur eignarhluti: Bein eða óbein eignarhlutdeild í [fjármálafyrirtæki]
1) sem nemur 10% eða meira af eigin fé þess eða atkvæðisrétti eða önnur hlutdeild sem gerir það kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun fyrirtækis sem eignarhlutdeild er í.
[[21.]
3)
Afleiðusamningur: Samningur þar sem uppgjörsákvæði byggist á breytingu einhvers þáttar, svo sem vaxta, gengis gjaldmiðla, verðbréfaverðs, verðbréfavísitölu eða hrávöruverðs. Andvirði slíks samnings er háð breytingu þessara viðmiðunarþátta á tilteknu tímabili.
[22.]
3)
Framvirkur vaxtasamningur: Afleiðusamningur sem kveður á um vaxtaviðmiðun á ákveðnu tímabili og reiknast vextir af fyrir fram ákveðinni grunnfjárhæð sem ekki kemur til greiðslu. Samningurinn er gerður upp á fyrir fram ákveðnum uppgjörsdegi.
[23.]
3)
Valréttarsamningur: Afleiðusamningur sem veitir öðrum samningsaðila, kaupanda, rétt en ekki skyldu til að kaupa (kaupréttur) eða selja (söluréttur) tiltekna eign (andlag samnings) á fyrir fram ákveðnu verði (valréttargengi) á tilteknu tímamarki eða innan tiltekins tíma. Sem endurgjald fyrir þennan rétt fær hinn samningsaðilinn, útgefandinn, ákveðið gjald sem segir til um markaðsvirði valréttarins við upphaf samningstímans.
[24.]
3)
Framvirkur samningur: Afleiðusamningur sem kveður á um skyldu samningsaðila til að kaupa eða selja tiltekna eign fyrir ákveðið verð á fyrir fram ákveðnum tíma.
[25.]
3)
Vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningur: Afleiðusamningur sem kveður á um að samningsaðilar greiði vexti hvor til annars af tiltekinni viðmiðunarfjárhæð í sama gjaldmiðli eða greiði vexti og höfuðstól hvor til annars hvor í sínum gjaldmiðli á samningstímanum.
[26.]
3)
Samningsbundið uppgjör afleiðusamninga: Samningur á milli tveggja eða fleiri aðila sem eiga kröfu hver á annan um að í stað þess að gera upp hverja kröfu fyrir sig sérstaklega skuli láta kröfurnar jafnast hverja á móti annarri og aðeins mismunurinn (jaðargreiðsla) komi til greiðslu.]
7)
1)L. 161/2002, 115. gr. 2)L. 163/2000, 2. gr. 3)L. 164/2000, 1. gr. 4)L. 76/2002, 72. gr. 5)L. 35/1998, 1. gr. 6)L. 84/1998, 1. gr. 7)L. 99/2000, 2. gr.
II. kafli.
Leyfi til verðbréfaviðskipta.
3.–6 gr. …
1)
1)L. 161/2002, 115. gr.
III. kafli.
Réttindi og skyldur [fjármálafyrirtækja].1)
1)L. 161/2002, 115. gr.
7.–14. gr. …
1)
1)L. 161/2002, 115. gr.
15. gr. [[Fjármálafyrirtæki]
1) skulu gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart viðskiptamönnum sínum í starfsemi sinni og ber þeim ávallt að haga störfum sínum þannig að viðskiptamenn njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör í verðbréfaviðskiptum. Skulu viðskiptamönnum, að teknu tilliti til þekkingar þeirra, veittar greinargóðar upplýsingar um þá kosti sem þeim standa til boða.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálafyrirtæki]
1) skulu sýna fram á að 1. mgr. sé fylgt og að komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrum aðskilnaði einstakra starfssviða þeirra. Fjármálaeftirlitið skal staðfesta reglur fyrirtækjanna sem miða að þessu. Í reglunum skal gera sérstaka grein fyrir eftirliti innan fyrirtækisins með því að þeim sé fylgt. Þessar upplýsingar skulu vera aðgengilegar viðskiptamönnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Í auglýsingum og annarri kynningarstarfsemi [fjármálafyrirtækja]
1) skal þess gætt að fram komi réttar og nákvæmar upplýsingar um starfsemi og þjónustu fyrirtækjanna.]
2)
1)L. 161/2002, 115. gr. 2)L. 99/2000, 6. gr.
16. gr. [Fjármálafyrirtæki]
1) skulu kunngera viðskiptamönnum sínum fyrir fram hvaða þóknun þau muni áskilja sér fyrir þjónustu sína. Breytingar á þóknun skal tilkynna viðskiptavinum með nægum fyrirvara.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálafyrirtæki]
1) skulu hafa aðgengilegar á starfsstöð sinni upplýsingar um hvaða rétt viðskiptamenn þeirra kunni að eiga til bóta vegna tjóns sem þeir verða fyrir vegna viðskipta á vegum fyrirtækjanna.
1)L. 161/2002, 115. gr.
17. gr. Taki [fjármálafyrirtæki]
1) að sér þjónustu sem því er heimilt samkvæmt lögum þessum skal, eftir því sem við á, gerður sérstakur samningur milli fyrirtækisins og viðskiptamanns þess þar sem m.a. skal kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila.
1)L. 161/2002, 115. gr.
18. gr. [[Fjármálafyrirtækjum]
1) er óheimilt að annast milligöngu um verðbréfaviðskipti hafi starfsmenn þeirra vitneskju um eða ástæðu til að ætla að viðskiptin brjóti í bága við ákvæði V. kafla.]
2)
1)L. 161/2002, 115. gr. 2)L. 163/2000, 4. gr.
19. gr. [[Fjármálafyrirtæki]
1) skal halda fjármunum og verðbréfum viðskiptamanna tryggilega aðgreindum frá eignum fyrirtækisins. Skulu fjármunir viðskiptamanns varðveittir á sérstökum nafnskráðum reikningi.]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálafyrirtæki]
1) er heimilt að framselja verðbréf í nafni viðskiptamanns síns hafi fyrirtækið fengið til þess skriflegt umboð. Í framsalsáritun ber að geta þess að verðbréf sé framselt samkvæmt varðveittu umboði og ber fyrirtækinu að varðveita umboð svo lengi sem réttindi eru byggð á verðbréfi sem framselt hefur verið með þessum hætti. Skylt er að láta kaupanda verðbréfs í té samrit umboðsins krefjist hann þess. Þó er verðbréfafyrirtæki, sem býður upp á vörslu skv. a-lið 2. tölul. 8. gr., heimilt að varðveita framsalsáritanir í sérstakri skrá meðan verðbréfið er í vörslu þess, enda séu framsalsáritanir færðar inn á bréfið þegar það hverfur úr vörslu fyrirtækisins. Fyrirtæki, sem hyggst nýta sér þessa heimild, ber að afla sér samþykkis [Fjármálaeftirlitsins]
3) fyrir fyrirkomulagi vörslu og því upplýsingakerfi sem á að nota.
![](/lagas/hk.jpg)
Sá sem veitt hefur [fjármálafyrirtæki]
1) umboð skv. 2. mgr. getur ekki beint kröfum að framsalshafa með stoð í heimildarskorti fyrirtækisins, nema umboð þess til framsals hafi sýnilega verið ófullnægjandi.
![](/lagas/hk.jpg)
Framsalsáritun [fjármálafyrirtækis]
1) skv. 2. mgr. telst ekki slíta framsalsröð þótt umboð til fyrirtækisins fylgi ekki verðbréfinu.
![](/lagas/hk.jpg)
[Verðbréfafyrirtæki er heimilt að varðveita verðbréf í eigu viðskiptamanna sinna á safnreikningi (safnskráning), enda hafi fyrirtækið gert viðskiptamanni grein fyrir réttaráhrifum þess og hann veitt samþykki sitt. Verðbréfafyrirtæki ber að halda skrá yfir eignarhlut hvers viðskiptamanns fyrir sig.
![](/lagas/hk.jpg)
Komi til þess að bú verðbréfafyrirtækis sé tekið til gjaldþrotaskipta eða farið sé fram á greiðslustöðvun, slit fyrirtækisins eða sambærilegar ráðstafanir getur viðskiptamaður á grundvelli skrárinnar skv. 5. mgr. tekið verðbréf sín út af safnreikningi, enda sé ekki ágreiningur um eignarhald viðskiptamannsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur sett reglugerð um safnskráningu, m.a. um sviptingu heimildar til að skrá verðbréf á safnreikning skv. 5. mgr. og auðkenningu safnreiknings, þar á meðal upplýsingar um fjölda eigenda á safnreikningi.]
2)
1)L. 161/2002, 115. gr. 2)L. 164/2000, 2. gr. 3)L. 84/1998, 1. gr.
[20. gr.]1) [[Fjármálafyrirtæki]
2) skal vegna eigin viðskipta með verðbréf og vegna viðskipta eigenda virkra eignarhluta skv. 12. gr., stjórnenda, starfsmanna og maka framangreindra aðila meðal annars gæta eftirtalinna atriða:
1. að fyllsta trúverðugleika fyrirtækisins sé gætt,
2. að ýtrustu hagsmuna ótengdra viðskiptavina sé gætt,
3. að fullur trúnaður ríki gagnvart ótengdum viðskiptavinum,
4. að tryggt sé að viðskiptin stangist ekki á við [V. kafla]
3) þessara laga,
5. að viðskiptin séu sérstaklega skráð,
6. að stjórn fyrirtækisins fái kerfisbundnar upplýsingar um viðskiptin og hafi eftirlit með þeim.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálafyrirtæki]
2) skulu setja sér reglur um viðskipti skv. 1. mgr. og skulu þær staðfestar af Fjármálaeftirlitinu. Fyrirtæki ber að gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir frávikum frá ákvæðum reglnanna. Þær skulu vera aðgengilegar viðskiptamönnum.]
4)
1)L. 163/2000, 5. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr. 3)L. 163/2000, 3. gr. 4)L. 99/2000, 8. gr.
[21.–24. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 5. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[IV. kafli.
Útboð verðbréfa.]1)
1)L. 163/2000, 6. gr.
[25. gr. Almennt útboð verðbréfa, hvort heldur í upphaflegri sölu eða síðari sölu, er háð því að útboðslýsing hafi verið gefin út í samræmi við ákvæði laga þessara, sbr. þó 29. gr.]
1)
1)L. 163/2000, 6. gr.
[26. gr. Hafi útboðslýsing verið birt í samræmi við 25. gr. er ekki þörf á að birta nýja útboðslýsingu í tengslum við almennt útboð nema liðnir séu meira en 12 mánuðir frá birtingu útboðslýsingar til fyrsta söludags í nýju útboði eða ef orðið hafa breytingar á högum útgefanda sem ætla má að hafi veruleg áhrif á markaðsverð verðbréfanna.]
1)
1)L. 163/2000, 6. gr.
[27. gr. Sala eða milliganga [fjármálafyrirtækis]
1) á verðbréfum til annarra en fagfjárfesta, sem ekki fellur undir reglur um almennt útboð, er háð því að lagt hafi verið mat á faglega þekkingu, fjárhag og reynslu viðskiptavinar. [Fjármálafyrirtæki]
1) er heimilt að synja um milligöngu með verðbréf sem ekki falla undir almennt útboð ef það telur viðskiptavini ekki búa yfir nægjanlegri þekkingu, reynslu eða fjárhagslegum styrk.]
2)
1)L. 161/2002, 115. gr. 2)L. 163/2000, 6. gr.
[28. gr. Almennt útboð verðbréfa skal fara fram fyrir milligöngu verðbréfafyrirtækja skv. 8. gr. eða annarra aðila sem til þess hafa heimild í lögum.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálaeftirlitið skal hafa umsjón með athugun á útboðslýsingum. Þó skulu kauphallir annast athugun á skráningarlýsingum samkvæmt lögum um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða þegar óskað er eftir skráningu í viðkomandi kauphöll, enda sé hún tekin sem gild útboðslýsing. Fjármálaeftirlitið getur falið skipulegum verðbréfamörkuðum að annast athugun á útboðslýsingum öðrum en þeim sem kveðið er á um í 2. málsl.
![](/lagas/hk.jpg)
Seðlabanki Íslands getur sett nánari reglur
1) um fyrsta söludag einstakra almennra útboða í því skyni að draga úr sveiflum í framboði nýrra verðbréfa á verðbréfamarkaðinum.
![](/lagas/hk.jpg)
Þóknun fyrir athugun á útboðslýsingum er ákveðin af Fjármálaeftirlitinu eða skipulegum verðbréfamarkaði skv. 2. mgr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal setja reglugerð
2) um útboð verðbréfa þar sem m.a. verði kveðið á um aðdraganda að útboðslýsingu og útboðstímabil, efni og tilhögun við dreifingu útboðslýsingar, heimildir Fjármálaeftirlitsins til að veita undanþágur frá birtingu útboðslýsingar að hluta eða öllu leyti, viðvarandi upplýsingaskyldu og skilgreiningu á fagfjárfestum.]
3)
1)
Rgl. 470/2001. 2)Rg. 477/2001. 3)L. 163/2000, 6. gr.
[29. gr. Undanþegin ákvæðum 25. gr. eru:
1. Útboð þar sem eitt eða fleiri eftirtalinna tilvika eiga við:
a. Hlutabréf eða samvinnuhlutabréf eru einungis boðin forgangsréttarhöfum í félagi og hömlur eru lagðar á viðskipti með bréfin.
b. Hlutabréf eða samvinnuhlutabréf eru einungis boðin eigendum í félagi, enda séu þeir færri en 50 og hlutafé eða stofnsjóður B-deildar samvinnufélags lægri en 50 milljónir króna.
c. Verðbréf eru boðin tilgreindum afmörkuðum hópi aðila án auglýsingar eða kynningar, enda séu ekki fleiri en 25 aðilar í hópnum.
d. Áætlað heildarsöluverð verðbréfanna nemur ekki meira en fimm milljónum króna, sbr. þó 2. mgr.
e. Hver fjárfestir þarf að reiða af hendi a.m.k. fimm milljónir króna til kaupa á verðbréfunum, sbr. þó 2. mgr.
f. Verðbréf eru boðin fagfjárfestum.
2. Verðbréf af eftirfarandi gerðum:
a. Verðbréf sem gefin eru út að áætluðu markaðsverði a.m.k. fimm milljónir króna hvert, sbr. þó 2. mgr.
b. Hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða með starfsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu.
c. Verðbréf sem gefin eru út í tengslum við yfirtökutilboð.
d. Verðbréf sem gefin eru út í tengslum við samruna fyrirtækja.
e. Jöfnunarhlutabréf og önnur hlutabréf sem hluthafar fá afhent án endurgjalds.
f. Hlutabréf eða verðbréf sem eru ígildi hlutabréfa ef þau eru boðin í skiptum fyrir hlutabréf í sama félagi, hafi boðið á hinum nýju verðbréfum ekki í för með sér hækkun á hlutafé í félaginu.
g. Verðbréf sem vinnuveitandi eða fyrirtæki tengt honum býður eingöngu núverandi eða fyrrverandi fastráðnum starfsmönnum sínum eða verðbréf sem boðin eru fram í þágu þeirra.
h. Verðbréf sem til eru komin vegna breytinga á breytanlegum skuldabréfum eða vegna þess að neytt er réttinda sem kaupréttur að hlut veitir, svo og hlutabréf sem boðin eru í skiptum fyrir skiptanleg skuldabréf, enda hafi útboðslýsing á hinum breytanlegu eða skiptanlegu skuldabréfum, eða þeim skuldabréfum sem kaupréttur að hlut fylgir, verið gefin út á Íslandi.
i. Verðbréf sem gefin eru út af lögaðilum, sem ekki eru reknir í hagnaðarskyni í þeim tilgangi að afla fjár til framdráttar markmiðum sínum, og lúta ekki að hag sjálfra lögaðilanna.
j. Framseljanleg verðbréf sem gefin eru út af ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu eða eru með ríkisábyrgð.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjárhæðir í 1. mgr. skulu aldrei vera lægri en 40 þúsund evrur miðað við opinbert viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands eins og það er skráð á hverjum tíma.]
1)
1)L. 163/2000, 6. gr.
[V. kafli.
Meðferð trúnaðarupplýsinga, viðskipti innherja og markaðsmisnotkun.]1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[30. gr. Ákvæði þessa kafla taka til viðskipta með verðbréf sem skráð hafa verið eða óskað hefur verið eftir að verði skráð á skipulegum verðbréfamarkaði skv. [14. tölul. 2. gr.]
1)]
2)
1)L. 69/2001, 9. gr. 2)L. 163/2000, 7. gr.
[31. gr. Innherjum er óheimilt að:
1. [afla eða ráðstafa verðbréfum, fyrir eigin reikning eða annarra, búi þeir yfir trúnaðarupplýsingum],
1)
2. láta þriðja aðila trúnaðarupplýsingar í té, nema það sé gert í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur þess sem upplýsingarnar veitir,
3. ráðleggja þriðja aðila á grundvelli trúnaðarupplýsinga að afla verðbréfa eða ráðstafa þeim eða hvetja að öðru leyti til viðskipta með verðbréfin.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði 1. mgr. nær einnig til lögaðila og einstaklinga sem taka þátt í ákvörðun um viðskipti með verðbréf fyrir reikning lögaðilans.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði 1. mgr. á ekki við um viðskipti ríkisins, Seðlabanka Íslands eða aðila sem annast viðskipti fyrir þeirra hönd, enda séu viðskiptin liður í stefnu ríkisins í peningamálum, gengismálum eða lánasýslu.]
2)
1)L. 39/2002, 1. gr. 2)L. 163/2000, 7. gr.
[32. gr. Fruminnherjar skulu ganga úr skugga um það áður en þeir eiga viðskipti með verðbréf félags, sem þeir eru fruminnherjar í, að ekki liggi fyrir trúnaðarupplýsingar innan félagsins.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[33. gr. Fruminnherjar skulu tilkynna aðila sem útnefndur hefur verið í samræmi við reglur skv. 37. gr. fyrir fram um fyrirhuguð viðskipti sín eða aðila sem eru fjárhagslega tengdir honum með verðbréf félagsins og jafnóðum og viðskiptin hafa farið fram. Viðkomandi félag skal samdægurs tilkynna um viðskiptin til kauphallar eða skipulegs tilboðsmarkaðar þar sem viðkomandi verðbréf eru skráð eða óskað hefur verið eftir skráningu á þeim.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[34. gr. Kauphöll eða skipulegur tilboðsmarkaður skal birta opinberlega með viðurkenndum hætti upplýsingar um viðskipti fruminnherja sem eru tilkynningarskyld skv. 33. gr., enda uppfylli viðskiptin eftirtalin skilyrði:
1. Markaðsvirði viðskiptanna nemur a.m.k. einni viðskiptalotu, sbr. 6. tölul. 2. gr.
2. Markaðsvirði eignarhlutar eftir viðskipti samsvari tíu viðskiptalotum.
3. Markaðsvirði eignarhlutar eftir viðskipti fer niður fyrir tíu viðskiptalotur.
![](/lagas/hk.jpg)
Í tilkynningu skv. 1. mgr. skal tilgreina:
1. nafn útgefanda verðbréfa,
2. dagsetningu tilkynningar,
3. nafn fruminnherja,
4. tengsl fruminnherja við útgefanda verðbréfa,
5. dagsetningu og stund viðskipta,
6. tegund verðbréfa,
7. hvort um var að ræða kaup eða sölu,
8. nafnverð og gengi í viðskiptum,
9. nafnverð eignarhlutar fruminnherja og fjárhagslega tengdra aðila eftir viðskipti,
10. dagsetningu lokauppgjörs viðskiptanna.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[35. gr. Fjármálaeftirlitið skal halda skrá yfir innherja skv. a-lið og 1. mgr. b-liðar 5. tölul. 2. gr. í félögum sem skráð eru eða hafa óskað skráningar í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði. Félögin skulu senda Fjármálaeftirlitinu, á því formi sem það ákveður, eftirfarandi upplýsingar:
1. heiti félags,
2. kauphöll eða skipulegan tilboðsmarkað sem félag er skráð á eða hefur óskað skráningar á,
3. nafn, kennitölu og heimilisfang innherja,
4. tengsl innherja við félag,
5. ástæðu skráningar innherja,
6. nöfn aðila sem eru fjárhagslega tengdir innherja.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að kveða nánar á um upplýsingar sem veittar skulu skv. 1. mgr. Allar breytingar á upplýsingum skv. 1. mgr. skulu tilkynntar Fjármálaeftirlitinu samdægurs. Endurskoðaðan lista yfir innherja skal senda Fjármálaeftirlitinu eigi sjaldnar en á sex mánaða fresti.
![](/lagas/hk.jpg)
Upplýsingar skv. 1. og 2. mgr. skulu einnig sendar kauphöll eða skipulegum tilboðsmarkaði þar sem verðbréf félags eru skráð eða óskað hefur verið eftir skráningu þeirra.
![](/lagas/hk.jpg)
Upplýsingar um fruminnherja í innherjaskrá Fjármálaeftirlitsins skulu gerðar opinberar með þeim hætti sem Fjármálaeftirlitið ákveður.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[36. gr. Félög sem tilgreint hafa innherja til Fjármálaeftirlitsins skv. 35. gr. skulu tilkynna viðkomandi innherja um það skriflega. Jafnframt skal tilkynna innherja skriflega þegar hann hefur verið tekinn af skránni.
![](/lagas/hk.jpg)
Félög skulu greina innherjum frá þeim réttarreglum sem gilda um innherja og meðferð trúnaðarupplýsinga.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[37. gr. Stjórn félags sem skráð er í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði, eða félags sem óskað hefur eftir skráningu í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði, skal setja reglur um meðferð trúnaðarupplýsinga og viðskipti innherja. Í reglunum skal m.a. kveðið á um með hvaða hætti skuli komið í veg fyrir að trúnaðarupplýsingar berist til annarra en þarfnast þeirra vegna starfa sinna, hvernig viðskiptum innherja skuli háttað, hver hafi eftirlit með því innan félagsins að reglunum sé framfylgt og skráningu samskipta sem fram fara á grundvelli reglnanna.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn viðkomandi félags skal setja sér reglur skv. 1. mgr. og senda þær Fjármálaeftirlitinu og kauphöll eða skipulegum tilboðsmarkaði þar sem verðbréf félagsins eru skráð eða óskað hefur verið skráningar þeirra. Reglurnar skulu staðfestar af Fjármálaeftirlitinu.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnvöld og aðrir aðilar sem fá reglulega trúnaðarupplýsingar í starfsemi sinni skulu setja sér reglur
1) samkvæmt þessari grein.]
2)
1)
Rgl. 831/2002. 2)L. 163/2000, 7. gr.
[38. gr. Óheimilt er einstaklingum eða lögaðilum að taka þátt í, stuðla að eða hvetja til viðskipta með verðbréf eða annarra aðgerða í því skyni að gefa ranga mynd af umfangi viðskipta með tiltekin verðbréf eða hafa óeðlileg eða óhæfileg áhrif á verðmyndun í verðbréfaviðskiptum.]
1)
1)L. 163/2000, 7. gr.
[[VI. kafli.]1)
Samningsbundið uppgjör afleiðusamninga.]2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 99/2000, 11. gr.
[[39. gr.]1) Ákvæði þessa kafla taka til framvirkra vaxtasamninga, vaxta- og gjaldmiðlavalréttarsamninga, framvirkra vaxta- og gjaldmiðlasamninga, vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamninga og annarra afleiðusamninga með gjaldmiðla og vexti.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur ákveðið með reglugerð að þessi kafli skuli einnig gilda um aðra afleiðusamninga.]
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 99/2000, 11. gr.
[[40. gr.]1) Skriflegur samningur, einn eða fleiri, milli tveggja aðila um að skyldur þeirra samkvæmt samningum þeim sem nefndir eru í [39. gr.]
2) skuli jafnast hver á móti annarri, með skuldajöfnun, við endurnýjun eða við vanefnd, greiðslustöðvun, nauðasamninga eða gjaldþrotaskipti, skal halda gildi sínu að fullu þrátt fyrir ákvæði
91. og
100. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.]
3)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 163/2000, 8. gr. 3)L. 99/2000, 11. gr.
[[41. gr.]1) Tryggingarréttindum vegna samninga sem nefndir eru í [39. gr.]
2) sem sett eru til tryggingar viðskiptum í greiðslujöfnunarstöð í samræmi við þær reglur sem gilda í stöðinni verður ekki rift samkvæmt ákvæði
137. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.]
3)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 163/2000, 8. gr. 3)L. 99/2000, 11. gr.
[VII. kafli.]1)
Eigið fé [fjármálafyrirtækja].2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[42.–43. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[VIII. kafli.]1)
Ársreikningar og endurskoðun.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[44.–48. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[IX. kafli.]1)
Starfsemi innlendra [fjármálafyrirtækja]2) erlendis.
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[49.–52. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[X. kafli.]1)
Starfsemi erlendra [fjármálafyrirtækja]2) hér á landi.
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[53.–56. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[XI. kafli.]1)
Samruni [fjármálafyrirtækja].2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[57.–58. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[XII. kafli.]1)
Slit [fjármálafyrirtækja].2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[59. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[XIII. kafli.]1)
Afturköllun starfsleyfa.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[60.–62. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[XIV. kafli.]1)
Eftirlit.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[63. gr.]1) [Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi [fjármálafyrirtækja]
2) hér á landi, svo og starfsemi innlendra [fjármálafyrirtækja]
2) erlendis, nema annað leiði af lögum eða alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að. Skal Fjármálaeftirlitið hafa aðgang að öllum gögnum og upplýsingum hjá þessum aðilum sem að þess mati eru nauðsynleg vegna eftirlitsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá einstaklingum eða lögaðilum sem eiga eða hyggjast eignast eða fara með eignarhlut í [fjármálafyrirtæki]
2) í því skyni að meta hvort þeir falli undir tilkynningarskyldu skv. 12.–14. gr. og hvort þeir teljist hæfir til að fara með virkan eignarhlut.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá dótturfyrirtækjum eða hlutdeildarfyrirtækjum eða öðrum aðilum sem teljast í nánum tengslum við [fjármálafyrirtæki],
2) enda telji Fjármálaeftirlitið upplýsingarnar nauðsynlegar í eftirliti sínu með viðkomandi [fjármálafyrirtæki].
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Telji Fjármálaeftirlitið að starfsemi samkvæmt lögum þessum sé stunduð án tilskilinna leyfa getur það krafist gagna og upplýsinga hjá viðkomandi aðilum sem nauðsynleg eru til að ganga úr skugga um hvort svo sé. Getur það krafist þess að slíkri starfsemi sé hætt þegar í stað. Jafnframt er því heimilt að birta opinberlega nöfn aðila sem taldir eru bjóða þjónustu án tilskilinna leyfa.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálaeftirlitið getur aflað upplýsinga um framkvæmd útboðs hjá aðila sem býður fram verðbréf í útboði. Telji Fjármálaeftirlitið að ekki hafi verið farið að reglum um almennt útboð verðbréfa getur það stöðvað útboðið og veitt frest til úrbóta, sé þess kostur. Fjármálaeftirlitið getur birt opinberlega yfirlýsingu um umrætt mál og lagt á aðila dagsektir samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.]
3)
![](/lagas/hk.jpg)
Hafi Fjármálaeftirlitið rökstudda ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn ákvæðum [V. kafla]
4) laga þessara skal því heimilt að krefja einstaklinga og lögaðila, þar á meðal opinberar stofnanir, um allar upplýsingar og gögn sem það telur nauðsynleg til rannsóknar málsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Um eftirlit með [fjármálafyrirtækjum]
2) gilda að öðru leyti ákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Heimilt er að beita ákvæðum þeirra laga um dagsektir, stjórnvaldssektir og leit og hald á gögnum við upplýsingaöflun og eftirlit samkvæmt þessari grein.]
5)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr. 3)L. 163/2000, 9. gr. 4)L. 163/2000, 8. gr. 5)L. 11/2000, 14. gr.
[64. gr.]1) Við framkvæmd eftirlits með starfsemi erlendra [fjármálafyrirtækja]
2) hér á landi skal [Fjármálaeftirlitið]
3) hafa samráð við lögbær yfirvöld í heimaríki viðkomandi fyrirtækis í samræmi við lög og alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að.
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr. 3)L. 84/1998, 1. gr.
[XV. kafli.]1)
Ýmis ákvæði.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[65.–67. gr.]1) …
2)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 161/2002, 115. gr.
[68. gr.]1) Viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laga þessara. Honum er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð,
2) þar á meðal um viðurlög í formi dagsekta.
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)Rg. 506/2000.
[XVI. kafli.]1)
Viðurlög.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[69. gr.]1) Brot gegn lögum þessum varða sektum eða fangelsi allt að einu ári, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum hegningarlögum. Sé brot framið í þágu lögaðila er heimilt að beita stjórnendur lögaðilans framangreindum viðurlögum og einnig er heimilt að gera lögaðilanum sekt og sviptingu starfsréttinda.
![](/lagas/hk.jpg)
Brot gegn ákvæðum [V. kafla]
2) varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Jafnframt er heimilt að gera upptækan með dómi beinan eða óbeinan hagnað sem hlotist hefur með broti gegn ákvæðum [V. kafla].
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Tilraun til og hlutdeild í brotum á lögum þessum eru refsiverðar eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.
![](/lagas/hk.jpg)
[Brot gegn lögum þessum varða refsingu hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi.]
3)
1)L. 163/2000, 7. gr. 2)L. 163/2000, 8. gr. 3)L. 39/2002, 2. gr.
[XVII. kafli.]1)
Gildistaka og brottfallin lög.
1)L. 163/2000, 7. gr.
[70. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi. …
1)L. 163/2000, 7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …