Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. mars 2004. Útgáfa 130a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði]1)
1989 nr. 92 1. júní
1)L. 15/1998, 36. gr.
Tóku gildi 1. júlí 1992. Breytt með l. 91/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992), l. 92/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992 nema 103. gr. sem tók gildi 9. jan. 1992), l. 133/1993 (tóku gildi 1. jan. 1994; EES-samningurinn: V. viðauki tilskipun 64/221/EBE, VII. viðauki tilskipun 67/43/EBE, V. viðauki tilskipun 68/360/EBE og 72/194/EBE, VIII. viðauki tilskipun 73/148/EBE, 75/34/EBE og 75/35/EBE, VII. viðauki tilskipun 77/249/EBE og 89/48/EBE, VIII. viðauki tilskipun 90/364/EBE, 90/365/EBE og 90/366/EBE), l. 80/1995 (tóku gildi 1. júní 1995), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 15/1998 (tóku gildi 1. júlí 1998 nema 38. gr. sem tók gildi 3. apríl 1998) og l. 95/1999 (tóku gildi 1. jan. 2000).
[1. gr.]1) Sýslumenn fara, hver í sínu umdæmi, með stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Þar á meðal fara þeir með lögreglustjórn, tollstjórn og innheimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún er ekki falin öðrum, sbr. þó [3. gr.] 1)
1)L. 15/1998, 36. gr.
[2. gr.]1) Landið skiptist í [25] 2) stjórnsýsluumdæmi auk Reykjavíkurumdæmis, sem nær yfir Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ … 2) og Kjósarhrepp. Aðsetur sýslumanna eru sem hér segir: 1. Reykjavík, 2. Akranes, 3. Borgarnes, 4. Stykkishólmur, 5. Búðardalur, 6. Patreksfjörður, 7. Bolungarvík, 8. Ísafjörður, 9. Hólmavík, 10. Blönduós, 11. Sauðárkrókur, 12. Siglufjörður, 13. Ólafsfjörður, 14. Akureyri, 15. Húsavík, 16. Seyðisfjörður, 17. … 2) 18. Eskifjörður, 19. Höfn í Hornafirði, 20. Vík í Mýrdal, 21. Hvolsvöllur, 22. Vestmannaeyjar, 23. Selfoss, 24. Keflavík, 25. Keflavíkurflugvöllur, 26. Hafnarfjörður, 27. Kópavogur. Umdæmi sýslumanna skv. 2.–27. tölul. skulu ákveðin með reglugerð 3) að fenginni umsögn viðkomandi sýslumanna og sveitarstjórna.
Eigi má fækka stjórnsýsluumdæmum eða taka upp ný nema með lögum.
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 95/1999, 1. gr. 3)Rg. 57/1992, sbr. 500/1996, 74/1998, 102/2001 og 802/2003.
[3. gr.]1) Með þau verkefni, sem sýslumönnum eru falin í öðrum umdæmum, fara lögreglustjórinn í Reykjavík, tollstjórinn í Reykjavík og sýslumaðurinn í Reykjavík sem hér segir:
1. Lögreglustjórinn í Reykjavík fer með lögreglustjórn, þar á meðal útlendingaeftirlit, ásamt þeim störfum sem honum eða lögreglustjórum eru almennt falin með fyrirmælum einstakra laga.
2. Tollstjórinn í Reykjavík fer með tollstjórn, innheimtu tekna ríkissjóðs, að því leyti sem hún er ekki sérstaklega falin öðrum, og lögskráningu skipshafna, auk starfa samkvæmt fyrirmælum einstakra laga.
3. Með önnur störf en þau, sem falla innan marka 1. og 2. tölul., fer sýslumaðurinn í Reykjavík.
Dómsmálaráðherra sker að öðru leyti úr um hvaða verkefni heyri undir einstök embætti skv. 1. mgr.
1)L. 15/1998, 36. gr.
[4. gr.]1) Sýslumaður skal hafa skrifstofur í umdæmi sínu eftir því sem dómsmálaráðherra kveður á um hverju sinni og fé er veitt til á fjárlögum. 2)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)Rg. 57/1992.
[5. gr.]1) [Ráðherra skipar sýslumenn til fimm ára í senn.] 2) Málefni sýslumanna eiga undir dómsmálaráðherra.
Engan má skipa sýslumann, nema hann fullnægi [almennum skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara, öðrum en um lágmarksaldur]. 1)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 83/1997, 27. gr.
[6. gr.]1) Sýslumenn hafa yfirumsjón og ábyrgð á rekstri embætta sinna.
Dómsmálaráðherra getur að tillögu sýslumanns kveðið á um skiptingu sýslumannsembættis í starfsdeildir eftir verkefnum. Heimilt er að [ráða] 2) sérstaka deildarstjóra sem veita viðkomandi starfsdeildum forstöðu á ábyrgð sýslumanns. Ef starfsdeildir við sýslumannsembætti eru fleiri en ein skal einn deildarstjóra teljast staðgengill sýslumanns, enda fullnægi hann hæfisskilyrðum til skipunar í sýslumannsembætti.
Við sýslumannsembætti skal auk sýslumanns vera það starfslið sem [sýslumaður] 2) telur þörf á. Um hæfisskilyrði löglærðra fulltrúa sýslumanns gilda [sömu reglur og um sýslumenn að öðru leyti en um starfsreynslu]. 1)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 83/1997, 28. gr.
… 1)
1)L. 15/1998, 36. gr.
[7. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1992.
… 2)
1)L. 15/1998, 36. gr. 2)L. 92/1991, 103. gr.
… 1)
1)L. 91/1991, 161. gr. og l. 15/1998, 36. gr.