Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2005. Útgáfa 131b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Fiskistofu
1992 nr. 36 27. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 10. júní 1992; komu til framkvæmda 1. september 1992. Breytt með l. 92/1992 (tóku gildi 1. jan. 1993), l. 144/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.) og l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997).
I. kafli.
1. gr. Fiskistofa skal starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði sjávarútvegsmála, svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Fiskistofa heyrir undir sjávarútvegsráðherra.
2. gr. Fiskistofa skal annast framkvæmd laga um stjórn fiskveiða og eftirlit með fiskveiðum, svo sem nánar er kveðið á um í lögum um það efni. [Þá skal Fiskistofa hafa með hendi eftirlit með meðferð fisks og framleiðslu sjávarafurða.] 1) Fiskistofa skal annast söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á sviði sjávarútvegsmála sem og önnur verkefni sem stofunni verða falin með lögum eða ákvörðun ráðherra.
1)L. 92/1992, 1. gr.
3. gr. [Ráðherra skipar forstöðumann Fiskistofu, fiskistofustjóra, til fimm ára í senn.] 1)
Sjávarútvegsráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um skipulag og starfsemi Fiskistofu.
1)L. 83/1997, 144. gr.
4. gr. [Fiskistofa getur með heimild ráðherra, og að höfðu samráði við Hagstofu Íslands, falið öðrum tiltekna þætti við söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á sviði sjávarútvegs.] 1)
1)L. 144/1995, 15. gr.
II. kafli. …
III. kafli.
13. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 1992. …