Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2007. Útgáfa 133a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um félagslega aðstoð
1993 nr. 118 23. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1994. Breytt með l. 148/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995), l. 144/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.), l. 152/1995 (tóku gildi 29. des. 1995), l. 92/1997 (tóku gildi 1. sept. 1997), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 60/1999 (tóku gildi 1. júlí 1999), l. 93/2001 (tóku gildi 1. júlí 2001), l. 74/2002 (tóku gildi 17. maí 2002; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 36. gr.), l. 76/2003 (tóku gildi 1. nóv. 2003) og l. 91/2004 (tóku gildi 2. júlí 2004).
1. gr. [Bætur félagslegrar aðstoðar eru mæðra- og feðralaun, barnalífeyrir vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18–20 ára, umönnunargreiðslur, makabætur, umönnunarbætur, dánarbætur, endurhæfingarlífeyrir, heimilisuppbót, frekari uppbætur, uppbót vegna kaupa á bifreið, uppbót vegna reksturs bifreiðar og endurgreiðsla umtalsverðs kostnaðar við læknishjálp og lyf.] 1)
Bætur félagslegrar aðstoðar greiðast eingöngu þeim sem lögheimili eiga hér á landi, sbr. 1. gr. laga um lögheimili, og að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna og reglugerða sem settar eru með stoð í þeim. Þar er heimilt að tengja greiðslu bótanna við tekjur [aðrar en húsaleigubætur, eftir því sem við á]. 2)
[Tryggingastofnun ríkisins greiðir bætur samkvæmt lögum þessum.] 1)
Kostnaður við bætur félagslegrar aðstoðar greiðist úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun fjárlaga og fjáraukalaga hverju sinni.
1)L. 91/2004, 26. gr. 2)L. 148/1994, 17. gr.
2. gr. Mæðra- og feðralaun.
Heimilt er að greiða mæðra- og feðralaun til einstæðra foreldra sem hafa börn sín undir 18 ára aldri á framfæri og [eru búsett] 1) hér á landi. Ráðherra setur með reglugerð 2) nánari ákvæði um greiðslu mæðra- og feðralauna. Þar er einnig heimilt að skilyrða greiðslu mæðra- og feðralauna við að meðlagsúrskurður hafi verið kveðinn upp eða fyrir liggi staðfest samkomulag um greiðslu framfærslueyris.
[Árleg mæðra- og feðralaun skulu vera sem hér segir:
Með tveimur börnum | 37.728 kr. | |
Með þremur börnum eða fleiri | 98.088 kr. | ]3) |
Mæðra- og feðralaun falla niður einu ári eftir að viðtakandi launanna skráir sig í þjóðskrá í óvígða sambúð með öðrum en foreldri barnsins eða barnanna, sbr. og 44. gr. laga um almannatryggingar. Nú skráir viðtakandi launanna sig í óvígða sambúð með foreldri barnsins eða barnanna, fyrrverandi sambýlisaðila eða gengur í hjúskap og falla þá launin strax niður.
1)L. 60/1999, 18. gr. 2)Rg. 540/2002. 3)L. 144/1995, 40. gr. 4)L. 91/2004, 27. gr.
3. gr. Barnalífeyrir.
[Tryggingastofnun] 1) ríkisins er heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18–20 ára ef annað foreldri eða báðir foreldrar eru látnir, enn fremur ef foreldrar eru ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Samkvæmt málsgrein þessari greiðist eingöngu einfaldur barnalífeyrir. [Tryggingastofnun.] 1) metur sönnun um skólavist og starfsþjálfun. Skilyrði er að námið og þjálfunin taki a.m.k. sex mánuði hvert ár. Ef um er að ræða óreglulegt nám eða námskeið skal námstími reiknaður í kennslustundafjölda á almanaksárinu og telst þá sex mánaða nám samsvara 624 kennslustundum. Brot úr mánuði telst heill mánuður. Ungmennið sjálft sækir um barnalífeyri samkvæmt þessari málsgrein. [Tryggingastofnun] 1) getur frestað afgreiðslu barnalífeyris þar til sex mánaða námstíma er náð. [Nú verður úrskurði skv. [1. mgr. 62. gr.] 2) barnalaga eigi við komið vegna efnaleysis foreldris eða ekki tekst að hafa uppi á því og er þá heimilt að greiða barnalífeyri með ungmenni er stundar sannanlegt nám, í samræmi við þessa málsgrein … 1) Tryggingastofnun getur krafist framlagningar skattframtala með umsóknum um barnalífeyri. Heimilt er að greiða barnalífeyri með ungmenni er stundar sannanlegt nám … 1) ef ljóst er að ungmenninu er ókleift að innheimta greiðslur samkvæmt úrskurði á grundvelli [1. mgr. 62. gr.] 2) barnalaga. [Við ákvörðun á rétti] 1) til barnalífeyris samkvæmt framansögðu er heimilt að líta til efnahags barns og annarra tekna sem það hefur.] 3)
[Ráðherra setur reglugerð 4) um nánari framkvæmd greinarinnar.] 1)
1)L. 91/2004, 28. gr. 2)L. 76/2003, 82. gr. 3)L. 60/1999, 19. gr. 4) Rgl. 140/2006.
4. gr. Umönnunargreiðslur.
[Tryggingastofnun er heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna, sem dveljast í heimahúsi eða á sjúkrahúsi, allt að 53.840 kr. á mánuði og/eða taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hefur í för með sér tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu. Heimilt er að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda barna með alvarleg þroskafrávik, sem jafna má við fötlun, og barna með alvarleg hegðunarvandamál sem jafna má við geðræna sjúkdóma. [Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að hækka umönnunargreiðslur um allt að 25% … 1)] 2)
Almenn leikskóla- og skólaþjónusta skerðir ekki umönnunargreiðslur. Önnur dagleg, sértæk þjónusta og vistun utan heimilis, þar með talin umtalsverð skammtímavistun, skerðir umönnunargreiðslur. Tryggingalæknar meta þörf samkvæmt ákvæði þessu.
[Ráðherra setur reglugerð 3) um nánari framkvæmd greinarinnar.] 1)] 4)
1)L. 91/2004, 29. gr. 2)L. 60/1999, 20. gr. 3)Rg. 504/1997, sbr. 229/2000, 130/2001, 519/2002, 77/2005 og 1108/2006. Rgl. 263/2000. 4)L. 92/1997, 1. gr.
5. gr. [Makabætur og umönnunarbætur.]1)
Heimilt er, ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, að greiða maka elli- eða örorkulífeyrisþega makabætur sem eru allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu almannatrygginga. [Jafnframt er heimilt, ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, að greiða öðrum sem halda heimili með elli- eða örorkulífeyrisþega umönnunarbætur. Ráðherra setur nánari reglur 2) um framkvæmd þessa ákvæðis.] 1)
1)L. 74/2002, 24. gr. 2) Rgl. 407/2002.
6. gr. Dánarbætur.
Heimilt er að greiða hverjum þeim, sem … 1) verður ekkja eða ekkill innan 67 ára aldurs, bætur í sex mánuði eftir lát maka, 15.448 kr. á mánuði.
[Ef hlutaðeigandi er með barn yngra en 18 ára á framfæri eða við aðrar sérstakar aðstæður er heimilt að greiða bætur í a.m.k. 12 mánuði til viðbótar en þó aldrei lengri tíma en 48 mánuði, 12.139 kr. á mánuði.] 2)
1)L. 60/1999, 21. gr. 2)L. 144/1995, 41. gr.
7. gr. … 1)
1)L. 144/1995, 42. gr.
8. gr. Endurhæfingarlífeyrir.
Heimilt er þegar ekki verður séð hver örorka einstaklings verður til frambúðar eftir sjúkdóma eða slys að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að tólf mánuði eftir að greiðslu sjúkra- eða slysadagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar lýkur eða þar til unnt er að meta varanlega örorku, þó aldrei lengur en í 18 mánuði. Skilyrði er að viðkomandi gangist undir greiningu eða meðferð á sjúkrastofnun eða utan slíkrar stofnunar … 1) Endurhæfingarlífeyrir skal nema sömu fjárhæð og grunnlífeyrir örorkulífeyris ásamt tekjutryggingu. [Um aðrar tengdar bætur fer eftir sömu reglum sem um elli- og örorkulífeyri.] 2) Sjúkrahúsvist í greiningar- og endurhæfingarskyni skerðir ekki bótagreiðslur.
[Heimilt er að setja reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar.] 1)
1)L. 91/2004, 30. gr. 2)L. 152/1995, 1. gr.
9. gr. Heimilisuppbót …1)
Heimilt er að greiða einhleypingi, sem nýtur óskertrar tekjutryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar og er einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað, að auki heimilisuppbót, 7.711 kr. á mánuði. Eigi viðkomandi rétt á skertri tekjutryggingu samkvæmt lögum um almannatryggingar skal lækka heimilisuppbótina eftir sömu reglum.
… 1)
1)L. 93/2001, 5. gr.
10. gr. Frekari uppbætur.
Heimilt er að greiða frekari uppbætur til elli- og örorkulífeyrisþega ef sýnt þykir að lífeyrisþegi geti ekki framfleytt sér án þess.
11. gr. Bifreiðakostnaður.
Heimilt er að greiða til elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og [umönnunargreiðsluþega] 1) uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega er nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt er að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar.
Sama gildir um rekstur bifreiðar eigi í hlut elli- eða örorkulífeyrisþegi og örorkustyrkþegar.
1)L. 91/2004, 31. gr.
12. gr. Endurgreiðsla umtalsverðs kostnaðar við læknishjálp og lyf.
Nú verða útgjöld sjúkratryggðs vegna læknishjálpar og lyfja umtalsverð og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að endurgreiða hlutaðeigandi þennan kostnað að hluta eða að fullu að teknu tilliti til tekna … 1)
[Ráðherra setur reglugerð 2) um nánari framkvæmd greinarinnar.] 1)
1)L. 91/2004, 32. gr. 2)Rg. 355/2005.
[13. gr. Þeir sem njóta þjónustu dagvistar samkvæmt lögum um málefni aldraðra skulu taka þátt í kostnaði af dagvistinni að hámarki sem nemur óskertum grunnlífeyri einstaklings samkvæmt lögum um almannatryggingar. Heimilt er Tryggingastofnun ríkisins að greiða kostnað vegna þjónustu dagvistar fyrir aldraða, sbr. 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, umfram greiðslur skv. 1. málsl. þessarar greinar.] 1)
1)L. 74/2002, 25. gr.
[14. gr. Ef greiðsla samkvæmt lögum þessum er grundvölluð á tekjum umsækjanda eða bótaþega skulu þær ákveðnar skv. 10. gr. laga nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum. Einnig skal beita 47. og 50. gr. laga um almannatryggingar vegna upplýsinga um tekjur, þagmælsku starfsmanna Tryggingastofnunar ríkisins og endurheimtu á ofgreiddum bótum.] 1)
1)L. 74/2002, 25. gr.
[15. gr.]1) [Ákvæði laga um almannatryggingar gilda um bætur félagslegrar aðstoðar eftir því sem við á, m.a. um kærurétt til úrskurðarnefndar almannatrygginga og um hækkun bóta.] 2)
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra getur með reglugerð 3) sett frekari ákvæði um greiðslu félagslegrar aðstoðar samkvæmt lögum þessum.
1)L. 74/2002, 25. gr. 2)L. 60/1999, 22. gr. 3)Rg. 595/1997, sbr. 161/1999, 442/2001, 890/2002, 235/2003, 990/2003 og 95/2006; rg. 752/2002, sbr. 109/2003 og 462/2004; rg. 179/2003, rg. 939/2003, sbr. 860/2004, 916/2005, 1063/2005 og 917/2006; rg. 1002/2004, rg. 638/2006, rg. 640/2006, rg. 1073/2006, rg. 1075/2006.
[16. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1994.
1)L. 74/2002, 25. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. Konur, sem fá greiddan ekkjulífeyri 31. desember 1995, skulu fá ekkjulífeyri greiddan til 67 ára aldurs enda uppfylli þær skilyrði fyrir greiðslu ekkjulífeyris sem giltu fyrir 1. janúar 1996. Greiðsla ekkjulífeyris til þessa hóps skal vera í samræmi við reglur um greiðslu ekkjulífeyris sem giltu fyrir 1. janúar 1996.] 1)
1)L. 144/1995, 43. gr.