Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2010. Útgáfa 138b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands
2010 nr. 77 25. júní
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 2010.
1. gr. Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands skulu sameinast í eina ríkisstofnun er nefnist Þjóðskrá Íslands.
![](/lagas/hk.jpg)
Dómsmála- og mannréttindaráðherra fer með framkvæmd laga þessara.
2. gr. Þjóðskrá Íslands er ábyrgðaraðili að almannaskráningu og skal fylgja lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, þar á meðal um öryggi gagna, fræðslu og tilkynningarskyldu. Halda skal gagnagrunnum er lúta að almannaskráningu aðskildum frá öðrum skrám ábyrgðaraðila. Þó eru heimilar samkeyrslur til uppfærslna á heimilisföngum. Aðra vinnslu skal tilkynna til Persónuverndar.
3. gr. Hlutverk stjórnar skv.
9. gr. laga nr. 6/2001 helst óbreytt. Starfssvið stjórnar nær þó ekki til starfsemi Þjóðskrár Íslands sem fellur undir
lög nr. 54/1962 eða annarra laga um starfsemi Þjóðskrár.
4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2010.
![](/lagas/hk.jpg)
Við gildistöku laga þessara tekur Þjóðskrá Íslands, sbr. 1. gr., við eignum og skuldbindingum Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. Sama gildir um ónýttar fjárheimildir eða skuldir beggja aðila í fjárlögum fyrir árið 2010.
5. gr. …
Ákvæði til bráðabirgða.
![](/lagas/hk.jpg)
Starfsmenn Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands, sem eru í starfi við gildistöku laga þessara, verða starfsmenn Þjóðskrár Íslands með sömu starfskjörum og áður giltu. Um rétt starfsmanna til starfa hjá Þjóðskrá Íslands fer eftir ákvæðum
laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Ákvæði
7. gr. laga nr. 70/1996 gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.