Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands
2010 nr. 77 25. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 2010. Breytt með l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands skulu sameinast í eina ríkisstofnun er nefnist Þjóðskrá Íslands.
[Ráðherra] 1) fer með framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 530. gr.
2. gr. Þjóðskrá Íslands er ábyrgðaraðili að almannaskráningu og skal fylgja lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, þar á meðal um öryggi gagna, fræðslu og tilkynningarskyldu. Halda skal gagnagrunnum er lúta að almannaskráningu aðskildum frá öðrum skrám ábyrgðaraðila. Þó eru heimilar samkeyrslur til uppfærslna á heimilisföngum. Aðra vinnslu skal tilkynna til Persónuverndar.
3. gr. Hlutverk stjórnar skv. 9. gr. laga nr. 6/2001 helst óbreytt. Starfssvið stjórnar nær þó ekki til starfsemi Þjóðskrár Íslands sem fellur undir lög nr. 54/1962 eða annarra laga um starfsemi Þjóðskrár.
4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2010.
Við gildistöku laga þessara tekur Þjóðskrá Íslands, sbr. 1. gr., við eignum og skuldbindingum Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. Sama gildir um ónýttar fjárheimildir eða skuldir beggja aðila í fjárlögum fyrir árið 2010.
5. gr. …
Ákvæði til bráðabirgða.
Starfsmenn Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands, sem eru í starfi við gildistöku laga þessara, verða starfsmenn Þjóðskrár Íslands með sömu starfskjörum og áður giltu. Um rétt starfsmanna til starfa hjá Þjóðskrá Íslands fer eftir ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.