Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 11. september 2012. Útgáfa 140b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta1)
1985 nr. 24 28. maí
1)Lögin falla brott 1. jan. 2013 skv. l. 34/2012, 33. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 14. júní 1985. Breytt með l. 41/2007 (tóku gildi 1. sept. 2007), l. 12/2008 (tóku gildi 1. apríl 2008), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. Lög þessi taka til starfsheita og starfsréttinda þeirra heilbrigðisstétta sem sérlög gilda ekki um og [ráðherra] 1) ákveður hverju sinni að fella undir lögin, sbr. 2. gr.
Sé um að ræða heilbrigðisstéttir sem lokið hafa viðurkenndu námi fyrir tæknimenntað starfsfólk við lækningar skal nota orðið heilbrigðistæknir í lögum þessum sem sameiginlegt starfsheiti þeirra.
1)L. 126/2011, 105. gr.
2. gr. Rétt til þess að starfa hér á landi sem starfsmaður heilbrigðisstétta samkvæmt lögum þessum hefur sá einn sem lokið hefur prófi í einhverri grein heilbrigðisfræði og fengið [starfsleyfi landlæknis] 1) að loknu námi.
Ráðherra setur [reglugerð 2)] 1) með nánari ákvæðum um nám og menntunarskilyrði fyrir hverja stétt er hann ákveður að fella undir þessi lög, að fengnum tillögum viðkomandi starfsstétta og umsögn landlæknis. Ráðherra er heimilt að setja sem skilyrði fyrir fullu starfsleyfi að viðkomandi sé íslenskur ríkisborgari.
Í þeim tilvikum, þar sem um er að ræða fólk er starfað hefur í starfsgrein án þess að hafa tilskilda starfsmenntun, skal ætíð leita umsagnar viðkomandi starfsstéttar … 1) áður en leyfi er veitt.
Gerist Ísland aðili að milliríkjasamningi um gagnkvæma viðurkenningu á starfsréttindum heilbrigðisstétta er undir lög þessi falla skal fara eftir ákvæðum þessarar greinar eftir því sem við getur átt og samrýmst viðkomandi milliríkjasamningi.
1)L. 12/2008, 83. gr. 2)Rg. 186/1976, sbr. 445/1979 og 966/2008 (lífeindafræðingar). Rg. 199/1983, sbr. 379/1992, 395/1992 og 966/2008 (lyfjatæknar). Rg. 504/1986, sbr. 39/1989 og 966/2008 (sjúkraflutningamenn). Rg. 161/1987, sbr. 162/1988, 325/1991 og 966/2008 (læknaritarar). Rg. 204/1987, sbr. 285/1989 og 966/2008 (sjúkranuddarar). Rg. 215/1987, sbr. 966/2008 (þroskaþjálfar). Rg. 432/1987, sbr. 163/1988, 418/1989 og 966/2008 (matvælafræðingar). Rg. 618/1987, sbr. 480/1988 og 966/2008 (talmeinafræðingar). Rg. 638/1987, sbr. 966/2008 og 649/2009 (tannfræðingar). Rg. 27/1989, sbr. 374/1993 og 966/2008 (matartæknar). Rg. 60/1990, sbr. 966/2008 (hnykkjar). Rg. 184/1991, sbr. 966/2008 (fótaaðgerðarfræðingar). Rg. 272/1991, sbr. 966/2008 (náttúrufræðingar). Rg. 259/1998, sbr. 966/2008 (tanntæknar). Rg. 185/2001, sbr. 966/2008 (geislafræðingar). Rg. 145/2003, sbr. 966/2008 (sjúkraþjálfarar). Rg. 229/2005, sbr. 966/2008 (osteópatar). Rg. 873/2006, sbr. 966/2008 (næringarrekstrarfræðingar á heilbrigðisstofnunum). Rg. 974/2006, sbr. 966/2008 (áfengis- og vímuefnaráðgjafar). Rg. 50/2007, sbr. 966/2008 (næringarfræðingar). Rg. 51/2007, sbr. 966/2008 (næringarráðgjafar). Rg. 460/2007, sbr. 966/2008 (stoðtækjafræðingar).
3. gr. [Rétt til þess að nota hér á landi starfsheiti sem [ráðherra] 1) ákveður að fella undir lög þessi, sbr. 2. gr., hafa þeir einir sem hlotið hafa til þess starfsleyfi landlæknis.] 2)
1)L. 162/2010, 58. gr. 2)L. 12/2008, 84. gr.
4. gr. Þær stéttir, er falla undir lög þessi, starfa við heilbrigðisstofnanir, kennslustofnanir heilbrigðisstétta eða matvælastofnanir. Starfa þær ýmist á eigin ábyrgð eða undir handleiðslu og á ábyrgð læknis eða annars sérfræðings á viðkomandi sviði.
5. gr. Óheimilt er að ráða til þeirra starfa, sem undir þessi lög heyra, aðra en þá sem [landlæknir hefur veitt starfsleyfi] 1) samkvæmt lögum þessum og reglugerðum sem settar kunna að verða samkvæmt þeim.
1)L. 12/2008, 85. gr.
6. gr. [Um eftirlit með þeim starfsstéttum sem falla undir lög þessi, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt lögum þessum og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.
Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um þær starfsstéttir sem falla undir lög þessi og um refsingar fyrir brot í starfi.] 1)
1)L. 41/2007, 24. gr.
7. gr. Auk þeirra reglna, sem kveðið er á um í 2. gr., getur ráðherra sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara.
8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …
[Ákvæði til bráðabirgða. Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt lögum þessum fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. gr. laganna.] 1)
1)L. 12/2008, 86. gr.