Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 11. september 2012. Útgáfa 140b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um dýravernd
1994 nr. 15 16. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 1994. Breytt með l. 73/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 90/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 123/2005 (tóku gildi 30. des. 2005; EES-samningurinn: II. viðauki tilskipun 76/768/EBE), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 165/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
I. kafli. Gildissvið laganna.
1. gr. Lög þessi taka til allra dýra, en þó einkum til þeirra sem eru í vörslu eða umsjón manna.
Um meðferð og aðbúnað einstakra búfjártegunda skal jafnframt fara að fyrirmælum laga og reglugerða þar að lútandi.
II. kafli. Meðferð dýra, vistarverur og umhirða.
2. gr. Skylt er að fara vel með öll dýr. Óheimilt er að hrekkja dýr eða meiða. Forðast skal að ofbjóða kröftum þeirra og þoli.
3. gr. Eigendum eða umráðamönnum dýra ber að sjá þeim fyrir viðunandi vistarverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu.
Tryggja skal dýrum eðlilegt frelsi til hreyfingar samkvæmt viðurkenndri reynslu og þekkingu. Koma skal í veg fyrir hávaða þar sem dýr eru höfð í vörslu.
Eigendur og umráðamenn dýra skulu fylgjast með heilsu þeirra og gera viðhlítandi ráðstafanir til að koma megi í veg fyrir vanlíðan dýranna. Sérstakt eftirlit skal haft með dýrum sem haldin eru á tæknivæddum stórbúum, sbr. 7. gr. laga nr. 46/1991, um búfjárhald, og sérákvæði í reglugerðum um einstakar búfjártegundir.
4. gr. Að vetri til, þegar búfé er haldið til beitar eða látið liggja við opið, skal sjá til þess að á staðnum sé húsaskjól eða annað öruggt og hentugt skjól í öllum veðrum. Einnig skal vera þar nægilegt fóður og vatn og litið skal eftir búfénu reglulega en daglega eða oftar ef nauðsyn krefur að mati forðagæslumanns, ráðunautar eða dýralæknis. Heimilt er sveitarstjórn, að fengnum tillögum [Umhverfisstofnunar] 1) eða héraðsdýralæknis, að banna dýrahald á tilteknum stöðum að vetri til séu fyrrgreind skilyrði ekki uppfyllt.
1)L. 164/2002, 2. gr.
5. gr. [Ráðherra] 1) setur í reglugerð, 2) í samráði við [þann ráðherra er fer með málefni er varða velferð dýra og aðbúnað búfjár], 1) nánari fyrirmæli um vistarverur og aðbúnað dýra. Þar skal m.a. setja skilyrði fyrir eða bann við innilokun dýra í búrum eða þröngum stíum og tjóðrun þeirra til langframa.
Þegar búfé á í hlut skal einnig fara að reglum settum samkvæmt lögum um búfjárhald.
1)L. 126/2011, 184. gr. 2)Rg. 1077/2004.
6. gr. Einungis má nota í keppni dýr sem eru heilbrigð og vel þjálfuð. Óheimilt er að nota hormón, deyfilyf eða hliðstæð efni til að hafa áhrif á afkastagetu dýra í keppni.
7. gr. Eyrnamarka skal dýr sem yngst og á þann hátt að valdi sem minnstum sársauka. Óheimilt er að eyrnamarka fullvaxið dýr án deyfingar.
8. gr. Ökumenn skulu sýna dýrum á vegum fyllstu tillitssemi. Verði dýr fyrir ökutæki ber stjórnanda þess skylda til að ganga úr skugga um hversu alvarlegt slysið er og gera viðhlítandi ráðstafanir, þar á meðal þær sem greindar eru í 9. gr., eftir því sem við á.
9. gr. Verði maður var við að dýr sé sjúkt, lemstrað eða bjargarlaust að öðru leyti ber honum að veita því umönnun eftir föngum. Gera skal lögreglu eða dýralækni viðvart eins fljótt og unnt er. Náist ekki til þeirra og ætla má að sjúkdómur dýrs eða meiðsl séu banvæn er heimilt að deyða dýrið og tilkynna það síðan til lögreglu.
10. gr. Ef dýr strjúka eða sleppa úr haldi skulu eigendur eða umráðamenn þeirra þegar gera ráðstafanir til að handsama þau. Lögreglan getur tekið slík dýr í vörslu sína. Ef eigandi gefur sig fram skal hann greiða áfallinn kostnað. Hafi dýrsins ekki verið vitjað innan einnar viku skal því ráðstafað til nýs ábyrgs eiganda, það selt fyrir áföllnum kostnaði eða aflífað.
Þegar búfé á í hlut skal fara að lögum um búfjárhald, reglum laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. og lögum um varnir gegn smitandi búfjársjúkdómum.
11. gr. Við flutning á dýrum skal þess gætt að útbúnaður farartækis sé góður og við hæfi hverju sinni og að gott eftirlit sé með dýrunum meðan á flutningi stendur.
[[Ráðherra] 1) er heimilt að setja í reglugerð 2) nánari fyrirmæli um flutning á dýrum öðrum en búfé að höfðu samráði við Matvælastofnun.] 3)
1)L. 126/2011, 184. gr. 2)Rg. 1077/2004. 3)L. 167/2007, 28. gr.
III. kafli. Dýrahald í atvinnuskyni, annað en í landbúnaði.
12. gr. [Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni sem ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf leyfi Umhverfisstofnunar til að setja á stofn dýragarða, halda dýrasýningar og efna til dýrahappdrættis. Heimilt er Umhverfisstofnun að taka gjald fyrir útgáfu leyfisins. Gjaldið má ekki vera hærra en sem nemur kostnaði við útgáfu leyfisins. Ráðherra setur að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar gjaldskrá um útgáfu leyfa samkvæmt ákvæði þessu.] 1)
Leyfi [ráðherra] 2) þarf til að handsama villt dýr fyrir dýragarða eða önnur söfn lifandi dýra.
[Ráðherra] 2) setur í reglugerð 3) nánari fyrirmæli um leyfisveitingar skv. 1. og 2. mgr., þar á meðal að leyfi megi binda þeim skilyrðum sem nauðsynleg þykja til að tryggja góða meðferð dýranna, svo sem aðbúnað þeirra, umhirðu, viðhlítandi vistarverur og eftirlit með starfseminni. Undanþegnar eru sýningar samkvæmt búfjárræktarlögum.
1)L. 164/2002, 3. gr. 2)L. 126/2011, 184. gr. 3)Rg. 1077/2004.
IV. kafli. Aðgerðir á dýrum og aflífun.
13. gr. Dýralæknum einum er heimilt að framkvæma læknisaðgerðir á dýrum. Undanþegnar eru þó minni háttar aðgerðir og lyfjameðferð í samráði við dýralækni.
Dýralæknum einum er heimilt að gelda dýr en [Matvælastofnun] 1) getur þó í undantekningartilvikum veitt þjálfuðum mönnum leyfi til geldinga.
Þegar aðgerð á dýrum er sársaukafull skal ávallt nota deyfilyf eða svæfa dýrið.
[Ráðherra] 2) setur í reglugerð 3) nánari fyrirmæli sem takmarka aðgerðir á dýrum sem framkvæmdar eru án læknisfræðilegra ástæðna.
1)L. 167/2007, 76. gr. 2)L. 126/2011, 184. gr. 3)Rg. 526/2001.
14. gr. Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og eftir því sem unnt er án þess að önnur dýr verði þess vör.
Dýr skulu ávallt svipt meðvitund áður en blóðtæming fer fram. [[Ráðherra] 1) er heimilt, að höfðu samráði við Matvælastofnun, að setja í reglugerð nánari fyrirmæli um hvernig staðið skuli að aflífun dýra annarra en búfjár.] 2)
1)L. 126/2011, 184. gr. 2)L. 167/2007, 29. gr.
V. kafli. Dýraveiðar.
15. gr. Ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka. Skylt er veiðimönnum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa dýr sem þeir hafa veitt áverka.
Við dýraveiðar skal að auki fara að fyrirmælum gildandi laga um vernd, friðun og veiðar dýra.
VI. kafli. Tilraunir á dýrum.
16. gr. Óheimilt er að nota lifandi dýr við kennslu, tilraunir, rannsóknir, framleiðslu eða prófun efna eða lyfja og við sjúkdómsgreiningu nema með sérstöku leyfi tilraunadýranefndar ef slíkri notkun fylgir álag eða þjáning fyrir dýrið. [Óheimilt er að nota lifandi dýr við prófun á snyrtivörum.] 1)
Einungis má nota lifandi dýr í tilraunum ef ekki eru þekktar aðrar leiðir til að ná sambærilegum árangri.
[Ráðherra] 2) skipar tilraunadýranefnd til fjögurra ára í senn. Einn fulltrúi er skipaður án tilnefningar og skal hann hafa lokið háskólanámi og hafa þekkingu og reynslu á sviði dýratilrauna og einn fulltrúi er skipaður af Rannsóknastofnun í siðfræði. Auk þeirra á yfirdýralæknir sæti í nefndinni og er hann formaður hennar.
[Hlutverk tilraunadýranefndar er að taka til afgreiðslu umsóknir um leyfi til dýratilrauna, leyfi til að halda og annast tilraunadýr og leyfi til að rækta tilraunadýr, svo og að sinna sértæku eftirliti með aðbúnaði og meðferð tilraunadýra. Heimilt er tilraunadýranefnd að binda leyfi þeim skilyrðum sem nauðsynleg má telja til að tryggja velferð tilraunadýra. Ef háttsemi leyfishafa brýtur gegn lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim er tilraunadýranefnd heimilt að afturkalla leyfi. Tilraunadýranefnd er heimilt að innheimta gjald fyrir útgáfu leyfis svo og sérstakt eftirlit með aðbúnaði og meðferð tilraunadýra. Gjald þetta skal greiðast af hlutaðeigandi leyfishafa og/eða þeim sem eftirlitið beinist að og má ekki vera hærra en nemur eðlilegum kostnaði við eftirlit eða útgáfu leyfis.] 3)
Gæta skal þess við tilraunir eða aðgerðir á dýrum að þær baki þeim ekki meiri þjáningu en óhjákvæmilegt er.
Tilraunadýranefnd skal tryggja að þeir sem nota dýr í tilraunaskyni hafi hlotið þjálfun og menntun í meðferð tilraunadýra. [Kröfur um menntun og þjálfun þeirra sem nota dýr í tilraunaskyni skulu taka mið af menntun í vísindagrein sem tekur til þeirrar tilraunastarfsemi er um ræðir. Þá skal einnig gera kröfu um að námskeiði í meðferð tilraunadýra hafi verið lokið.] 3)
[[Ráðherra] 2) setur í samráði við tilraunadýranefnd reglugerð 4) þar sem meðal annars er kveðið nánar á um hlutverk og störf tilraunadýranefndar, menntun og þjálfun þeirra sem nota eða halda dýr í tilraunaskyni, meðferð tilraunadýra og eftirlit með dýratilraunum.] 3)
1)L. 123/2005, 1. gr. 2)L. 126/2011, 184. gr. 3)L. 165/2008, 1. gr. 4)Rg. 279/2002.
VII. kafli. Skipan dýraverndarmála.
17. gr. [Ráðherra] 1) fer með yfirstjórn allra mála er varða dýravernd.
[Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara og er ráðherra til ráðgjafar. Umhverfisstofnun er heimilt að fela heilbrigðisnefnd eftirlit og framkvæmd þvingunarúrræða samkvæmt lögum þessum í umboði stofnunarinnar. Umhverfisstofnun gerir tillögur til ráðherra um setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla á grundvelli laganna.
Um stefnumótandi mál, svo sem setningu reglugerða, skal leita umsagnar dýraverndarráðs.] 2)
[[Ráðherra] 1) skipar fjóra menn í dýraverndarráð. Bændasamtök Íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Dýralæknafélag Íslands og Samband dýraverndunarfélaga Íslands skulu hvert um sig tilnefna einn mann í ráðið. Ráðið skiptir með sér verkum. Hlutverk þess er að vera Umhverfisstofnun og [ráðherra] 1) til ráðgjafar um dýraverndarmál.] 2)
1)L. 126/2011, 184. gr. 2)L. 164/2002, 4. gr.
VIII. kafli. Eftirlit með framkvæmd laganna og viðurlög.
18. gr. [Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum ber þeim sem verða þess varir að tilkynna það Umhverfisstofnun, héraðsdýralækni eða lögreglu í viðkomandi umdæmi.
Fulltrúum Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni er heimilt að fara á hvern þann stað þar sem dýr eru höfð og kanna aðstæður þeirra og aðbúnað. Eigi er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum dómsúrskurði, sbr. þó 4. mgr. Lögregla skal aðstoða fulltrúa Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni ef með þarf.
Sé um minni háttar brot að ræða skal Umhverfisstofnun leggja fyrir eiganda eða umsjónarmann dýranna að bæta úr innan tiltekins tíma. Láti eigandi eða umsjónarmaður ekki skipast við tilmæli Umhverfisstofnunar getur stofnunin látið vinna úrbætur á hans kostnað.
Leiki grunur á að um sé að ræða alvarlegt brot gegn lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, getur lögregla fyrirvaralaust tekið dýr úr vörslu eiganda eða umsjónarmanns. Í þessu skyni er lögreglu rétt að fara inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi dýrunum heilsutjóni. Lögreglu ber að tilkynna Umhverfisstofnun þessar aðgerðir þegar í stað. Lögreglustjóri ákveður í framhaldi af því, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og héraðsdýralæknis, hvort dýrin skuli vera áfram í vörslu lögreglu þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr. Á meðan dýrin eru í vörslu lögreglu er sveitarstjórn skylt að útvega geymslustað, fóður og umhirðu fyrir dýrin á kostnað eiganda eða umsjónarmanns. Sé sveitarstjórn það af einhverjum ástæðum ókleift og telji nauðsynlegt að láta bjóða dýrin upp, selja þau til lífs eða slátrunar eða láta aflífa þau að öðrum kosti skal eiganda eða umsjónarmanni dýranna þegar tilkynnt um þau áform og honum gefinn kostur á, sé það mögulegt, að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin uns dómur fellur, sbr. 6. mgr.
Telji Umhverfisstofnun nauðsynlegt, til að stöðva eða fyrirbyggja illa meðferð á dýrum, getur Umhverfisstofnun fyrirvaralaust og til bráðabirgða svipt eiganda eða umsjónarmann heimild til þess að hafa eða sjá um dýr þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr.
Nú vill eigandi eða umsjónarmaður dýra ekki hlíta þeim aðgerðum eða ákvörðunum sem fyrir er mælt í 4. og 5. mgr. og getur hann þá borið ágreiningsefnið undir dómara, hvort sem er sérstaklega eða í [sakamáli] 1) sem höfðað kann að vera á hendur honum. Slíkt frestar þó ekki aðgerðum eða framkvæmd ákvarðana skv. 4. og 5. mgr.
Umhverfisstofnun er heimilt að ákveða að eigandi eða umsjónarmaður dýra skuli bera kostnað af aðgerðum skv. 2. og 4. mgr. Ákvörðun um greiðslu kostnaðar er aðfararhæf.] 2)
1)L. 88/2008, 234. gr. 2)L. 164/2002, 5. gr.
19. gr. Brot gegn lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, varða sektum eða [fangelsi allt að einu ári]. 1) Ef brot er stórfellt eða ítrekað getur það varðað fangelsi allt að tveimur árum.
Hlutdeild í brotum og tilraun til brota á lögum þessum er refsiverð.
1)L. 82/1998, 212. gr.
20. gr. Hafi maður gerst sekur um stórfellt eða ítrekað brot á lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, má svipta hann með dómi heimild til að hafa dýr í umsjá sinni, versla með þau eða sýsla með þau með öðrum hætti. Heimildarsvipting getur lotið að dýrum almennt eða einstökum tegundum og staðið tiltekið tímabil eða ævilangt. Heimildarsviptingu má beita gagnvart ósakhæfum manni. Ákæruvaldið getur haft uppi kröfu um heimildarsviptingu í opinberu máli hvort sem krafist er refsingar á hendur sakborningi eða ekki. Sá sem sviptur er heimild samkvæmt þessari málsgrein og skeytir ekki dómi um heimildarsviptingu skal sæta sektum.
21. gr. Foreldrum eða öðrum forráðamönnum barna er skylt að sjá til þess að þau börn, sem þau hafa forráð fyrir, hlýðnist fyrirmælum þessara laga. Brjóti barn, yngra en 16 ára, gegn lögum þessum og brotið er framið með vitund foreldra eða forráðamanna skal þeim refsað fyrir brotið ef sannað er að þeir hafi vanrækt að koma í veg fyrir það.
22. gr. … 1)
1)L. 88/2008, 233. gr.
IX. kafli. Gildistaka og stjórnvaldsfyrirmæli.
23. gr. [Ráðherra] 1) setur reglugerðir samkvæmt lögum þessum enda séu þær í samræmi við milliríkjasamninga sem Ísland er aðili að. Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli um dýravernd, sem sett hafa verið fyrir gildistöku laga þessara, halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau brjóta ekki í bága við lög þessi uns ný stjórnvaldsfyrirmæli hafa verið sett. 2)
1)L. 126/2011, 184. gr. 2)Rg. 127/1958, sbr. 232/1968. Rg. 635/1996.
24. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1994. …