Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 14. janúar 2013. Útgáfa 141a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
1986 nr. 24 7. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 12. maí 1986. Breytt með l. 93/1986 (tóku gildi 1. jan. 1987), l. 21/1987 (tóku gildi 14. apríl 1987 nema 2. gr. sem tók gildi 1. júní 1987; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 4. gr.), l. 45/1992 (tóku gildi 10. júní 1992), l. 79/1994 (tóku gildi 30. maí 1994), l. 84/1995 (tóku gildi 21. júní 1995), l. 80/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998), l. 88/2002 (tóku gildi 23. maí 2002), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Um skiptaverðmæti sjávarafla.
1. gr. [Þegar afli fiskiskipa er seldur óunninn hér á landi er skiptaverðmæti aflans til hlutaskipta og aflaverðlauna 75% af því heildarverðmæti sem útgerðin fær fyrir hann. [Ekki er heimilt að draga frá heildarverðmæti afla í þessu sambandi kostnað við kaup á veiðiheimildum.] 1) Þessi hlutfallstala skal hækka eða lækka við breytingar á verði gasolíu til fiskiskipa með hliðsjón af því gasolíuverði í birgðum olíufélaganna sem olíuverðsákvörðun miðast við hverju sinni. Skiptahlutfallið skal hækka um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala lækkun á birgðaverði gasolíu niður fyrir 109 Bandaríkjadali á tonn fob en lækka um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala hækkun á birgðaverði gasolíu umfram 133 Bandaríkjadali á tonn fob. Skiptaverðmæti aflans skal þó aldrei vera lægra samkvæmt þessari grein en 70% af heildarverðmæti. Breytingar á gasolíuverði til fiskiskipa skulu miðast við mánaðamót.
Frá og með 1. júní 1987 skal skiptaverðmæti skv. 1. málsl. 1. mgr. hækka í 76% af heildaraflaverðmæti. Frá sama tíma breytist viðmiðun til lækkunar skiptaverðmætishlutfalls skv. 3. málsl. 1. mgr. á þann hátt að hlutfallstalan lækki um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala hækkun á birgðaverði gasolíu umfram 145 Bandaríkjadali á tonn fob.] 2)
1)L. 79/1994, 10. gr. 2)L. 21/1987, 1. gr.
2. gr. Þegar fiskiskip siglir með ísfisk til sölu í erlendri höfn er skiptaverðmæti aflans til hlutaskipta, aflaverðlauna og aukaaflaverðlauna 64% af því heildarverðmæti (brúttósöluverðmæti) sem útgerðin fær fyrir hann. Þetta hlutfall skal þó vera 70% þegar fiski er landað til bræðslu erlendis.
3. gr. [Þegar afli fiskiskips er fluttur ísaður í kössum með öðru skipi til sölu á erlendum markaði skal draga frá heildarverðmæti flutningskostnað, erlenda tolla og kostnað við söluna erlendis annan en umboðslaun. Skiptaverðmæti skal vera 76% af þannig ákveðnu söluverði með þeim breytingum til hækkunar eða lækkunar sem kveðið er á um í 1. gr.] 1)
1)L. 21/1987, 2. gr.
4. gr. [Þegar seldur er afli fiskiskips sem frystir bolfisk um borð, heilan eða flakaðan, er skiptaverðmætið 74,5% af fob-verðmæti framleiðslunnar við útflutning. Þetta skiptahlutfall skal þó vera 69% af cif-verðmætinu sé þannig samið um sölu framleiðslunnar.
Þegar seldur er afli fiskiskips sem frystir rækju um borð er skiptaverðmætið 71,5% af fob-verðmæti framleiðslunnar við útflutning. Þetta hlutfall skal þó vera 66% af cif-verðmætinu sé þannig samið um sölu framleiðslunnar.
Skiptahlutfallið skal hækka eða lækka um hálft prósentustig fyrir hvert eitt prósentustig sem skiptahlutfallið breytist til hækkunar eða lækkunar skv. 1. og 2. mgr. 1. gr.] 1)
1)L. 21/1987, 3. gr.
II. kafli. Um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins.
5. gr. Þegar framleiðandi sjávarafurða veðsetur framleiðslu sína við töku afurðaláns hjá viðskiptabanka eða öðrum lánveitanda skal hann greiða minnst [8%], 1) sbr. 7. gr., af samanlögðu hráefnisverði hvers skips, sem lagði hráefni til vinnslunnar, inn á sérstaka bankareikninga. Veðsetji framleiðandi eða annar fiskkaupandi ekki fiskafurðir sínar skal hann eigi að síður inna þessa greiðslu af hendi innan fjórtán daga frá því fiskurinn var afhentur. [Sambærileg skylda hvílir á þeim sem taka fiskafurðir í umboðssölu.] 1)
Viðskiptabanki útvegsmanns skal við gjaldeyrisskil leggja minnst [8%] 1) af brúttósöluverðmæti ísfisks, sem seldur er í erlendri höfn, sbr. 2. og 3. gr., inn á sams konar bankareikninga.
Sama greiðsluskylda og að framan greinir hvílir á útvegsmönnum veiðiskipa sem vinna og frysta afla um borð, og miðast þá [8%] 1)-greiðslan við skilaverðmæti framleiðslunnar og fellur í gjalddaga við gjaldeyrisskil.
[Ákvæði þessarar greinar ná ekki til opinna báta, þilfarsbáta undir 10 lestum eða krókaaflamarksbáta, sbr. 6. gr.] 2)
1)L. 80/1997, 1. gr. 2)L. 88/2002, 1. gr.
6. gr. Framleiðendur sjávarafurða og aðrir fiskkaupendur [svo og þeir sem taka sjávarafurðir í umboðssölu] 1) skulu greiða [8,4%] 1) af samanlögðu hráefnisverði þess afla, sem þeir taka við af [opnum bátum, þilfarsbátum undir 10 lestum og krókaaflamarksbátum], 2) inn á sérstakan greiðslumiðlunarreikning smábáta hjá [Lífeyrissjóði sjómanna] 1) eftir sömu reglum og greinir í 5. gr., eftir því sem við getur átt.
1)L. 80/1997, 2. gr. 2)L. 88/2002, 2. gr.
7. gr. Fé því, sem haldið er eftir skv. 5. gr., skal miðla á þennan hátt:
[1. ] 1) 6% af hráefnisverði greiðist inn á vátryggingarreikning skipsins hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna, sbr. lög nr. 17/1976.
[2. ] 1) 2% af hráefnisverði greiðist inn á sérstakan greiðslumiðlunarreikning fiskiskipa hjá [Lífeyrissjóði sjómanna]. 1)
1)L. 80/1997, 3. gr.
8. gr. Fé því, sem safnast á greiðslumiðlunarreikning smábáta skv. 6. gr., skal skipta mánaðarlega og færa til tekna á bankareikninga í þessum hlutföllum:
1. Til lífeyrissjóða sjómanna [37,5%] 1)
2. Til greiðslu iðgjalda af slysa- og örorkutryggingu skipverja, sams konar þeim sem samið er um í heildarkjarasamningum sjómanna og útvegsmanna, þar á meðal vegna grásleppuveiða, svo og af vátryggingu báts, og eiga þessi ákvæði við allar veiðar smábáta, einnig við grásleppuveiðar, skv. reglum sem [ráðherra] 2) setur [56,5%] 1)
3. Til Landssambands smábátaeigenda, þar með vegna grásleppuveiða [6%] 1)
1)L. 80/1997, 4. gr. 2)L. 126/2011, 114. gr.
9. gr. Fé því, sem safnast á greiðslumiðlunarreikning fiskiskipa skv. 3. tölul. 7. gr., skal skipta mánaðarlega og færa til tekna á bankareikninga í þessum hlutföllum:
1. Til lífeyrissjóða sjómanna 92,0%
2. Til Sjómannasambands Íslands og sjómanna innan Alþýðusambands Austfjarða og Alþýðusambands Vestfjarða 2,4%
3. [Til Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Vélstjórafélags Íslands.] 1) 1,6%
4. Til Landssambands íslenskra útvegsmanna 4,0%
[Við skiptingu fjár milli þeirra samtaka sem um er rætt í 2. tölul. 1. mgr. annars vegar og 3. tölul. 1. mgr. hins vegar skal taka mið af fjölda félagsmanna er við fiskveiðar vinna. Skulu aðilar koma sér saman um skiptingu fjár milli hlutaðeigandi samtaka og tilkynna Lífeyrissjóði sjómanna um samkomulagið.
Komi upp ágreiningur um skiptingu fjár skv. 2. mgr. geta þau samtök sem um er rætt í 2. og 3. tölul. 1. mgr. óskað eftir því við [ráðherra] 2) að skipaður verði gerðardómur til að leysa úr ágreiningnum. Gerðardómur vegna ágreinings um skiptingu fjár skv. 2. tölul. 1. mgr. skal skipaður fimm mönnum, tveim tilnefndum af Sjómannasambandi Íslands, einum tilnefndum af Alþýðusambandi Austfjarða, einum tilnefndum af Alþýðusambandi Vestfjarða og einum tilnefndum af dómstjóra héraðsdóms Reykjavíkur og er sá jafnframt formaður gerðardómsins. Gerðardómur um skiptingu fjár skv. 3. tölul. 1. mgr. skal skipaður þremur mönnum, einum tilnefndum af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, einum tilnefndum af Vélstjórafélagi Íslands og einum tilnefndum af dómstjóra héraðsdóms Reykjavíkur og er sá jafnframt formaður gerðardóms. Gerðardómi um skiptingu fjár skv. 3. tölul. 1. mgr. er heimilt að taka mið af fleiri atriðum en um er rætt í 2. mgr. Úrskurður gerðardóms er bindandi. Kostnaður af starfi gerðardóms skal greiddur af aðilum máls.
[Ráðherra] 2) getur sett reglur um starfsemi gerðardóms samkvæmt þessari grein.] 3)
1)L. 45/1992, 1. gr. 2)L. 126/2011, 114. gr. 3)L. 80/1997, 5. gr.
10. gr. Lífeyrissjóður sjómanna skal hafa yfirumsjón með því að fé, sem inn kemur skv. 1. tölul. 8. gr. og 1. tölul. 9. gr., sé skipt og greitt inn á reikning hvers skips til hlutaðeigandi lífeyrissjóða í hlutfalli við iðgjaldsskyldan aflahlut skipverja.
11. gr. Þeim viðskiptabönkum eða öðrum, sem halda eftir fé útvegsmanna samkvæmt lögum þessum, er skylt að senda þeim viðurkenningar fyrir móttöku fjárins án tafar. [Lífeyrissjóði sjómanna] 1) er skylt að senda þeim samtökum og sjóðum, sem tilgreind eru í 8. og 9. gr., mánaðarlegt yfirlit yfir allar innborganir á greiðslumiðlunarreikninga og skiptingu þeirra.
Lögtaksréttur fylgir kröfu vegna hlutdeildar af hráefnisverði, sbr. 5. og 6. gr. laga þessara. Sé greiðsla ekki innt af hendi innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af vangreiddri fjárhæð.
1)L. 80/1997, 6. gr.
III. kafli. …1)
1)L. 93/1986, 11. gr.
IV. kafli. …
V. kafli. …
VI. kafli. Um reglugerð og gildistöku.
16. gr. [Ráðherra] 1) setur nánari reglur 2) um framkvæmd þessara laga, þar með um innheimtu skv. II. kafla, yfirlit yfir greiðslumiðlun og um endurskoðun og eftirlit með greiðslum sem [Lífeyrissjóður sjómanna] 3) skal annast fyrir hönd … 3) samtaka sjómanna og útvegsmanna.
[Aðilar greiðslumiðlunar skv. 8. og 9. gr. skulu koma sér saman um skiptingu kostnaðar sem leiðir af umsýslu Lífeyrissjóðs sjómanna fyrir greiðslumiðlunina. Náist ekki samkomulag um skiptingu kostnaðar skal ráðherra setja reglugerð um slíka skiptingu.] 3)
1)L. 126/2011, 114. gr. 2)Rg. 147/1998. 3)L. 80/1997, 7. gr.
17. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og taka ákvæði þeirra til fiskafla og sjávarafurðaframleiðslu frá og með 15. maí 1986. …
18. gr. [Brot á 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. … 1)] 2)
1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 79/1994, 11. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …
[Eignum Styrktar- og lánasjóðs fiskiskipa og Framkvæmdasjóðs, sem verið hafa í vörslu Fiskveiðasjóðs, skal varið til rannsókna á kjörhæfni veiðarfæra og áhrifum þeirra á lífríki sjávar. Skal ráðherra semja við fjármálastofnanir um varðveislu og innheimtu verðbréfa sjóðanna.] 1)
1)L. 80/1997, brbákv.