Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. maí 2013. Útgáfa 141b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu
2000 nr. 85 23. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 2. júní 2000. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis- og auðlindaráðherra eða umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 309. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
1. Samningurinn: Samningur um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu (CITES) sem gerður var í Washington 3. mars 1973 ásamt breytingum á honum sem gerðar voru í Bonn 22. júní 1979 og viðaukum við hann, fyrir utan þau atriði sem Ísland hefur gert fyrirvara við.
2. Umsækjandi leyfis eða vottorðs: Sérhver aðili sem sækir um innflutnings-, útflutnings- eða endurútflutningsleyfi eða vottorð vegna aðflutnings úr sjó.
3. Verslun:
a. innflutningur,
b. útflutningur,
c. endurútflutningur sem er útflutningur á dýri eða plöntu sem áður hefur verið flutt inn,
d. aðflutningur úr sjó sem er innflutningur á dýri eða plöntu sem tekin hefur verið úr sjó utan lögsögu ríkja.
4. Dýr eða planta: Sérhvert dýr eða planta og auðþekkjanlegur hluti og afleiðsla þess, sem fjallað er um í samningnum og viðaukum við hann, fyrir utan þau atriði sem Ísland hefur gert fyrirvara við.
![](/lagas/sk.jpg)
1. verslun með dýr og plöntur,
2. innflutnings-, útflutnings- og endurútflutningsleyfi og vottorð vegna aðflutnings úr sjó,
3. lista yfir dýr og plöntur sem talin eru upp í I. viðauka við samninginn og Ísland hefur ekki gert fyrirvara við, svo og reglur um verslun með þau,
4. lista yfir dýr og plöntur sem talin eru upp í II. viðauka við samninginn og Ísland hefur ekki gert fyrirvara við, svo og reglur um verslun með þau,
5. lista yfir dýr og plöntur sem talin eru upp í III. viðauka við samninginn og Ísland hefur ekki gert fyrirvara við, svo og reglur um verslun með þau,
6. undanþágur frá almennum reglum um verslun með dýr og plöntur í samræmi við samninginn,
7. hlutverk leyfisveitenda og vísindalegra stjórnvalda,
8. verslun með dýr og plöntur við ríki sem ekki eru aðilar að samningnum,
9. eftirlit stjórnvalda með því að ákvæðum laganna sé framfylgt,
10. meðferð lifandi dýra,
11. önnur atriði sem falla undir samninginn.
1)L. 126/2011, 309. gr. 2)Rg. 993/2004, sbr. 5/2005.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)