Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. september 2015. Útgáfa 144b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Ríkisútvarpið ohf.1)
2007 nr. 6 1. febrúar
1)Lögin voru felld úr gildi skv. l. 23/2013, 19. gr., að undanskilinni 11. gr. sem heldur gildi sínu til 31. desember 2015, sbr. l. 140/2013, 22. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 3. febrúar 2007. Breytt með l. 174/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 79/2009 (tóku gildi 1. ágúst 2009), l. 87/2009 (tóku gildi 20. ágúst 2009), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010), l. 164/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011 nema 2., 6., 22. og 26. gr. sem tóku gildi 31. des. 2010; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr.), l. 38/2011 (tóku gildi 21. apríl 2011; EES-samningurinn: X. viðauki tilskipun 89/552/EBE), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 164/2011 (tóku gildi 30. des. 2011 nema 1.–2., 4.–5., 7., 15.–21., 24.–27., 29.–30. og 34.–39. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.) og l. 140/2013 (tóku gildi 31. des. 2013 nema 1.–2., 4.–12., 16.–18., 23.–29., 31.–32., 34.–38. og 40.–48. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2014 og 21. gr. sem tekur gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
…
IV. kafli. Tekjur Ríkisútvarpsins ohf.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. Samkvæmt sérstöku gjaldi sem [ríkisskattstjóri leggur] 2) á samhliða álagningu opinberra gjalda skv. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. [Gjaldið rennur í ríkissjóð.] 1) Gjaldskylda hvílir á þeim einstaklingum sem skattskyldir eru skv. 1. gr. og þeim lögaðilum sem skattskyldir eru og bera sjálfstæða skattaðild skv. 2. gr. laga nr. 90/2003, öðrum en dánarbúum, þrotabúum og þeim lögaðilum sem undanþegnir eru skattskyldu skv. 4. gr. sömu laga. Skal gjaldið nema [19.400 kr.] 3) ár hvert á hvern einstakling og lögaðila. Undanþegnir gjaldinu eru þeir einstaklingar sem ekki skulu sæta álagningu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra eða skulu fá það gjald fellt niður skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra.
2. [Tekjur af hljóð- og myndsendingum í viðskiptaskyni og sölu eða leigu á vörum sem tengjast dagskrárefni þess. Samanlagðar tekjur Ríkisútvarpsins ohf. af kostun skulu þó eigi vera hærri en sem nemur hlutfalli tekna af kostun í samanlögðum tekjum Ríkisútvarpsins af hljóð- og myndsendingum í viðskiptaskyni á árinu 2006. Ríkisútvarpinu ohf. er óheimilt að selja auglýsingar til birtingar á veraldarvefnum. Þá er vöruinnsetning óheimil í öllum dagskrárliðum hvort heldur sem er í línulegri eða ólínulegri dagskrá. Bann við vöruinnsetningu nær þó einungis til þess efnis sem Ríkisútvarpið ohf. hefur framleitt sjálft eða efnis sem hefur verið framleitt í umboði þess eða tengdra fyrirtækja.] 4)
3. Aðrar tekjur sem Alþingi kann sérstaklega að ákveða.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 174/2008, 1. gr. 2)L. 136/2009, 107. gr. 3)L. 140/2013, 19. gr. 4)L. 38/2011, 65. gr. 5)L. 79/2009, 1. gr.
…
![](/lagas/sk.jpg)
1)L. 140/2013, 20. gr.