Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2017. Útgáfa 146a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Lýðveldisins Íslands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um gagnkvæma aðstoð í tollamálum
1978 nr. 44 10. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. júní 1978.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Lýðveldisins Íslands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um gagnkvæma aðstoð í tollamálum sem undirritaður var í Bonn 11. október 1977. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum. 1)
1)Sjá Stjtíð. A 1978, bls. 221–228.
2. gr. Þegar samningurinn hefur verið fullgiltur skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi. 1)
1) Augl. C 9/1978.
3. gr. Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara.