Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2017. Útgáfa 146a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um náms- og starfsráðgjafa
2009 nr. 35 3. apríl
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 8. apríl 2009. Breytt með l. 77/2009 (tóku gildi 31. júlí 2009), l. 26/2010 (tóku gildi 1. júlí 2010; EES-samningurinn: VII. viðauki tilskipun 2005/36/EB) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
mennta- og menningarmálaráðherra eða
mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
Starfsheitið náms- og starfsráðgjafi.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt til að kalla sig náms- og starfsráðgjafa og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra],
1) sbr. 2. mgr.
![](/lagas/hk.jpg)
Leyfi skv. 1. mgr. skal veita umsækjanda sem lokið hefur námi í náms- og starfsráðgjöf frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu [ráðherra]
1) samkvæmt
lögum nr. 63/2006.
1)L. 126/2011, 506. gr.
2. gr.
Matsnefnd.
![](/lagas/hk.jpg)
Leiki vafi á hvort umsækjandi um leyfi til þess að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi fullnægi þeim skilyrðum sem kveðið er á um í lögum þessum skal leita umsagnar matsnefndar sem [ráðherra]
1) skipar til fjögurra ára í senn.
![](/lagas/hk.jpg)
Matsnefnd skal skipuð þremur fulltrúum, einum frá félagi náms- og starfsráðgjafa, einum tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið og einum án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
![](/lagas/hk.jpg)
Nánar skal kveðið á um starfshætti matsnefndar í reglugerð.
1)L. 126/2011, 506. gr.
3. gr.
Réttindi sem aflað er í ríki innan EES eða í aðildarríki EFTA.
![](/lagas/hk.jpg)
[[Ráðherra]
1) skal staðfesta leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eða Færeyjum ef viðkomandi leggur fram vottorð um viðurkennd réttindi í ríki innan svæðisins eða Færeyjum í samræmi við skilyrði tilskipunar 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Samkvæmt umsókn frá ríkisborgara aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal ráðherra staðfesta leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi með sömu skilyrðum og tilgreind eru í 1. mgr., enda leggi viðkomandi fram vottorð um viðurkennd réttindi í aðildarríki samtakanna.
1)L. 126/2011, 506. gr. 2)L. 26/2010, 12. gr.
4. gr.
Leyfisveiting.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) er heimilt að veita þeim sem eru í starfi þegar lög þessi öðlast gildi leyfi það sem um ræðir í 1. mgr. 1. gr. enda þótt þeir uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 1. gr. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar matsnefndar.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra er heimilt að fela háskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu á grundvelli laga um háskóla og sinna menntun náms- og starfsráðgjafa eftir samningi við ráðuneytið, að annast útgáfu leyfisbréfa samkvæmt lögum þessum. Ráðherra getur enn fremur veitt öðrum þar til bærum aðila slíka heimild.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli um fyrirkomulag og útgáfu leyfisbréfa í reglugerð.]
2)
1)L. 126/2011, 506. gr. 2)L. 77/2009, 1. gr.
5. gr.
Þagnarskylda.
![](/lagas/hk.jpg)
Náms- og starfsráðgjafa er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins. Þagnarskyldan helst þótt viðkomandi láti af starfi.
6. gr.
Skyldur náms- og starfsráðgjafa.
![](/lagas/hk.jpg)
Náms- og starfsráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar samkvæmt lögum, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar er varða fagið.
![](/lagas/hk.jpg)
Náms- og starfsráðgjafar bera ábyrgð á þeirri ráðgjöf sem þeir veita.
7. gr.
Reglugerðarheimild.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur sett nánari ákvæði í reglugerð
1) um framkvæmd laga þessara, m.a. reglur um skilyrði fyrir veitingu leyfis og hvernig staðið er að veitingu og afturköllun leyfis.
1)Rg. 160/2010.
8. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.
9. gr.
…