Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2017. Útgáfa 146a. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur
2014 nr. 117 30. nóvember
Tók gildi 10. desember 2014.
Samkvæmt tillögu utanríkisráðherra og með vísan til 4. gr. laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands eru hér með sett eftirfarandi ákvæði:
1. a. Sendiráð skulu vera í Berlín, Brussel, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lilongwe, London, Mapútó, Moskvu, Nýju-Delhi, Ottawa, Ósló, París, Peking, Stokkhólmi, Tókýó, Vín og Washington. Sendiráðin í Brussel, London, París og Vín skulu jafnframt gegna hlutverki fastanefnda gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum.
b. Fastanefndir skulu vera í Brussel, Genf og New York. Fastanefndirnar í Genf og New York skulu jafnframt gegna hlutverki sendiráðs gagnvart nánar tilteknum ríkjum.
c. Aðalræðisskrifstofur skulu vera í New York, Nuuk, Winnipeg og Þórshöfn.
2. Umdæmi sendiráða skulu vera sem hér segir:
a. Berlín. Auk Þýskalands skal umdæmi sendiráðsins vera Króatía, Pólland, Serbía og Svartfjallaland.
b. Brussel. Auk Belgíu skal umdæmi sendiráðsins vera Holland, Lúxemborg, San Marínó og Sviss. Sendiráðið skal jafnframt fara með fyrirsvar gagnvart Evrópusambandinu (ESB/EU). Sendiráðið skal ennfremur gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Vestur-Evrópusambandinu (VES/WEU).
c. Helsinki. Auk Finnlands skal umdæmi sendiráðsins vera Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína.
d. Kampala. Umdæmi sendiráðsins skal vera Úganda. Sendiherra Íslands gagnvart Úganda skal sitja í Reykjavík.
e. Kaupmannahöfn. Auk Danmerkur skal umdæmi sendiráðsins vera Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland.
f. Lilongwe. Umdæmi sendiráðsins skal vera Malaví. Sendiherra Íslands gagnvart Malaví skal sitja í Reykjavík.
g. London. Auk Bretlands skal umdæmi sendiráðsins vera Írland, Jórdanía, Katar, Malta, Nígería, Portúgal og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO).
h. Mapútó. Umdæmi sendiráðsins skal vera Mósambík. Sendiherra Íslands gagnvart Mósambík skal sitja í Reykjavík.
i. Moskva. Auk Rússlands skal umdæmi sendiráðsins vera Armenía, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgistan, Moldóva, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.
j. Nýja-Delhi. Auk Indlands skal umdæmi sendiráðsins vera Bangladess, Malasía, Maldíveyjar, Máritíus, Nepal, Seychelleseyjar, Singapúr, Srí Lanka og Suður-Afríka.
k. Ottawa. Auk Kanada skal umdæmi sendiráðsins vera Bólivía, Chile, Costa Rica, Ekvador, Hondúras, Kólumbía, Panama, Perú og Venesúela.
l. Ósló. Auk Noregs skal umdæmi sendiráðsins vera Afganistan, Egyptaland, Grikkland og Íran.
m. París. Auk Frakklands skal umdæmi sendiráðsins vera Alsír, Andorra, Djíbútí, Ítalía, Líbanon, Marokkó, Monakó, Spánn og Túnis. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnuninni (OECD) í París, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París og Evrópuráðinu í Strassborg.
n. Peking. Auk Alþýðulýðveldisins Kína skal umdæmi sendiráðsins vera Alþýðulýðveldið Kórea, Ástralía, Kambódía, Laos, Lýðveldið Kórea, Mongólía, Nýja-Sjáland, Taíland og Víetnam.
o. Stokkhólmur. Auk Svíþjóðar skal umdæmi sendiráðsins vera Albanía, Kúveit, Kýpur og Sýrland.
p. Tókýó. Auk Japans skal umdæmi sendiráðsins vera Austur-Tímor, Brúnei Darússalam, Filippseyjar, Indónesía og Papúa Nýja-Gínea.
q. Vín. Auk Austurríkis skal umdæmi sendiráðsins vera Bosnía og Hersegóvína, Makedónía (fyrrum Sambandslýðveldi Júgóslavíu), Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE/OSCE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu undirbúningsnefndar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO).
r. Washington. Auk Bandaríkjanna skal umdæmi sendiráðsins vera Argentína, Brasilía, El Salvador, Gvatemala, Mexíkó, Nicaragua, Paraguay og Úruguay.
3. Fyrirsvar fastanefnda skal vera sem hér segir:
a. Brussel. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Atlantshafsbandalaginu (NATO) og stofnunum tengdum því.
b. Genf. Auk Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) skal fastanefndin fara með fyrirsvar gagnvart skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf, Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Alþjóðavinnumálastofnuninni (ILO). Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Liechtenstein og Páfastóli.
c. New York. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Antígvu og Barbúdu, Bahamaeyjum, Barbados, Belís, Dóminíku, Dóminíska lýðveldinu, Grenada, Gvæönu, Haítí, Jamaíku, Kúbu, Sankti Kitts og Nevis, Sankti Lúsíu, Sankti Vinsent og Grenadíneyjum, Súrinam og Trinidad og Tobago.
4. Umdæmi aðalræðisskrifstofa skal vera sem hér segir:
a. New York. Auk New York ríkis skal umdæmi aðalræðisskrifstofunnar vera ríkin Connecticut, New Jersey og Rhode Island.
b. Nuuk. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Grænland.
c. Winnipeg. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera fylkið Manitoba, fylkið Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton.
d. Þórshöfn. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Færeyjar.
5. Utanríkisráðuneytið fer með fyrirsvar gagnvart öðrum alþjóðastofnunum og ríkjum sem Ísland hefur stjórnmálasamband við, m.a. með skipun sendiherra með búsetu í Reykjavík eftir því sem ástæða er til.
Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. …