Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2017. Útgáfa 146a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju
2016 nr. 56 10. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 21. júní 2016. Falla úr gildi 31. desember 2017.
1. gr. Í þeim tilgangi að styrkja samgöngur milli lands og Vestmannaeyja er Vegagerðinni, f.h. ríkissjóðs, heimilt að láta fara fram útboð vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju. Í útboðinu skal valið standa milli þeirra kosta að gerður verði þjónustusamningur um smíði og rekstur skips til allt að tólf ára eða samið um smíði skips fyrir allt að 4,8 milljarða kr. á verðlagi í árslok 2015.
Vegagerðinni er heimilt, f.h. ríkissjóðs, að ganga að hagkvæmasta tilboði í annan hvorn kostinn, enda liggi fyrir fullnægjandi fjárheimildir til verkefnisins eða tryggt að samningur sé með skýrum fyrirvara þar um.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og falla úr gildi 31. desember 2017.