Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2018. Útgáfa 148a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ
2010 nr. 57 14. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 17. júní 2010. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 527. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 527. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. Þrátt fyrir breytingar sem síðar kunna að verða á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu félögin greiða 15% tekjuskatt með eftirfarandi sérákvæðum:
a. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hærra en 15% skal hið hærra tekjuskattshlutfall ekki gilda um félögin fyrstu fimm árin af gildistíma fjárfestingarsamningsins.
b. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hærra en 15% eftir fimm fyrstu árin af gildistíma fjárfestingarsamningsins skal það tekjuskattshlutfall gilda um félögin næstu fimm árin af gildistíma fjárfestingarsamningsins, þ.e. frá fimmta til tíunda árs af gildistímanum, þó aldrei hærra en 18%.
c. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hærra en 18% eftir tíu fyrstu árin af gildistíma fjárfestingarsamningsins skal það tekjuskattshlutfall gilda um félögin það sem eftir er af gildistíma fjárfestingarsamningsins, þó aldrei hærra en 25%.
d. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lækkað niður fyrir 15% skal sú lækkun gilda um félögin.
2. Félögunum skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu tíu almanaksárum eins og nánar er kveðið á um í 8. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Ef íslenskum fyrirtækjum verður heimilað að draga eftirstöðvar rekstrartapa frá skattskyldum tekjum vegna fleiri ára, sbr. þessa málsgrein, skal sama gilda um félögin.
3. Félögunum skal heimilt að fyrna að fullu kostnað af búnaði sem er notaður, eða er fyrirhugað að nota, í gagnaverinu yfir líftíma búnaðarins. Til búnaðar telst m.a. rafbúnaður, vélbúnaður, upplýsingatæknibúnaður og fjarskiptabúnaður sem er nauðsynlegur til þess að halda uppi starfrækslu gagnaversins.
4. Félögin skulu undanþegin iðnaðarmálagjaldi samkvæmt lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, með síðari breytingum, og markaðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 160/2002, um útflutningsaðstoð, með síðari breytingum, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kunna að verða lögð á til viðbótar eða í staðinn fyrir iðnaðarmálagjald eða markaðsgjald.
5. Stimpilgjöld sem greiða bæri samkvæmt lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald, skulu vera 0,15% af öllum stimpilskyldum skjölum sem félögin gefa út eða stofnað er til í tengslum við byggingu gagnaversins.
6. Félögin skulu undanþegin ákvæðum 1.–5. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
7. Félögin skulu þrátt fyrir 35. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, greiða skipulagsgjald, sem nemur 100.000 bandaríkjadölum, af nýbyggingum gagnavers. Greiðslur skulu standa í hlutfalli við framvindu byggingar gagnaversins.
8. Í stað fasteignaskatts skv. II. kafla laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með síðari breytingum, svo og sams konar eða efnislega svipaðra gjalda og skatta sem síðar kunna að verða lagðir á til viðbótar við eða í stað fasteignaskatts, skulu félögin greiða Reykjanesbæ fasteignaskatt sem nemur 1,65% af áætluðu verðmæti allra bygginga, húsnæðis og mannvirkja í eigu félaganna eða á leigu hjá þeim, eða þá annað hlutfall fasteignaskatts sem Reykjanesbær kann almennt að leggja á byggingar af sama toga ef hann er lægri. Skattstofninn nemur 1.030.600.000 kr. að því er varðar núverandi fasteignir félaganna og breytist samkvæmt byggingarvísitölu allt frá þeim mánuði sem félögin hefja viðskipti við viðskiptavini. Skattstofninn fyrir síðari byggingar félaganna, sem reistar eru á lóð þeirra á Valhallarbraut, skal vera kostnaðurinn við gerð útveggja bygginganna eða 85.500 kr. á hvern fermetra, hvort sem lægra er, bundið byggingarvísitölu frá þeim mánuði sem byggingin er tekin í notkun, þ.e. þegar viðskiptavinir hefja að greiða fyrir afnot. Fasteignaskattur skal fyrst lagður á 1. janúar 2011, þ.e. á árinu eftir að starfræksla gagnaversins hefst. Félögunum verður veittur frádráttur af síðari fasteignagjöldum að fjárhæð 44.660.298 kr. vegna skatta sem þegar hafa verið greiddir til Reykjanesbæjar eða eru gjaldfallnir, og Reykjanesbær mun ekki leggja á slíka skatta árið 2010. Fasteignaskattur skal lagður á og innheimtur fyrir sérhvert ár á grundvelli fyrrgreinds álagningarstofns svo sem hann er framreiknaður á grundvelli byggingarvísitölu þess mánaðar sem viðskipti við viðskiptavini hefjast.
9. Félögunum skal ekki gert að greiða eignarskatt eða skatta og gjöld sem ekki eru tekjutengd og kunna að verða innleidd eftir undirritun fjárfestingarsamningsins og á gildistíma hans nema slíkir skattar og gjöld séu jafnframt lögð með almennum hætti á önnur íslensk fyrirtæki, þ.m.t. öll önnur gagnaver. Hins vegar skulu félögin undanþegin öllum eignarskatti sem kann að verða tekinn upp í fimm ár frá gildistöku fjárfestingarsamningsins.
10. Uppfylli félögin og/eða fasteignir þeirra skilyrði til skráningar sem virðisaukaskattsskyldur aðili samkvæmt lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, skal félögunum ekki gert að leggja fram sérstaka tryggingu vegna skráningarinnar.
11. Félögin skulu undanþegin gjöldum skv. 14. gr. og 14. gr. a laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun, og hvers kyns núgildandi og síðari gjöldum, enda telst þjónustan sem félögin veita ekki til þeirrar starfsemi sem fellur undir ákvæði laganna.
12. Öll viðskipti milli félaganna og dótturfélaga þeirra skulu samrýmast 57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og meginreglum OECD um viðskipti tengdra aðila og milliverðlagningu.
![](/lagas/hk.jpg)
a. ekki skuli leggja á félögin umhverfisgjöld eða umhverfisskatta sem tengjast losun lofttegundarinnar CO 2 eða annarri losun eða öðrum mengunarvöldum nema slík gjöld eða skattar séu almennt lagðir á önnur fyrirtæki á Íslandi, þ.m.t. öll önnur gagnaver, og mismuni ekki félögunum að öðru leyti,
b. ekki skuli leggja skatta eða gjöld á raforkukaup og/eða notkun félaganna nema slík gjöld eða skattar séu jafnframt lagðir með almennum hætti á önnur íslensk fyrirtæki, þ.m.t. gagnaver, og mismuni ekki félögunum að öðru leyti.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)