Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2018. Útgáfa 148c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um námsgögn
2007 nr. 71 28. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 5. apríl 2007. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 180/2011 (tóku gildi 30. des. 2011), l. 56/2014 (tóku gildi 4. júní 2014), l. 72/2015 (tóku gildi 21. júlí 2015), l. 91/2015 (tóku gildi 5. ágúst 2015 nema 1. og 4.–7. gr. sem tóku gildi 1. júlí 2015) og l. 78/2016 (tóku gildi 1. júlí 2016).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
mennta- og menningarmálaráðherra eða
mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Markmið og skipulag.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Markmið laga þessara er að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
![](/lagas/hk.jpg)
Í lögum þessum er kveðið á um ábyrgð og stuðning ríkisins við þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og um öflun námsgagna fyrir grunnskóla.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ábyrgð og stuðningur ríkisins skv. 1. gr. felur í sér eftirfarandi:
a. …,
1)
b. fjárframlög til námsgagnasjóðs, sem úthlutar fé til grunnskóla til kaupa á námsgögnum, sbr. III. kafla laga þessara,
c. fjárframlög til þróunarsjóðs námsgagna, sem styrkir nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, sbr. IV. kafla laga þessara.
1)L. 91/2015, 9. gr.
II. kafli.
…1)
1)L. 91/2015, 9. gr. Þar er ekki kveðið á um að fyrirsögn kaflans „Námsgagnastofnun“ falli brott en brottfall allra ákvæða kaflans felur það í sér að hún á ekki lengur við.
3.–5. gr. …
1)
1)L. 91/2015, 9. gr.
III. kafli.
Námsgagnasjóður.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Hlutverk námsgagnasjóðs er að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa í því augnamiði að tryggja val þeirra um námsgögn. Framlag til námsgagnasjóðs er ákveðið í fjárlögum ár hvert.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) skipar námsgagnasjóði þriggja manna stjórn til fjögurra ára í senn. Skal einn stjórnarmaður tilnefndur af Kennarasambandi Íslands og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. [Ráðherra]
1) skipar einn stjórnarmann án tilnefningar og skal hann vera formaður en varaformaður skal skipaður úr hópi tilnefndra aðalmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn námsgagnasjóðs ákveður skiptingu fjármuna milli grunnskóla til námsgagnakaupa. Hlutdeild hvers skóla ræðst af nemendafjölda en heimilt er að ívilna fámennum skólum. [Ráðherra]
1) setur sjóðnum úthlutunarreglur
2) þar sem m.a. er kveðið á um skilyrði fyrir úthlutun. Sjóðstjórn hefur eftirlit með að farið sé að úthlutunarreglum.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvarðanir sjóðstjórnar um úthlutanir eru endanlegar og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðuneytið]
1) annast umsýslu sjóðsins og ber ábyrgð á henni. Umsýslukostnaður skal greiddur af ráðstöfunarfé sjóðsins.
1)L. 126/2011, 460. gr. 2)Rgl.899/2016.
IV. kafli.
Þróunarsjóður námsgagna.
7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í samræmi við markmið 1. gr. Framlag til þróunarsjóðs er ákveðið í fjárlögum ár hvert.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) skipar þróunarsjóði námsgagna fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn. Skulu tveir stjórnarmenn tilnefndir af Kennarasambandi Íslands, einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn af Félagi íslenskra framhaldsskóla. [Ráðherra]
1) skipar einn stjórnarmann án tilnefningar og skal hann vera formaður en varaformaður skal skipaður úr hópi tilnefndra aðalmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn þróunarsjóðs námsgagna ákveður skiptingu á fjárveitingu sjóðsins og ber ábyrgð á umsýslu hans. Sjóðnum er heimilt að fá aðstoð sérfræðinga við mat á umsóknum.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) setur þróunarsjóði námsgagna reglugerð
2) þar sem m.a. er kveðið á um skipulag sjóðsins og reglur um úthlutun. Þeir sem fá fé úr þróunarsjóði skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár samkvæmt nánari fyrirmælum í úthlutunarreglum. Verði misbrestur á, eða séu önnur skilyrði fyrir styrkveitingu ekki uppfyllt, er stjórninni heimilt að stöðva greiðslur eða eftir atvikum fara fram á endurgreiðslu styrksins.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn þróunarsjóðs námsgagna skal eiga samráð við kennara og skóla og fylgjast með þróun og nýsköpun í námsgagnagerð fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvarðanir sjóðstjórnar um úthlutanir eru endanlegar og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
1)L. 126/2011, 460. gr. 2)Rg. 1268/2007.
V. kafli.
Gæðamat, gildistaka o.fl.
8. gr. …
1)
1)L. 91/2015, 9. gr.
9. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er [ráðherra]
1) að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 460. gr.
10. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.
…
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi fela ekki í sér breytingar á stöðu og réttindum starfsmanna Námsgagnastofnunar.
[II.
![](/lagas/hk.jpg)
[Á fjárlagaárunum 2016, 2017 og 2018 greiðist framlag skv. 1. mgr. 6. gr. af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaga. Í samræmi við samkomulag frá 13. apríl 2016 um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms verður framlagið innheimt af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. janúar ár hvert.]
1)]
2)
1)L. 78/2016, 2. gr. 2)L. 180/2011, 2. gr.