Lagasafn. Íslensk lög 20. september 2019. Útgáfa 149c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)
2019 nr. 66 24. júní
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 4. júlí 2019; EES-samningurinn: bókun 31 reglugerð 723/2009, 1261/2013.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
mennta- og menningarmálaráðherra eða
mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
Markmið.
![](/lagas/hk.jpg)
Markmið laga þessara er að stuðla að þátttöku Íslands í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði.
2. gr.
Lögfesting.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði reglugerðar ráðsins (EB) nr.
723/2009 frá 25. júní 2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC), sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, bls. 109–116, og reglugerð ráðsins (ESB) nr.
1261/2013 frá 2. desember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr.
723/2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC), sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, bls. 92–93, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.
72/2015 frá 20. mars 2015, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 19. maí 2016, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
3. gr.
Skráning samtaka um evrópska rannsóknarinnviði.
![](/lagas/hk.jpg)
Ríkisskattstjóri skráir samtök um evrópska rannsóknarinnviði, sem hafa lögboðið aðsetur á Íslandi, innan þriggja mánaða frá því að umsókn var samþykkt skv. 6. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr.
723/2009.
![](/lagas/hk.jpg)
Í tilkynningu um stofnun samtaka um evrópska rannsóknarinnviði skal, eftir því sem við á, tilgreina eftirfarandi atriði:
a. heiti samtakanna,
b. lögheimili,
c. tilgang,
d. stofnendur,
e. stjórn,
f. framkvæmdastjórn,
g. prókúru og
h. endurskoðendur.
![](/lagas/hk.jpg)
Með tilkynningu skulu fylgja stofnsamþykktir samtakanna.
![](/lagas/hk.jpg)
Breytingar á samþykktum eða öðru því sem tilkynnt hefur verið skal tilkynna innan mánaðar sé ekki kveðið á um annað í lögum þessum eða reglugerð ráðsins (EB) nr.
723/2009. Krefjast má sannana fyrir lögmæti breytinga. Tilkynningar um breytingar skulu undirritaðar af meiri hluta stjórnar eða prókúruhafa.
![](/lagas/hk.jpg)
Samtökum um evrópska rannsóknarinnviði er skylt að hafa skammstöfunina ERIC í heiti sínu.
![](/lagas/hk.jpg)
Um stofnun og skráningu samtaka um evrópska rannsóknarinnviði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar ráðsins (EB) nr.
723/2009 og eftir því sem við á ákvæði laga um fyrirtækjaskrá.
4. gr.
Slit samtaka um evrópska rannsóknarinnviði.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar tekin hefur verið ákvörðun um slit samtaka um evrópska rannsóknarinnviði með lögboðið aðsetur á Íslandi, í samræmi við 2. mgr. 16. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr.
723/2009, skulu samtökin birta í Lögbirtingablaðinu áskorun til kröfuhafa samtakanna um að tilkynna kröfur sínar til stjórnar samtakanna innan sex vikna frá birtingu áskorunarinnar. Þekktum kröfuhöfum skal jafnframt send tilkynning um slitin sé þess kostur.
![](/lagas/hk.jpg)
Tilkynning um lok slitameðferðar samtaka um evrópska rannsóknarinnviði skal send ríkisskattstjóra innan tíu daga frá birtingu hennar og skal tilkynningin skráð í fyrirtækjaskrá. Um slit samtaka um evrópska rannsóknarinnviði gilda ákvæði 16. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr.
723/2009.
5. gr.
Reglugerð.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um ferli sem varðar umsóknir um þátttöku Íslands í ERIC-samtökum.
6. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.