Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um skiptaverðmæti]1)
1986 nr. 24 7. maí
1)L. 44/2013, 4. gr.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 12. maí 1986. Breytt með: L. 93/1986 (tóku gildi 1. jan. 1987). L. 21/1987 (tóku gildi 14. apríl 1987 nema 2. gr. sem tók gildi 1. júní 1987; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 4. gr.). L. 45/1992 (tóku gildi 10. júní 1992). L. 79/1994 (tóku gildi 30. maí 1994). L. 84/1995 (tóku gildi 21. júní 1995). L. 80/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998). L. 88/2002 (tóku gildi 23. maí 2002). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 44/2013 (tóku gildi 1. jan. 2014).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Um skiptaverðmæti sjávarafla.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Þegar afli fiskiskipa er seldur óunninn hér á landi er skiptaverðmæti aflans til hlutaskipta og aflaverðlauna 75% af því heildarverðmæti sem útgerðin fær fyrir hann. [Ekki er heimilt að draga frá heildarverðmæti afla í þessu sambandi kostnað við kaup á veiðiheimildum.]
1) Þessi hlutfallstala skal hækka eða lækka við breytingar á verði gasolíu til fiskiskipa með hliðsjón af því gasolíuverði í birgðum olíufélaganna sem olíuverðsákvörðun miðast við hverju sinni. Skiptahlutfallið skal hækka um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala lækkun á birgðaverði gasolíu niður fyrir 109 Bandaríkjadali á tonn fob en lækka um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala hækkun á birgðaverði gasolíu umfram 133 Bandaríkjadali á tonn fob. Skiptaverðmæti aflans skal þó aldrei vera lægra samkvæmt þessari grein en 70% af heildarverðmæti. Breytingar á gasolíuverði til fiskiskipa skulu miðast við mánaðamót.
![](/lagas/hk.jpg)
Frá og með 1. júní 1987 skal skiptaverðmæti skv. 1. málsl. 1. mgr. hækka í 76% af heildaraflaverðmæti. Frá sama tíma breytist viðmiðun til lækkunar skiptaverðmætishlutfalls skv. 3. málsl. 1. mgr. á þann hátt að hlutfallstalan lækki um eitt prósentustig fyrir hverja 12 Bandaríkjadala hækkun á birgðaverði gasolíu umfram 145 Bandaríkjadali á tonn fob.]
2)
1)L. 79/1994, 10. gr. 2)L. 21/1987, 1. gr.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar fiskiskip siglir með ísfisk til sölu í erlendri höfn er skiptaverðmæti aflans til hlutaskipta, aflaverðlauna og aukaaflaverðlauna 64% af því heildarverðmæti (brúttósöluverðmæti) sem útgerðin fær fyrir hann. Þetta hlutfall skal þó vera 70% þegar fiski er landað til bræðslu erlendis.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Þegar afli fiskiskips er fluttur ísaður í kössum með öðru skipi til sölu á erlendum markaði skal draga frá heildarverðmæti flutningskostnað, erlenda tolla og kostnað við söluna erlendis annan en umboðslaun. Skiptaverðmæti skal vera 76% af þannig ákveðnu söluverði með þeim breytingum til hækkunar eða lækkunar sem kveðið er á um í 1. gr.]
1)
1)L. 21/1987, 2. gr.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Þegar seldur er afli fiskiskips sem frystir bolfisk um borð, heilan eða flakaðan, er skiptaverðmætið 74,5% af fob-verðmæti framleiðslunnar við útflutning. Þetta skiptahlutfall skal þó vera 69% af cif-verðmætinu sé þannig samið um sölu framleiðslunnar.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar seldur er afli fiskiskips sem frystir rækju um borð er skiptaverðmætið 71,5% af fob-verðmæti framleiðslunnar við útflutning. Þetta hlutfall skal þó vera 66% af cif-verðmætinu sé þannig samið um sölu framleiðslunnar.
![](/lagas/hk.jpg)
Skiptahlutfallið skal hækka eða lækka um hálft prósentustig fyrir hvert eitt prósentustig sem skiptahlutfallið breytist til hækkunar eða lækkunar skv. 1. og 2. mgr. 1. gr.]
1)
1)L. 21/1987, 3. gr.
II. kafli.
…1)
1)L. 44/2013, 1. gr.
III. kafli.
…1)
1)L. 93/1986, 11. gr.
IV. kafli.
…
V. kafli.
…
VI. kafli.
Um reglugerð og gildistöku.
16. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra setur nánari reglur
1) um framkvæmd laga þessara.]
2)
1)Rg. 147/1998. 2)L. 44/2013, 2. gr.
17. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi og taka ákvæði þeirra til fiskafla og sjávarafurðaframleiðslu frá og með 15. maí 1986.
…
18. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Brot á 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. …
1)]
2)
1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 79/1994, 11. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
…
![](/lagas/hk.jpg)
[Eignum Styrktar- og lánasjóðs fiskiskipa og Framkvæmdasjóðs, sem verið hafa í vörslu Fiskveiðasjóðs, skal varið til rannsókna á kjörhæfni veiðarfæra og áhrifum þeirra á lífríki sjávar. Skal ráðherra semja við fjármálastofnanir um varðveislu og innheimtu verðbréfa sjóðanna.]
1)
1)L. 80/1997, brbákv.
[II. …
1)]
2)
1)5. mgr. ákvæðisins, sbr. l. 44/2013, 3. gr. 2)L. 44/2013, 3. gr.