Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vísitölu byggingarkostnaðar
1987 nr. 42 30. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 1987. Breytt með: L. 137/1989 (tóku gildi 16. jan. 1990). L. 75/2007 (tóku gildi 1. ágúst 2007).
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Hagstofa Íslands skal reikna og birta vísitölu byggingarkostnaðar. Vísitalan skal reist á þeim grunni sem Hagstofan ákveður í samráði við [Nýsköpunarmiðstöð Íslands].
1) Grunnur vísitölunnar skal miðaður við tiltekna gerð íbúðarhúsnæðis. Auk þess er Hagstofunni heimilt að reikna vísitölur sem miðast við aðrar gerðir húsa, byggingarmannvirkja eða hluta þeirra.
1)L. 75/2007, 17. gr.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Vísitala byggingarkostnaðar skal miðuð við byggingarkostnað á höfuðborgarsvæði. Vísitalan skal reiknuð samkvæmt verðlagi um miðjan hvern mánuð og gilda í mánaðartíma frá fyrsta degi mánaðarins næsta eftir útreikningsmánuð. Vísitalan skal reiknuð og birt með einum aukastaf.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Hagstofan skal eigi sjaldnar en á fimm ára fresti láta fara fram athugun á grundvelli vísitölunnar með hliðsjón af breytingum á byggingarháttum, byggingarefnum svo og á tilhögun launagreiðslna, verðskráningar og útreikninga.
![](/lagas/hk.jpg)
Sé ákveðið að breyta um grunn vísitölunnar skal Hagstofan ákveða og birta opinberlega hvernig vísitalan, miðuð við hinn nýja grunn, skuli tengd eldri vísitölum byggingarkostnaðar.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1987.
…
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði 2. gr. þessara laga um mánaðarlegan útreikning og gildistíma vísitölu byggingarkostnaðar breyta ekki gildi ákvæða um verðbætur í skuldabréfum, verksamningum og þess háttar sem sett eru í samræmi við fyrri lög um vísitölu byggingarkostnaðar. Sé ekki um annað samið skulu þær verðbætur, sem hér um ræðir, því miðast við vísitölur sem gilda í mánuðunum janúar, apríl, júlí og október og skal hver vísitala þá gilda í þrjá mánuði hvert sinn.
[II.
![](/lagas/hk.jpg)
Eftir upptöku virðisaukaskatts hinn 1. janúar 1990 skal Hagstofa Íslands við útreikning vísitölu byggingarkostnaðar frá og með janúar 1990 taka tillit til endurgreiðslna virðisaukaskatts af byggingu íbúðarhúsnæðis vegna vinnu á byggingarstað, sbr. 2. mgr.
42. gr. laga nr. 50/1988, með áorðnum breytingum, þannig að endurgreiddur virðisaukaskattur sé dreginn frá byggingarkostnaði reiknuðum með fullum virðisaukaskatti.]
1)
1)L. 137/1989, 1. gr.