Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2021. Útgáfa 151a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um Neytendastofu]1)
2005 nr. 62 20. maí
1)L. 125/2013, 4. gr.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 2005, nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 25. maí 2005. Breytt með: L. 47/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006). L. 34/2007 (tóku gildi 30. mars 2007). L. 29/2009 (tóku gildi 2. apríl 2009). L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 125/2013 (tóku gildi 31. des. 2013). L. 39/2014 (tóku gildi 1. sept. 2014).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Neytendastofa er ríkisstofnun sem starfa skal að stjórnsýsluverkefnum á sviði neytendamála, vöruöryggismála, opinberrar markaðsgæslu [og mælifræði]
1) svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Neytendastofa heyrir undir [ráðherra].
2)
1)L. 39/2014, 11. gr. 2)L. 126/2011, 405. gr.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Neytendastofa skal annast framkvæmd laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins og laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, svo sem nánar er kveðið á um í lögum um það efni. …
1) …
2) Einnig skal stofnunin hafa yfirumsjón með lögmælifræði og hagnýtri mælifræði og sjá um framkvæmd laga um [mælingar, mæligrunna og vigtarmenn].
3) Þá skal Neytendastofa leysa af hendi þau verk sem henni eru falin í öðrum lögum.
![](/lagas/hk.jpg)
[Neytendastofa skal stuðla að fræðslu til almennings um neytendamál og önnur verkefni sem stofnuninni verða falin með lögum eða reglugerðum. Neytendastofa skal skila ráðherra árlega skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári. Skýrsluna skal birta opinberlega.]
1)
1)L. 125/2013, 1. gr. 2)L. 39/2014, 12. gr. 3)L. 34/2007, 12. gr.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skipar forstjóra Neytendastofu til fimm ára í senn.
![](/lagas/hk.jpg)
[Forstjóri stjórnar daglegum rekstri Neytendastofu og ræður aðra starfsmenn. Forstjóri ber ábyrgð á að starfsemi og rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um skipulag og starfsemi Neytendastofu.
1)L. 125/2013, 2. gr.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skipar áfrýjunarnefnd neytendamála, sem í sitja þrír menn og jafnmargir til vara, til fjögurra ára í senn. Skulu formaður nefndarinnar og varamaður hans fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Ráðherra ákveður þóknun nefndarmanna sem greiðist úr ríkissjóði.
![](/lagas/hk.jpg)
Til áfrýjunarnefndar neytendamála má skjóta stjórnvaldsákvörðunum sem teknar eru samkvæmt eftirtöldum lögum:
a. lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins,
b. lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og
c. öðrum lögum á málefnasviði Neytendastofu sé heimild til slíks að finna í þeim lögum.
![](/lagas/hk.jpg)
Skrifleg kæra skal berast áfrýjunarnefndinni innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun skv. 2. mgr. Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar skal liggja fyrir innan sex vikna frá málskoti.
![](/lagas/hk.jpg)
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslunnar og eru aðfararhæfir.
5.–11. gr. …
1)
1)L. 125/2013, 3. gr.
12. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2005.
…
…
13. gr.
…
Ákvæði til bráðabirgða.
![](/lagas/hk.jpg)
Við gildistöku laga þessara skal starfsmönnum Löggildingarstofu boðið annað starf hjá Neytendastofu. Við ráðstöfun þeirra starfa þarf ekki að gæta
7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
![](/lagas/hk.jpg)
Við samþykkt laga þessara skipar [ráðherra]
1) tveggja manna undirbúningsnefnd sem hafa skal heimild til að undirbúa gildistöku laganna, þ.m.t. að bjóða starfsmönnum Löggildingarstofu og Samkeppnisstofnunar, eftir því sem við á, annað starf hjá Neytendastofu.
1)L. 98/2009, 58. gr.