Lagasafn. Íslensk lög 13. apríl 2021. Útgáfa 151b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um geymslufé
1978 nr. 9 5. maí
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 18. maí 1978. Breytt með: L. 57/1993 (tóku gildi 1. júlí 1993).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Hver sá, sem inna á af hendi peningagreiðslu en fær ekki greitt kröfueiganda vegna aðstæðna eða atvika sem kröfueigandi ber ábyrgð á, getur fullnægt greiðsluskyldu sinni með því að greiða skuldina á geymslureikning í viðskiptabanka eða sparisjóði.]
1)
1)L. 57/1993, 1. gr.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Við greiðslu á geymslureikning skal greiðandi greina ástæður til þess, að þessi greiðsluháttur sé nauðsynlegur, gefa upplýsingar um kröfuna, sem greiða á, og nafn, nafnnúmer og heimilisfang eiganda ef unnt er.
![](/lagas/hk.jpg)
Greiði banki röngum aðila geymslufé vegna rangra eða ófullnægjandi upplýsinga, telst greiðandi ekki hafa uppfyllt greiðsluskyldu sína.
![](/lagas/hk.jpg)
Greiðandi skal án ástæðulauss dráttar tilkynna kröfueiganda um greiðslu á geymslureikning, ef það er unnt. Vanræki greiðandi þessa tilkynningarskyldu sína, ber hann ábyrgð á tjóni, sem af því kann að leiða fyrir kröfueiganda.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Geymslufé greiðist þeim aðila, sem sannar rétt sinn til þess.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Sá, sem greitt hefur inn á geymslureikning, getur ekki fengið geymsluféð endurgreitt, nema hann annaðhvort sé orðinn kröfueigandi og sanni rétt sinn til geymslufjárins samkvæmt ákvæðum 3. gr., eða samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Geri greiðandi víðtækari fyrirvara um endurgreiðslu geymslufjár sér til handa, gilda ákvæði laga þessara ekki um þá greiðslu.
5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Réttur kröfueiganda til geymslufjár fyrnist á 20 árum frá innborgunardegi að telja. Áður en fyrningartími er liðinn, skal innlánsstofnun sú, sem varðveitir geymsluféð, tilkynna kröfueiganda og greiðanda um geymsluféð, sé þess kostur.
![](/lagas/hk.jpg)
Greiðandi getur krafist endurgreiðslu geymslufjár í eitt ár eftir að liðinn er sá tími, sem um ræðir í 1. mgr.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar frestir skv. 1. og 2. mgr. þessarar greinar eru liðnir, án greiðslu geymslufjárins til aðila, rennur það til ríkissjóðs.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um geymslufé og meðferð geymslureikninga.
7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Sérreglur um geymslufé í öðrum lögum skulu halda gildi sínu.