Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. október 2021. Útgáfa 151c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Slysavarnaskóla sjómanna
1991 nr. 33 19. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 17. apríl 1990 (á að vera 17. apríl 1991). Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Slysavarnafélag Íslands skal starfrækja Slysavarnaskóla sjómanna og fer Slysavarnafélagið með yfirstjórn skólans er starfar á vegum þess og ábyrgð.
Markmið skólans er að auka öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun í meðferð björgunar- og öryggisbúnaðar og almennri fræðslu um slysavarnir á sjó.
2. gr.
Slysavarnaskóli sjómanna skal halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnafræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi.
Aðalkennslugreinar skólans eru: Fræðsla um öryggismál, slysavarnir, björgunaraðferðir, skyndihjálp, flutningur sjúkra og slasaðra, meðferð björgunarbúnaðar, slökkvibúnaðar og reykköfunartækja.
3. gr.
[Ráðherra] 1) skipar fimm manna skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna til fjögurra ára í senn. Einn skal tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, einn af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og þrír tilnefndir af Slysavarnafélagi Íslands. Ráðherra skipar einn fulltrúa Slysavarnafélags Íslands formann skólanefndar.
Meginhlutverk skólanefndar er að fjalla um málefni Slysavarnaskólans, einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar Slysavarnafélags Íslands um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans.
1)L. 126/2011, 155. gr.
4. gr.
Skólanefnd ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna en um mannaráðningar fer samkvæmt lögum Slysavarnafélags Íslands.
5. gr.
Kostnaður við rekstur skólans skal greiddur úr ríkissjóði. Slysavarnafélag Íslands gerir fjárhagsáætlun fyrir skólann og leggur fyrir [ráðuneytið] 1) til staðfestingar.
1)L. 162/2010, 211. gr.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða. …