Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2022. Útgáfa 152a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vernd Breiðafjarðar
1995 nr. 54 8. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. mars 1995. Breytt með: L. 93/1996 (tóku gildi 1. jan. 1997). L. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998). L. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 131/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012). L. 138/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða
umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Tilgangur laga þessara er að stuðla að verndun Breiðafjarðar, einkum landslags, jarðmyndana, lífríkis og menningarminja.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði laganna taka til allra eyja, hólma og skerja á Breiðafirði ásamt fjörum í innri hluta fjarðarins sem markast af línu dreginni frá Ytranesi á Barðaströnd við fjörðinn norðanverðan í Hagadrápssker um Oddbjarnarsker, Stagley og Höskuldsey í Vallabjarg að sunnanverðu.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) fer með stjórn mála er varða vernd Breiðafjarðar samkvæmt lögum þessum. Um vernd menningarsögulegra minja fer samkvæmt þjóðminjalögum.
1)L. 126/2011, 210. gr.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Breiðafjarðarnefnd er [ráðherra]
1) til ráðgjafar um allt það er lýtur að framkvæmd laga þessara. Í nefndinni eiga sæti sjö menn, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn sem hér segir: [Sveitarfélög sem liggja að Breiðafirði tilnefna fjóra fulltrúa á þann hátt sem ráðherra ákveður í reglugerð],
2) Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum einn sameiginlega og einn er tilnefndur af þjóðminjaráði. [Ráðherra]
1) skipar einn mann í nefndina án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
![](/lagas/hk.jpg)
Nefndin skal í samráði við sveitarfélögin láta gera verndaráætlun þar sem fram kemur hvernig ná skuli þeim markmiðum sem sett eru með vernd svæðisins. Áætlun þessi skal send ráðherra til staðfestingar.
![](/lagas/hk.jpg)
Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir, náttúruverndarnefndir, [Umhverfisstofnun],
3) minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu.
![](/lagas/hk.jpg)
Nefndin skal árlega gefa ráðherra skýrslu um störf sín.
1)L. 126/2011, 210. gr. 2)L. 138/2011, 134. gr. 3)L. 164/2002, 31. gr.
5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) setur, að fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og umsögnum viðkomandi sveitarstjórna um þær, reglugerð þar sem kveðið skal á um verndaraðgerðir á grundvelli laganna, varnir gegn hvers konar mengun og aðgang ferðamanna að tilteknum stöðum á svæðinu sem viðkvæmir eru vegna náttúrufars.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra er fer með málefni menningarminja]
1) setur, að fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og að fenginni umsögn þjóðminjaráðs og húsafriðunarnefndar ríkisins eftir því sem við á, reglugerð um vernd menningarsögulegra minja á svæðinu, þar á meðal byggðarheildar gamalla húsa í Flatey og vernd sjóminja.
1)L. 126/2011, 210. gr.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Við gerð skipulagsáætlana á því svæði sem um getur í 2. gr. skulu sveitarfélög leita umsagnar Breiðafjarðarnefndar. Í skipulagsáætlunum ber að taka tillit til verndaráætlunar Breiðafjarðarnefndar.
![](/lagas/hk.jpg)
Þar sem ekki eru fyrir hendi samþykktar skipulagsáætlanir á því landsvæði sem um getur í 2. gr. er hvers konar mannvirkjagerð óheimil, svo og jarðrask, nema að fengnu [leyfi Umhverfisstofnunar].
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Framkvæmdir, sem nauðsynlegar og eðlilegar teljast til búskapar á lögbýlum, eru leyfilegar nema spjöllum valdi á menningarsögulegum minjum, náttúruminjum eða lífríki að [mati Umhverfisstofnunar]
1) eða þjóðminjaráðs þegar um fornleifar er að ræða.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ákvarðanir sem Umhverfisstofnun tekur og varða veitingu, endurskoðun eða afturköllun leyfis samkvæmt þessari grein sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.]
2)
1)L. 164/2002, 32. gr. 2)L. 131/2011, 22. gr.
7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Með rannsóknum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands, náttúrustofu Vestfjarða og náttúrustofu á Vesturlandi, sbr.
lög nr. 60/1992, skal markvisst unnið að því að auka þekkingu á náttúru Breiðafjarðarsvæðisins til að tryggja sem best verndun þess. Breiðafjarðarnefnd skal í samráði við þessa aðila láta gera áætlun um æskilegar rannsóknir á svæðinu og endurskoða hana reglulega.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra getur með reglugerð heimilað framangreindum stofnunum að standa sameiginlega að starfrækslu náttúrurannsóknastöðvar á svæðinu á grundvelli
laga nr. 60/1992. Rannsóknastöðin getur leitað eftir fjárstuðningi innlendra og erlendra aðila við starfsemi sína og einstök verkefni.
8. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum.
9. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Brot gegn lögum þessum og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim varða sektum [eða fangelsi allt að 2 árum].
1) Sektir renna í ríkissjóð.
![](/lagas/hk.jpg)
Beita má dagsektum er renna í ríkissjóð, allt að 50 þúsund krónum, til að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða láta af atferli sem er ólögmætt.
![](/lagas/hk.jpg)
…
2)
1)L. 82/1998, 222. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr.
10. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.