Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2023. Útgáfa 153a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands
2006 nr. 102 13. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. júní 2006 nema 14. gr. sem tók gildi 1. janúar 2007. Breytt með: L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Heimild til að stofna hlutafélag.
Ríkisstjórninni er heimilt að stofna hlutafélag um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands og tengda starfsemi. Í því skyni er ríkisstjórninni heimilt að leggja til félagsins eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar eftir því sem nánar greinir í lögum þessum.
Við stofnun félagsins skal allt hlutafé þess vera í eigu íslenska ríkisins og skal sala þess og ráðstöfun óheimil.
2. gr. Forræði á hlutafé ríkisins.
[[Sá ráðherra er fer með eignir ríkisins] 1) fer með hlut ríkisins í félaginu.] 2)
1)L. 126/2011, 437. gr. 2)L. 98/2009, 70. gr.
3. gr. Stofnhlutafé.
[Ráðherra] 1) er heimilt að leggja til félagsins eignir sem notaðar eru í þágu Alþjóðaflugþjónustunnar, skrifstofuhúsnæði og nauðsynlegan búnað flugvalla, annan en fasteignir á flugvöllum og flugbrautir. Jafnframt er ráðherra heimilt að ákveða að félagið yfirtaki réttindi, skuldir og skuldbindingar vegna flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstrar við stofnun þess.
[Ráðherra] 2) skal láta meta eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar skv. 1. mgr. og láta leggja mat á hvert stofnhlutafé hlutafélagsins skuli vera miðað við stofndag. Ríkisendurskoðandi skal staðfesta mat á hlutafé félagsins og ákvarða hvert skuli vera nafnverð stofnhlutafjár í félaginu. Skal slík staðfesting liggja fyrir við stofnun félagsins, sbr. 8. gr.
1)L. 126/2011, 437. gr. 2)L. 162/2010, 247. gr.
4. gr. Innborgun hlutafjár.
Hlutafé félagsins, eins og það er ákveðið skv. 3. gr., telst að fullu innborgað með yfirtöku félagsins á umræddum eignum, réttindum, skuldum og skuldbindingum, sbr. 9. gr.
5. gr. Tilgangur félagsins.
Tilgangur félagsins skal vera að annast rekstur og uppbyggingu flugleiðsöguþjónustu, þ.m.t. flugumferðarþjónustu, fjarskipta- og leiðsögukerfa, að annast rekstur og uppbyggingu flugvalla, svo og aðra skylda starfsemi. Félaginu skal vera heimilt að standa að stofnun og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Félaginu skal vera heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Tilgangi félagsins skal nánar lýst í samþykktum þess.
6. gr. Frávik frá lögum um hlutafélög.
Ákvæði 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 20. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 107. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, gilda ekki um tölu stofnenda og fjölda hluthafa í félaginu og ekki skal heldur ákvæði 2. mgr. 14. gr. hlutafélagalaga gilda um félagið. Um mat á stofnfé félagsins fer skv. 2. mgr. 3. gr. laga þessara. Að öðru leyti og ef annað leiðir ekki af lögum þessum taka ákvæði hlutafélagalaga til félagsins.
7. gr. Réttindi starfsmanna.
Við niðurlagningu starfsemi flugleiðsöguþjónustu og flugvallareksturs Flugmálastjórnar Íslands, sbr. 9. gr., fer um réttindi og skyldur starfsmanna eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, og lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/2002, eftir því sem við á.
8. gr. Stofnfundur og stofnyfirlýsing.
Á stofnfundi skal leggja fram til afgreiðslu drög að stofnyfirlýsingu og samþykktum fyrir félagið. Á stofnfundi skal kjósa félaginu stjórn samkvæmt samþykktum þess til fyrsta aðalfundar. Stjórn félagsins skal við stofnun þess vera skipuð fimm mönnum og þremur til vara.
Í stofnyfirlýsingu skv. 1. mgr. skal mælt fyrir um þau atriði sem áskilið er að fram komi í stofnsamningi samkvæmt hlutafélagalögum að öðru leyti en getið er um í lögum þessum.
9. gr. Yfirtaka á hluta starfsemi Flugmálastjórnar Íslands.
Félagið skal yfirtaka flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands ásamt tilheyrandi réttindum og skyldum 1. janúar 2007 og hættir Flugmálastjórn Íslands samhliða slíkri starfsemi, sbr. nánar lög um Flugmálastjórn Íslands. Yfirtakan veitir samningsaðilum, sem breytingin varðar, ekki heimild til uppsagnar fyrirliggjandi samningssambanda.
10. gr. Samningar ríkisins við félagið.
Heimilt er [ráðherra] 1) að gera samninga við félagið um uppbyggingu og rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu til að tryggja að uppbygging, rekstur og þjónusta á þessum sviðum sé í samræmi við markmið stjórnvalda og stefnumótun í samgöngumálum á hverjum tíma.
Nú óska stjórnvöld eftir því að félagið veiti þjónustu, leggi í framkvæmdir eða rekstur, svo sem vegna þjónustu á tilteknu landsvæði, til almannaheilla, í öryggisskyni eða vegna annarra ástæðna, sem ljóst er að ekki skilar arði, og skal þá gera um það samning milli [ráðherra] 1) og félagsins. Heimilt er ráðherra að fela Flugmálastjórn Íslands að annast gerð slíkra samninga fyrir sína hönd.
1)L. 162/2010, 247. gr.
11. gr. Skuldbindingar ríkisins samkvæmt alþjóðasamþykktum o.fl.
Heimilt er [ráðherra] 1) fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og Flugmálastjórn Íslands að fela félaginu að fara með réttindi og annast skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt alþjóðasamþykktum, alþjóðasamningum eða samningum við önnur ríki, þ.m.t. vegna Alþjóðaflugþjónustunnar, enda samrýmist slíkt tilgangi félagsins.
Er félaginu skylt að fara að fyrirmælum framangreindra stjórnvalda hér að lútandi sem og öðrum fyrirmælum þeirra er varða framkvæmd og efndir slíkra samninga og annarra þjóðréttarlegra skuldbindinga.
1)L. 162/2010, 247. gr.
12. gr. Gjaldskrá.
Stjórn félagsins skal setja þjónustugjaldskrá fyrir félagið. Heimilt er m.a. að taka tillit til stofnkostnaðar, viðhalds og reksturs.
13. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 14. gr. öðlast þó gildi 1. janúar 2007.
14. gr. …