Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2023. Útgáfa 153a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana
2021 nr. 111 25. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. september 2021; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 37. gr.; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2001/42/EB, 2011/92/ESB, 2014/52/ESB. Breytt með: L. 67/2022 (tóku gildi 13. júlí 2022).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Markmið, gildissvið, skilgreiningar o.fl.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. sjálfbær þróun, heilnæmt umhverfi og umhverfisvernd sem vinna skal að með umhverfismati framkvæmda og áætlana sem eru líklegar til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif,
b. skilvirkni við umhverfismat framkvæmda og áætlana,
c. að almenningur hafi aðkomu að umhverfismati framkvæmda og áætlana og samvinna aðila sem hafa hagsmuna að gæta eða láta sig málið varða vegna umhverfismats framkvæmda og áætlana.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. skipulagsáætlanir og breytingar á þeim samkvæmt skipulagslögum og lögum um skipulag haf- og strandsvæða,
b. aðrar áætlanir og breytingar á þeim sem marka stefnu fyrir leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka við lög þessi og eru undirbúnar og/eða afgreiddar af stjórnvöldum og unnar samkvæmt lögum eða ákvörðun ráðherra,
c. framkvæmdir sem kunna eða eru líklegar til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. 1. viðauka við lög þessi.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. Almenningur: Einn eða fleiri einstaklingar eða lögaðilar, samtök þeirra, félög eða hópar.
2. Áætlun: Áætlun sem markar stefnu fyrir leyfisveitingar til framkvæmda sem falla undir lög þessi og er undirbúin og/eða samþykkt af stjórnvöldum og unnin samkvæmt lögum eða ákvörðun ráðherra.
3. Framkvæmd: Hvers konar nýframkvæmd eða breyting á eldri framkvæmd sem fellur undir lög þessi og starfsemi sem henni fylgir.
4. Framkvæmdaraðili: Aðili sem hyggst hefja framkvæmd sem fellur undir lög þessi.
5. Leyfi til framkvæmda: Leyfi sem veitt eru vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar sem fellur undir lög þessi og þeirrar starfsemi sem henni fylgir, svo sem framkvæmdaleyfi samkvæmt skipulagslögum, byggingarleyfi samkvæmt lögum um mannvirki, starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og önnur sambærileg leyfi sem varða meginþætti framkvæmdar og/eða starfsemi og umhverfisáhrif þeirra.
6. Matsáætlun: Áætlun framkvæmdaraðila um hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati fyrirhugaðrar framkvæmdar og á hvaða þætti framkvæmdarinnar og umhverfis verði lögð áhersla í umhverfismatsskýrslu.
7. Matsskyld framkvæmd: Framkvæmd sem háð er umhverfismati samkvæmt ákvæðum laga þessara ásamt þeirri starfsemi sem henni fylgir, sbr. 1. viðauka.
8. Mótvægisaðgerðir: Aðgerðir til að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð umhverfisáhrif fyrirhugaðrar framkvæmdar eða áætlunar.
9. Tilkynningarskyld framkvæmd: Framkvæmd sem tilkynna ber til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um hvort hún skuli háð umhverfismati, sbr. 1. viðauka.
10. Umhverfismatsskýrsla: Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar eða áætlunar og starfsemi sem henni fylgir ásamt tillögum um mótvægisaðgerðir eftir því sem við á.
11. Umsagnaraðilar: Opinberar stofnanir, stjórnvöld eða aðrir lögaðilar sem sinna lögbundnum verkefnum sem varða framkvæmdir og/eða áætlanir sem falla undir lög þessi eða umhverfisáhrif þeirra.
12. Vöktun: Kerfisbundin mæling og skráning einstakra þátta í umhverfinu til að sannreyna umhverfisáhrif.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. íbúa og heilbrigði manna,
b. líffræðilega fjölbreytni með sérstakri áherslu á tegundir og búsvæði sem njóta verndar,
c. land, landslag, víðerni, jarðmyndanir, jarðveg, vatn, loft og loftslag,
d. efnisleg verðmæti og menningarminjar,
e. næmi framkvæmdar eða áætlunar fyrir hættu á stórslysum og náttúruhamförum,
f. samspil þeirra þátta sem taldir eru upp í a–e-lið.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
II. kafli. Stjórnsýsla, forsamráð og samþætt málsmeðferð.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. að hafa eftirlit með framkvæmd laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim,
b. að veita upplýsingar og leiðbeiningar um umhverfismat framkvæmda og áætlana,
c. að taka ákvörðun um hvort tilkynningarskyldar framkvæmdir skuli háðar umhverfismati,
d. að annast kynningu matsáætlana og umhverfismatsskýrslna framkvæmdaraðila,
e. að gefa álit um matsáætlanir og umhverfismat framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir,
f. að veita ráðgjöf um umfang og áherslur umhverfismats áætlana og veita umsagnir um umhverfismatsskýrslur áætlana,
g. að starfrækja vefsjá og gagna- og samráðsgátt um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
III. kafli. Umhverfismat áætlana.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. gerð umhverfismatsskýrslu,
b. kynningu og samráði um umhverfismatsskýrslu við umsagnaraðila og almenning og eftir því sem við á yfir landamæri,
c. afgreiðslu áætlunarinnar að teknu tilliti til niðurstöðu umhverfismats og samráðs.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. yfirlit yfir efni viðkomandi áætlunar og tengsl hennar við aðra áætlanagerð,
b. lýsing og mat á líklegum umhverfisáhrifum af framkvæmd áætlunarinnar þar sem lagt er mat á vægi umhverfisáhrifa út frá skilgreindum viðmiðum,
c. lýsing og mat raunhæfra valkosta við áætlunina, að teknu tilliti til markmiða með gerð áætlunarinnar og landfræðilegs umfangs hennar, þ.m.t. núllkosts,
d. lýsingu á fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum og vöktun, eftir því sem við á,
e. samantekt á skýru og auðskiljanlegu máli á upplýsingum í a–d-lið,
f. nánari upplýsingar sem tilgreindar eru í reglugerð um efni umhverfismatsskýrslu.
Samráð skal haft við Skipulagsstofnun um umfang og nákvæmni umhverfismatsins.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
IV. kafli. Umhverfismat framkvæmda.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. gerð, kynningu og afgreiðslu matsáætlunar,
b. gerð umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila,
c. kynningu og samráði um umhverfismatsskýrslu við umsagnaraðila og almenning og eftir því sem við á yfir landamæri,
d. athugun Skipulagsstofnunar á umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila, eftir atvikum viðbótarupplýsingum skv. 2. mgr. 21. gr., ásamt umsögnum umsagnaraðila og almennings, og álit stofnunarinnar um umhverfismat framkvæmdarinnar,
e. að álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmdarinnar sé lagt til grundvallar við afgreiðslu umsókna um leyfi til framkvæmda.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. lýsingu á framkvæmdinni, svo sem um staðsetningu, hönnun og stærð, og aðra þætti framkvæmdarinnar sem máli skipta,
b. lýsingu og mat á líklegum umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar þar sem lagt er mat á vægi umhverfisáhrifa út frá skilgreindum viðmiðum,
c. lýsingu og mat á raunhæfum valkostum sem framkvæmdaraðili hefur kannað og upplýsingar um helstu ástæður fyrir þeim valkosti sem var valinn, með tilliti til umhverfisáhrifa framkvæmdarinnar,
d. lýsingu á fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum og vöktun, eftir því sem við á,
e. samantekt á skýru og auðskiljanlegu máli um upplýsingar í a–d-lið,
f. nánari upplýsingar sem tilgreindar eru í reglugerð um efni umhverfismatsskýrslu.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
V. kafli. Kröfur vegna leyfisveitinga.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
VI. kafli. Endurskoðun umhverfismats, undanþágur og málskot.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
VII. kafli. Eftirlit og stjórnvaldssektir.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
VIII. kafli. Ýmis ákvæði.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. umhverfismat yfir landamæri skv. 5. gr.,
b. gagna- og samráðsgátt skv. 7. gr.,
c. forsamráð skv. 8. gr.,
d. sameiningu skýrslugerðar og kynningar skv. 9.–11. gr.,
e. kynningu og samráð gagnvart almenningi og umsagnaraðilum skv. III. og IV. kafla,
f. umfang, efni og framsetningu umhverfismatsskýrslu áætlunar skv. 14. gr.,
g. tilkynningar um framkvæmdir skv. 19. gr.,
h. matsáætlun og umhverfismatsskýrslu framkvæmdar skv. 21. og 22. gr.,
i. athugun Skipulagsstofnunar skv. 23. og 24. gr.,
j. leyfi til framkvæmda skv. 25.–27. gr.,
k. málsmeðferð við endurskoðun umhverfismats skv. 28. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
a. forsamráð skv. 8. gr.,
b. samráð um umfang og áherslur umhverfismats áætlana skv. 13. gr.,
c. efni og framsetningu vöktunaráætlana skv. d-lið 1. mgr. 14. gr.,
d. kynningu og samráð gagnvart almenningi og umsagnaraðilum skv. III. og IV. kafla,
e. efni og framsetningu matsáætlana og umhverfismatsskýrslna skv. 21. og 22. gr.,
f. flokkun, viðmið og vægi umhverfisáhrifa,
g. leyfi til framkvæmda sem falla undir lög þessi.
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)Rg. 1381/2021.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/42/EB frá 27. júní 2001 um mat á áhrifum tiltekinna skipulags- og framkvæmdaáætlana á umhverfið, sem vísað er til í lið 2i í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2002.
2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/92/ESB frá 13. desember 2011 um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið sem vísað er til í lið 1a í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2012.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið, sem vísað er til í lið 1a í I. kafla XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015 frá 30. apríl 2015.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
1. Í þeim tilvikum þegar umhverfismatsferli framkvæmdar sem fellur undir lög þessi er lokið við gildistöku laga þessara skulu ákvæði eldri laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, er lúta að leyfisveitingum vegna framkvæmdarinnar gilda.
2. Þegar frummatsskýrsla vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar hefur verið send Skipulagsstofnun við gildistöku laga þessara er heimilt að ljúka umhverfismati samkvæmt þeirri málsmeðferð sem gildir í eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
3. Þegar framkvæmdir í flokki B og C samkvæmt eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, hafa verið tilkynntar til Skipulagsstofnunar eða sveitarfélags til ákvörðunar um matsskyldu skv. 6. gr. sömu laga við gildistöku laga þessara er heimilt að ljúka þeirri málsmeðferð samkvæmt því sem gildir í eldri lögunum.
4. Þrátt fyrir ákvæði 15. gr. og 3. mgr. 16. gr. fer um kynningu, samráð og birtingu matsskyldra áætlana og umhverfisskýrslna þeirra samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006, fram til 1. desember 2022.
5. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 20. gr., 2. og 3. mgr. 21. gr., 1. mgr. 23. gr., 3. mgr. 26. gr. og 4. mgr. 27. gr. fer um kynningu, samráð, birtingu umhverfismatsskýrslna framkvæmda og birtingu leyfa til framkvæmda samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, til 1. desember 2022.
1. viðauki.
![](/lagas/hk.jpg)
Flokkur framkvæmda | A | B | |
1. Landbúnaður, skógrækt og fiskeldi. | |||
1.01 | Framkvæmdir til endurskipulagningar á landareignum í dreifbýli sem taka til 20 ha svæðis eða stærra. | X | |
1.02 | Framkvæmdir til að leggja óræktað land eða lítt snortið svæði undir þaulnýtinn landbúnað sem taka til 5 ha svæðis eða stærra. | X | |
1.03 | Vatnsstjórnunarframkvæmdir vegna landbúnaðar, þ.m.t. áveitu- og framræsluframkvæmdir, sem hafa áhrif á 2 ha eða stærra svæði. | X | |
1.04 | Nýræktun skóga sem tekur til 200 ha eða stærra svæðis. Varanleg skógareyðing sem tekur til 0,5 ha svæðis eða stærra. | X | |
1.05 | Uppgræðsla lands á verndarsvæðum. | X | |
1.06 | Stöðvar eða bú með þauleldi alifugla eða svína með a.m.k.: | X | |
i. 85.000 stæði fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur, | |||
ii. 3.000 stæði fyrir alisvín (yfir 30 kg) eða | |||
iii. 900 stæði fyrir gyltur. | |||
1.07 | Stöðvar eða bú með þauleldi búfjár utan þess sem tilgreint er í tölul. 1.06. | X | |
1.08 | Sjókvíaeldi þar sem hámarkslífmassi er 3.000 tonn eða meiri. | X | |
1.09 | Þauleldi á fiski, annað en það sem tilgreint er í tölul. 1.09, þar sem hámarkslífmassi er 200 tonn eða meiri og fráveita til sjávar eða þar sem hámarkslífmassi er 20 tonn eða meiri og fráveita er í ferskvatn. | X | |
1.10 | Endurheimt lands frá hafi. | X | |
2. Vinnsla auðlinda í jörðu. | |||
2.01 | Efnistaka þar sem áætlað er að raska 25 ha svæði eða stærra eða efnismagn er 500.000 m3 eða meira. | X | |
2.02 | Efnistaka, utan þess sem tilgreint er í tölul. 2.01, þar sem áætlað er að raska 2,5 ha svæði eða stærra eða efnismagn er 50.000 m3 eða meira, einnig efnistaka þar sem fleiri en einn efnistökustaður vegna sömu framkvæmdar og á sama svæði ná samanlagt yfir 2,5 ha svæði eða stærra. | X | |
2.03 | Neðanjarðarnámur. | X | |
2.04 | Djúpborun (að frátalinni borun til að kanna stöðugleika jarðvegs), einkum: | X | |
i. borun á vinnsluholum og rannsóknarholum á háhitasvæðum, | |||
ii. borun eftir jarðhita á lághitasvæðum þar sem ölkeldur, laugar eða hverir eru á yfirborði eða í næsta nágrenni, | |||
iii. borun fyrir geymslu kjarnorkuúrgangs, | |||
iv. vinnsla og rannsóknarboranir vegna kolvetnis utan netlaga og innan efnahagslögsögu og landgrunnsmarka, | |||
v. borun eftir vatni þar sem gert er ráð fyrir að vinna a.m.k. 70 l/sek. | |||
2.05 | Iðjuver ofan jarðar til að nema kol, jarðolíu, jarðgas og málmgrýti, svo og jarðbiksleir. | X | |
3. Orkuiðnaður. | |||
3.01 | Olíuhreinsunarstöðvar (þó ekki fyrirtæki sem framleiða eingöngu smurolíur úr hráolíu) og mannvirki fyrir kolagösun og þéttingu úr a.m.k. 500 tonnum af kolum eða jarðbiksleir á dag. | X | |
3.02 | Öll orkuver með 10 MW uppsett rafafl eða meira. Jarðvarmavirkjanir og önnur varmaorkuver með 50 MW uppsett varmaafl eða meira. | X | |
3.03 | Kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar, einnig þegar slík orkuver eða kjarnakljúfar (kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar teljast ekki lengur til slíkra stöðva þegar öll kjarnakleyf efni og önnur geislamenguð efni hafa verið endanlega fjarlægð af staðnum) eru rifnir niður eða teknir úr notkun (nema rannsóknastöðvar með yfir 1 kW heildarhitaafköst þar sem fer fram umbreyting á kjarnakleyfum efnum og tímgunarefnum). | X | |
3.04 | Stöðvar þar sem geisluð kjarnakleyf efni eru endurunnin. Stöðvar til framleiðslu eða auðgunar kjarnakleyfra efna, til vinnslu geislaðra kjarnakleyfra efna eða mjög geislavirks úrgangs, til endanlegrar geymslu á geisluðum kjarnakleyfum efnum, eingöngu til endanlegrar geymslu á geislavirkum úrgangi eða eingöngu til geymslu (til meira en tíu ára) á geisluðum kjarnakleyfum efnum eða geislavirkum úrgangi annars staðar en á framleiðslustað. | X | |
3.05 | Stöðvar til vinnslu og geymslu á geislavirkum úrgangi, utan þeirra sem tilgreindar eru í tölul. 3.04. | X | |
3.06 | Vinnsla á meira en 500 tonnum af jarðolíu og meira en 500.000 m3 af jarðgasi á dag. | X | |
3.07 | Flutningskerfi gass, gufu eða heits vatns. | X | |
3.08 | Leiðslur sem eru 10 km eða lengri og 50 cm í þvermál eða meira til flutnings á gasi, olíu eða annars konar efnum/efnasamböndum. | X | |
3.09 | Leiðslur sem eru 10 km eða lengri og 50 cm í þvermál eða meira til flutnings á koltvísýringi (CO2) til …1) geymslu í jörðu, ásamt þrýstiaukadælu. | X | |
3.10 | Leiðslur til flutnings á olíu og gasi og til flutnings á koltvísýringi (CO2) til …1) geymslu í jörðu utan þess sem tilgreint er í tölul. 3.08 og 3.09. | X | |
3.11 | Geymsla á jarðgasi ofan jarðar. | X | |
3.12 | Neðanjarðargeymsla á eldfimu gasi. | X | |
3.13 | Geymsla jarðefnaeldsneytis ofan jarðar. | X | |
3.14 | Gerð taflna úr kolum og brúnkolum. | X | |
3.15 | Vatnsorkuver, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02, með uppsett rafafl 200 kW eða meira. | X | |
3.16 | Vindorkuver, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02, með uppsett rafafl 1 MW eða meira eða mannvirki sem eru 25 m eða hærri. | X | |
3.17 | Jarðvarmaver eða iðjuver til framleiðslu á rafmagni, gufu og heitu vatni sem nemur 2.500 kW uppsettu afli eða meira, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02. Uppsett afl varmavera skal reikna út frá því framrásarhitastigi sem sent er frá varmaverinu og því bakrásarhitastigi sem notendur varmans skila frá sér. | X | |
3.18 | [Geymslusvæði]1) fyrir koltvísýring (CO2) í jörðu. | X | |
3.19 | Mannvirki sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til geymslu í jörðu frá verksmiðjum eða iðjuverum sem heyra undir flokk A eða frá verksmiðjum eða iðjuverum þar sem árleg heildarföngun koltvísýrings nemur 1,5 megatonnum eða meira. | X | |
3.20 | Mannvirki sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til …1) geymslu í jörðu úr andrúmslofti eða frá verksmiðjum eða iðjuverum utan þess sem fellur undir tölul. 3.19. | X | |
4. Framleiðsla og vinnsla málma. | |||
4.01 | Verksmiðjur þar sem fram fer frumbræðsla á steypujárni og stáli. Framleiðsla hrámálms, sem inniheldur ekki járn úr grýti, kirni eða afleiddu hráefni, sem fer fram með málmvinnsluaðferðum, efnafræðilegum aðferðum eða rafgreiningaraðferðum. | X | |
4.02 | Stöðvar til framleiðslu á steypujárni og stáli (fyrsta og önnur bræðsla) ásamt samfelldri steypingu þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.03 | Stöðvar til vinnslu á járnkenndum málmum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2: | X | |
i. heitvölsunarstöðvar, | |||
ii. smiðjur með hömrun, | |||
iii. varnarhúðun með bræddum málmum. | |||
4.04 | Málmsteypusmiðjur fyrir járnkennda málma þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.05 | Stöðvar til bræðslu, einnig málmblendis, á járnlausum málmum öðrum en góðmálmum, einnig endurheimtum vörum (hreinsun, steypa í steypusmiðjum o.s.frv.) þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.06 | Stöðvar þar sem unnið er að yfirborðsmeðferð málma og plastefna með rafgreiningar- og efnaaðferðum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.07 | Framleiðsla og samsetning vélknúinna ökutækja og framleiðsla á hreyflum í slík ökutæki þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.08 | Skipasmíðastöðvar þar sem gólfflötur mannvirkja er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.09 | Stöðvar til smíða og viðgerða á loftförum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.10 | Framleiðsla á járnbrautarbúnaði þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.11 | Málmmótun með sprengiefnum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
4.12 | Stöðvar til að brenna og glæða málmgrýti þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
5. Steinefnaiðnaður. | |||
5.01 | Koxofnar (þurreiming kola) þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
5.02 | Sementsverksmiðjur þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
5.03 | Stöðvar til framleiðslu á gleri og trefjaefni þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
5.04 | Stöðvar til að bræða steinefni og framleiða steinefnatrefjar þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
5.05 | Framleiðsla á keramikvörum með brennslu, svo sem þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteinum, flísum, leirmunum eða postulíni, þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
6. Efnaiðnaður. | |||
6.01 | Efnaverksmiðjur með samþætta framleiðslu þar sem fram fer umfangsmikil iðnaðarframleiðsla með efnaumbreytingu og framleiða: | X | |
i. lífrænt hráefni, | |||
ii. ólífrænt hráefni, | |||
iii. áburð sem inniheldur fosfór, köfnunarefni eða kalíum (einnig áburðarblöndur), | |||
iv. grunnvörur fyrir plöntuverndarvörur og sæfivörur, | |||
v. grunnlyfjavörur með efnafræðilegum og líffræðilegum aðferðum, | |||
vi. sprengiefni. | |||
6.02 | Meðferð á hálfunnum vörum og framleiðsla kemískra efna, utan þess sem tilgreint er í tölul. 6.01, þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
6.03 | Framleiðsla á sæfivörum, plöntuverndarvörum og lyfjum, málningu og lakki, gúmmílíki og peroxíðum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
6.04 | Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu eða efnavörur með 50.000 m3 geymslugetu eða meira. | X | |
6.05 | Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu og önnur kemísk efni þar sem geymslugeta er a.m.k. 200 m3 utan þess sem tilgreint er í tölul. 6.04. | X | |
7. Matvælaiðnaður. | |||
7.01 | Framleiðsla á olíu og fitu úr jurtum og dýrum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.02 | Pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.03 | Framleiðsla á mjólkurvörum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.04 | Öl- og maltgerð þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.05 | Framleiðsla á sætindum og sírópi þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.06 | Sláturhús þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.07 | Stöðvar til sterkjuframleiðslu þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
7.08 | Fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur í þéttbýli með framleiðslugetu 1.000 tonn á sólarhring eða meiri. | X | |
7.09 | Fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur, utan þess sem tilgreint er í tölul. 7.08, þar sem framkvæmd er staðsett í þéttbýli og framleiðslugeta er a.m.k. 500 tonn á sólarhring. | X | |
7.10 | Sykurverksmiðjur þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
8. Textíl-, leður-, timbur- og pappírsiðnaður. | |||
8.01 | Verksmiðjur sem framleiða: | X | |
i. pappírsdeig úr timbri eða svipuðum trefjaefnum, | |||
ii. pappír og pappa og geta framleitt meira en 200 tonn á dag. | |||
8.02 | Verksmiðjur til framleiðslu á pappír og pappa utan þeirra sem tilgreindar eru í tölul. 8.01 og þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
8.03 | Stöðvar þar sem fram fer formeðferð (t.d. þvottur, bleiking, mersivinna) eða litun trefja eða textílefna þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
8.04 | Stöðvar þar sem fram fer sútun á húðum og skinnum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
8.05 | Stöðvar þar sem fram fer vinnsla og framleiðsla á sellulósa þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2. | X | |
9.Gúmmíiðnaður. | |||
9.01 | Framleiðsla og meðferð á vörum úr gúmmílíki þar sem stærð gólfflatar er a.m.k. 1.000 m2 . | X | |
10. Grunnvirki. | |||
10.01 | Iðnaðarframkvæmd þar sem framkvæmdasvæði eða gólfflötur bygginga er a.m.k. 20.000 m2. | X | |
10.02 | Framkvæmd við uppbyggingu mannvirkja, svo sem við byggingu verslunarmiðstöðva, bílastæða, íþróttaleikvanga, háskóla og sjúkrahúsa, og sambærilega mannvirkjagerð þar sem framkvæmdasvæði eða gólfflötur bygginga er a.m.k. 20.000 m2. | X | |
10.03 | Bygging samgöngumiðstöðva þar sem framkvæmdasvæði er a.m.k. 5.000 m2. | X | |
10.04 | Flugvellir með 2.100 m meginflugbraut eða lengri. | X | |
10.05 | Flugvellir með styttri en 2.100 m meginflugbraut. | X | |
10.06 | Lagning hraðbrauta og sambærilegra vega, svo sem lagning nýrra vega með aðskildum akstursstefnum og mislægum vegamótum. | X | |
10.07 | Lagning nýrra vega sem eru 10 km eða lengri eða breikkun vega úr tveimur akreinum í a.m.k. fjórar sem eru 10 km eða lengri. | X | |
10.08 | Lagning nýrra vega eða enduruppbygging eða breikkun vega utan þéttbýlis sem ekki eru tilgreindir í tölul. 10.06 eða 10.07 sem eru a.m.k. 5 km. | X | |
10.09 | Viðskiptahafnir, skipgengar vatnaleiðir og innhafnir og viðlegubryggjur til lestunar og löndunar utan hafna (aðrar en ferjulægi) fyrir skip stærri en 1.350 tonn. | X | |
10.10 | Hafnir, vatnaleiðir og viðlegubryggjur, utan þess sem tilgreint er í tölul. 10.09 þar sem framkvæmdasvæði er a.m.k. 1 ha. | X | |
10.11 | Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni þar sem 3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða rúmtak vatns er meira en 10 milljónir m3. | X | |
10.12 | Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni þar sem framkvæmdasvæði er a.m.k. 1 ha utan þess sem tilgreint er í tölul. 10.11. | X | |
10.13 | Lagning járnbrauta um langar vegalengdir. | X | |
10.14 | Járnbrautir, sporvagnar, lestir í lofti og neðan jarðar, svifbrautir og ámóta brautir af sérstakri gerð sem notaðar eru eingöngu eða aðallega til fólksflutninga. | X | |
10.15 | Lagning loftlína til flutnings á raforku með a.m.k. 132 kV spennu. | X | |
10.16 | Lagning loftlína til flutnings raforku, utan þess sem fellur undir tölul. 10.15, með a.m.k. 66 kV spennu. Lagning strengja í jörð, vatn eða sjó sem eru a.m.k. 10 km og utan þéttbýlis, einnig styttri en 10 km ef staðsettir á verndarsvæðum utan þéttbýlis. | X | |
10.17 | Lagning vatnsveitu um langan veg. | X | |
10.18 | Mannvirki til að verjast rofi á strandlengjum á verndarsvæðum, t.d. með stíflugörðum, brimbrjótum, hafnargörðum og öðrum varnarmannvirkjum gegn ágangi sjávar. Landfyllingar þar sem áætluð uppfylling er 5 ha eða stærri. Undanskilið er viðhald og endurbygging framangreindra mannvirkja. | X | |
10.19 | Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn með 300 l/sek. meðalrennsli eða meira á ári. | X | |
10.20 | Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn, utan þess sem fellur undir tölul. 10.19, með sem nemur a.m.k. 70 l/sek. | X | |
10.21 | Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita meira en 1.000 l/sek. af vatni á milli vatnasviða. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn. | X | |
10.22 | Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita vatni á milli vatnasviða, utan þess sem fellur undir tölul. 10.21. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn. | X | |
11. Aðrar framkvæmdir. | |||
11.01 | Varanlegar kappaksturs- og reynsluakstursbrautir fyrir vélknúin ökutæki. | X | |
11.02 | Förgunarstöðvar þar sem spilliefni eru brennd, meðhöndluð með efnum eða urðuð. Aðrar förgunarstöðvar úrgangs sem meðhöndla meira en 500 tonn af úrgangi á ári. | X | |
11.03 | Förgunarstöðvar þar sem úrgangur er brenndur, meðhöndlaður með efnum eða urðaður, utan þess sem tilgreint er í tölul. 11.02. | X | |
11.04 | Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða atvinnustarfsemi, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu a.m.k. 150.000 persónueiningar. | X | |
11.05 | Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða atvinnustarfsemi, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu a.m.k. 2.000 persónueiningar utan þess sem tilgreint er í tölul. 11.04. Sams konar framkvæmdir á verndarsvæðum og þar sem losað er í viðkvæman viðtaka ef afkastageta nemur a.m.k. 100 persónueiningum. | X | |
11.06 | Förgunarstöðvar fyrir seyru. | X | |
11.07 | Geymsla brotajárns, þ.m.t. farartækja, sem er a.m.k. 1.500 tonn á ári. | X | |
11.08 | Prófunaraðstaða fyrir vélar, hverfla eða hvarfrými. | X | |
11.09 | Stöðvar sem framleiða steinefnatrefjar. | X | |
11.10 | Stöðvar til að endurvinna sprengiefni eða eyða því. | X | |
11.11 | Förgun sláturúrgangs. | X | |
11.12 | Endurnýting úrgangs þar sem meðhöndluð eru meira en 500 tonn af úrgangi á ári. | X | |
11.13 | Varnargarðar til varnar ofanflóðum í þéttbýli. | X | |
12. Ferðaþjónusta og afþreying. | |||
12.01 | Skíðabrekkur, skíðalyftur, kláfar og tengdar framkvæmdir sem ná yfir 15 ha svæði, eða þar sem mannvirki eru 15 m eða hærri eða framkvæmdir eru á jökli. | X | |
12.02 | Smábátahafnir með a.m.k. 100 bátalægi. | X | |
12.03 | Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn á miðhálendinu og á verndarsvæðum á láglendi utan þéttbýlis. | X | |
12.04 | Framkvæmdir við uppbyggingu orlofsþorpa eða hótela og tengdra framkvæmda utan þéttbýlis þar sem heildarbyggingarmagn er a.m.k. 5.000 m2 eða gestafjöldi (gistirúm) a.m.k. 200. | X | |
12.05 | Varanleg tjaldsvæði og hjólhýsasvæði sem eru a.m.k. 10 ha og hjólhýsasvæði óháð stærð á verndarsvæðum. | X | |
12.06 | Skemmtigarðar sem ná yfir a.m.k. 2 ha svæði. | X | |
12.07 | Golfvellir sem eru a.m.k. 18 holur. | X | |
13. Breytingar og viðbætur við aðrar framkvæmdir. | |||
13.01 | Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A þegar breytingin eða viðbótin sjálf fer yfir þau viðmið sem flokkur A setur. | X | |
13.02 | Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A, utan þess sem fellur undir tölul. 13.01, og flokki B sem hafa verið leyfðar, framkvæmdar eða eru í framkvæmd og kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif. | X | |
13.03 | Framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A sem ráðist er í eingöngu eða aðallega til að þróa og prófa nýjar aðferðir eða vörur og eru ekki notaðar lengur en í tvö ár. | X |
2. viðauki.
![](/lagas/hk.jpg)
1. Eðli framkvæmdar.
Athuga þarf eðli framkvæmdar, einkum með tilliti til:
i. stærðar, hönnunar og umfangs framkvæmdarinnar í heild,
ii. samlegðar með öðrum framkvæmdum,
iii. nýtingar náttúruauðlinda, einkum lands, jarðvegs og vatns, og líffræðilegrar fjölbreytni,
iv. úrgangsmyndunar,
v. mengunar og ónæðis,
vi. hættu á stórslysum og/eða náttúruhamförum sem varða framkvæmdina, þ.m.t. af völdum loftslagsbreytinga, samkvæmt vísindalegri þekkingu,
vii. hættu fyrir heilbrigði manna, t.d. vegna vatns- eða loftmengunar.
2. Staðsetning framkvæmdar.
Athuga þarf hversu viðkvæm þau svæði eru sem líklegt er að framkvæmd hafi áhrif á, eilsnkum með tilliti til:
i. landnotkunar sem fyrir er eða er fyrirhuguð samkvæmt skipulagsáætlun,
ii. magns, aðgengileika og gæða náttúruauðlinda, þ.m.t. jarðvegs, lands, vatns og líffræðilegrar fjölbreytni, á svæðinu ofan og neðan jarðar, og getu þeirra til endurnýjunar,
iii. verndarsvæða:
(a) náttúruminja í A-, B- og C-hluta náttúruminjaskrár, svæða sem falla undir ákvæði 61. gr. laga um náttúruvernd og landsvæða í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum nr. 48/2011,
(b) svæða sem njóta verndar samkvæmt sérlögum, svo sem Þingvalla, Mývatns- og Laxársvæða og Breiðafjarðar,
(c) svæða innan 100 m fjarlægðar frá fornleifum sem njóta verndar samkvæmt lögum um menningarminjar,
(d) svæða, sem njóta verndar vegna grunnvatns- og strandmengunar og mengunar í ám og vötnum í samræmi við reglugerð um varnir gegn mengun vatns og reglugerð um neysluvatn,
(e) svæða sem njóta verndar samkvæmt samþykktum alþjóðlegra samninga sem Ísland er bundið af, svo sem Ramsarsamningsins (votlendi) og Bernarsamningsins (verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu), friðaðra og friðlýstra tegunda sem og ábyrgðartegunda; tegundir á válista falla hér undir enda eru válistar m.a. gefnir út til að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Bernarsamningnum,
(f) hverfisverndarsvæða samkvæmt ákvæðum í skipulagsáætlunum, sbr. ákvæði um hverfisverndarsvæði í skipulagsreglugerð,
iv. álagsþols náttúrunnar, einkum með tilliti til:
(a) votlendissvæða, ár- og vatnsbakka og ármynna,
(b) haf- og strandsvæða,
(c) sérstæðra jarðmyndana, svo sem hverasvæða, vatnsfalla, jökulminja, eldstöðva og bergmyndana,
(d) náttúruverndarsvæða, þ.m.t. svæða á náttúruminjaskrá,
(e) landslagsheilda, ósnortinna víðerna, hálendissvæða og jökla,
(f) upprunalegs gróðurlendis, svo sem skóglendis,
(g) fuglabjarga og annars kjörlendis dýra,
(h) svæða sem hafa sögulegt, menningarlegt eða fornleifafræðilegt gildi,
(i) svæða þar sem mengun er yfir viðmiðunargildum í lögum og reglugerðum,
(j) þéttbýlla svæða.
3. Gerð og eiginleikar hugsanlegra áhrifa framkvæmdar.
Áhrif framkvæmdar ber að skoða í ljósi viðmiðana hér á undan, einkum með tilliti til:
i. umfangs umhverfisáhrifa, t.d. með tilliti til stærðar svæðis eða fjölda fólks sem verður líklega fyrir áhrifum,
ii. eðlis, styrks og fjölbreytileika áhrifa,
iii. þess hverjar líkur eru á áhrifum,
iv. væntanlegs upphafs, tímalengdar, tíðni og afturkræfni áhrifa,
v. samlegðaráhrifa með áhrifum annarra framkvæmda,
vi. áhrifa yfir landamæri,
vii. möguleika á að draga úr áhrifum.