Lagasafn. Íslensk lög 29. febrúar 2024. Útgáfa 153c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um launasjóð stórmeistara í skák
1990 nr. 58 16. maí
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1991. Breytt með: L. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
mennta- og barnamálaráðherra eða
mennta- og barnamálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Stofna skal Launasjóð íslenskra stórmeistara í skák. Fjárveiting til sjóðsins skal veitt í fyrsta sinn í fjárlögum fyrir árið 1991 og samsvara árslaunum fimm háskólakennara (lektora).
![](/lagas/hk.jpg)
Tilgangur sjóðsins er að skapa íslenskum stórmeisturum í skák fjárhagslegan grundvöll til að helga sig skáklistinni standi hugur þeirra til þess, sbr. og ákvæði 2. mgr. 3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Þeir, sem njóta launa úr sjóðnum, hafa kennslu- og fræðsluskyldu að gegna við Skákskóla Íslands sem nánar er kveðið á um í reglugerð.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Í fjárlögum ár hvert skal sjóðnum áætluð fjárveiting er jafngildi launum háskólakennara (lektora) til þeirra er njóta skulu launa úr sjóðnum, sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjárhæðin skal endurskoðuð ár hvert við undirbúning fjárlaga með tilliti til breytinga á launum háskólakennara.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjárveiting skv. 1. gr. skal í fyrsta sinn veitt í fjárlögum fyrir árið 1991.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa þeir íslenskir skákmeistarar sem öðlast hafa alþjóðlegan titil stórmeistara og sýna skákstyrk sinn með því að ná stórmeistaraárangri a.m.k. einu sinni á þriggja ára tímabili.
![](/lagas/hk.jpg)
Ef ekki er kona í hópi stórmeistara skal veita laun hverju sinni a.m.k. einni konu er náð hefur afburðaárangri í skák ef slík umsókn um laun liggur fyrir.
![](/lagas/hk.jpg)
Þeir, sem greiðslu hljóta úr sjóðnum, skulu settir eða ráðnir til a.m.k. eins árs í senn eða ráðnir með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Skákmeistarar, sem njóta launa úr sjóði þessum, skulu:
a. sinna skákkennslu við Skákskóla Íslands eða fræðslu á vegum skólans, sbr. lög um Skákskóla Íslands,
b. sinna rannsóknum á sviði skáklistar,
c. tefla fyrir Íslands hönd á skákmótum heima og erlendis.
5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Skákmeistarar, er þiggja laun samkvæmt lögum þessum, teljast opinberir starfsmenn með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir, sbr. lög …
1) um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar með talin réttindi til aðildar að lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, enda uppfylli þeir að öðru leyti ákvæði
3. gr. laga nr. 29/1963,
2) með síðari breytingum.
1)L. 83/1997, 122. gr. 2)Nú l. 1/1997.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn launasjóðsins skal skipuð þremur mönnum sem tilnefndir eru til þriggja ára í senn. [Ráðherra]
1) skipar tvo, og er annar þeirra formaður, en Skáksamband Íslands einn.
1)L. 126/2011, 143. gr.
7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) setur reglugerð
2) um framkvæmd laga þessara þar sem m.a. skal kveðið á um vörslu sjóðsins og úthlutanir úr honum.
1)L. 126/2011, 143. gr. 2)Rg. 600/2011, sbr. 1002/2017.
8. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.