Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum
1995 nr. 53 8. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. mars 1995. Breytt með: L. 84/2005 (tóku gildi 9. júní 2005). L. 115/2005 (tóku gildi 30. des. 2005). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða
umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Markmið laga þessara er að stuðla að framkvæmdum við fráveitur sveitarfélaga með styrkveitingum.
![](/lagas/hk.jpg)
Með fráveitu er í lögum þessum átt við leiðslukerfi og búnað til að meðhöndla skolp sem fullnægir kröfum laga og reglugerða um hreinsun þess áður en því er veitt í viðtaka.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Frumkvæði að gerð áætlana um fráveitur og framkvæmdir í fráveitumálum er í höndum sveitarstjórna og á ábyrgð þeirra.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Framkvæmdir við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna, rotþrær, hreinsi- og dælustöðvar og útrásir, sem unnar verða á tímabilinu 1. maí 1995 til [31. desember 2008],
1) geta notið styrks úr ríkissjóði. Enn fremur er heimilt að styrkja úr ríkissjóði önnur skyld mannvirki, svo og framkvæmdir sem snúa að tvöföldun lagna í safnkerfum eldri fráveitna, enda sé sýnt að slíkar framkvæmdir lækki stofnkostnað við styrkhæfar framkvæmdir. [Heimilt er með sama hætti að veita sveitarfélögum styrki til stofnframkvæmda við fráveitur sem fjármagnaðar eru samkvæmt samningum um einkaframkvæmd, hvort sem er á grundvelli eignarleigu- eða rekstrarleigusamnings, enda falli framkvæmdirnar undir ákvæði 1. málsl. og uppfylli að öðru leyti skilyrði til úthlutunar samkvæmt þessari grein. Ráðherra setur, að fengnum tillögum fráveitunefndar, nánari ákvæði um framkvæmdina í reglugerð. Skuldbindingar sem sveitarfélögin taka á sig vegna rekstrarleigu skulu koma fram í ársreikningum þeirra. [Styrkupphæð vegna slíkra einkaframkvæmda getur aldrei verið hærri en sem nemur virðisaukaskatti vegna framkvæmdanna.]
1)]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
Undirbúningsrannsóknir, hönnun, kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum njóta ekki fjárstuðnings samkvæmt lögum þessum. Sama gildir um endurbætur á eldri kerfum og framkvæmdir sem eru umfram það sem krafist er í lögum og reglugerðum um hreinsun fráveituvatns.
1)L. 115/2005, 1. gr. 2)L. 84/2005, 1. gr.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjárhagslegur stuðningur ríkisins vegna framkvæmda sveitarfélaga við fráveitur skv. 3. gr. getur numið allt að 200 m.kr. á ári eftir því sem nánar er kveðið á um í fjárlögum, þó aldrei hærri upphæð en sem nemur 20% af staðfestum heildarraunkostnaði styrkhæfra framkvæmda næstliðins árs.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að ráðstafa allt að fjórðungi styrkupphæðar á hverju ári í þeim tilgangi að jafna svo sem kostur er kostnað einstakra sveitarfélaga við fráveituframkvæmdir þegar miðað er við heildarkostnað á íbúa. Skal fráveitunefnd skv. 5. gr. gera tillögur um beitingu þessa ákvæðis sem ráðherra staðfestir.
![](/lagas/hk.jpg)
[Heimilt er að ráðstafa allt að 10 millj. kr. ár hvert til rannsókna á viðtökum fráveitu með það að markmiði að þær leiði til lækkunar kostnaðar við fráveituframkvæmdir á síðari stigum.]
1)
1)L. 115/2005, 2. gr.
5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) skipar fráveitunefnd sér til ráðuneytis um fráveitumál sveitarfélaga. Í fráveitunefnd skulu eiga sæti þrír fulltrúar skipaðir til fjögurra ára í senn. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, annar samkvæmt tilnefningu [þess ráðherra er fer með sveitarstjórnarmál]
1) og sá þriðji skal skipaður án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
![](/lagas/hk.jpg)
Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
1)L. 126/2011, 209. gr.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Fráveitunefnd fjallar um styrkumsóknir og framkvæmda- og kostnaðaráætlanir sveitarfélaga vegna framkvæmda í fráveitumálum á yfirstandandi ári og áætlar styrkhæfni hverrar áætlaðrar framkvæmdar.
![](/lagas/hk.jpg)
Í samræmi við mat á styrkumsóknum sveitarfélaga skal fráveitunefnd gera tillögu til [ráðherra]
1) um framlag til fráveitumála sveitarfélaga á fjárlögum næsta árs.
![](/lagas/hk.jpg)
Fráveitunefnd fjallar um upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað við framkvæmdir í fráveitumálum á næstliðnu ári. Nefndin skal meta og staðfesta kostnað við styrkhæfa framkvæmd í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Á grundvelli þeirrar staðfestingar gerir fráveitunefnd tillögur til [ráðherra]
1) um styrkveitingu til hvers sveitarfélags vegna framkvæmda í fráveitumálum.
![](/lagas/hk.jpg)
Fráveitunefnd er heimilt að leita sérfræðilegrar ráðgjafar í störfum sínum.
1)L. 126/2011, 209. gr.
7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Sveitarfélög skulu fyrir 1. maí ár hvert senda fráveitunefnd [ráðuneytisins]
1) umsókn um styrk vegna fráveituframkvæmda á yfirstandandi ári. Með umsókninni fylgi heildaráætlun um fráveituframkvæmdir í sveitarfélaginu sem fyrirhugað er að sækja um styrk fyrir og sérstök áætlun um þann áfanga sem áætlað er að vinna á yfirstandandi ári. Einnig fylgi með umsókninni tæknilegar upplýsingar um framkvæmdina ásamt teikningum og sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Skilyrði fyrir fjárstuðningi er að framkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags.
1)L. 126/2011, 209. gr.
8. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Sveitarfélög, sem fengið hafa úthlutað fjárstuðningi vegna fráveituframkvæmda, skulu fyrir 1. mars ár hvert senda fráveitunefnd [ráðuneytisins]
1) upplýsingar um raunkostnað sveitarfélagsins vegna framkvæmda við fráveitumál á næstliðnu ári í samræmi við áður senda áætlun.
1)L. 126/2011, 209. gr.
9. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Styrkir til sveitarfélaga vegna framkvæmda í fráveitumálum á næstliðnu ári skulu greiddir sveitarfélögunum fyrir 1. maí ár hvert.
10. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) hefur á hendi yfirstjórn fjárhagslegs stuðnings ríkissjóðs við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum og tekur endanlegar ákvarðanir um úthlutun styrkja að fengnum tillögum fráveitunefndar.
1)L. 126/2011, 209. gr.
11. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.