Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um afnám laga nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, með síðari breytingum, og breyting á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum
2009 nr. 12 11. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 25. apríl 2009.
I. kafli.
Afnám laga nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.
1. gr.
Lög nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, sbr.
lög nr. 169/2008 um breytingu á
lögum nr. 141/2003, falla úr gildi.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Þrátt fyrir ákvæði
1. gr. skulu ákvæði laga nr. 141/2003 halda gildi sínu gagnvart hæstaréttardómurum sem skipaðir hafa verið í Hæstarétt fyrir gildistöku laga þessara sem og núverandi forseta Íslands.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur maður öðlast eftirlaunarétt samkvæmt
lögum nr. 141/2003 og heldur hann þá þegar áunnum réttindum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú gegnir sá sem fær greidd eftirlaun samkvæmt
lögum nr. 141/2003, eða samkvæmt eldri lögum er giltu um eftirlaun alþingismanna og ráðherra fyrir 30. desember 2003, starfi á vegum ríkisins, stofnana þess eða félaga í meirihlutaeigu þess, og koma þá launagreiðslur fyrir það starf að fullu til frádráttar eftirlaunum.
![](/lagas/hk.jpg)
Þingfararkaup og biðlaunagreiðslur alþingismanna sem ljúka þingsetu og ráðherra sem láta af störfum í kjölfar kjördags 25. apríl 2009 mynda eftirlaunaréttindi samkvæmt
lögum nr. 141/2003.
II. kafli.
…
5. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 25. apríl 2009.