Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík]1)
2010 nr. 64 22. júní
1)L. 53/2013, 5. gr.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 24. júní 2010. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 53/2013 (tóku gildi 1. sept. 2013 nema 4. gr. sem tók gildi 12. apríl 2013).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
fjármála- og efnahagsráðherra eða
fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Markmið og tilgangur Nýs Landspítala ohf. er að standa að nauðsynlegum undirbúningi útboðs byggingar nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.]
1) Fyrir undirritun samninga að loknu útboði skal leita samþykkis Alþingis með almennum lögum.
![](/lagas/hk.jpg)
…
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði laga um hlutafélög gilda um félagið ef ekki er kveðið á um annað í lögum þessum.
1)L. 53/2013, 1. gr.
2. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
[Um fullnaðarhönnun, byggingu og útboð hins nýja spítala skulu gilda
lög um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Félaginu skal vera heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Tilgangi félagsins skal nánar lýst í samþykktum þess.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn félagsins skal eins og unnt er vinna að verkefnum skv. [1. mgr. 1. gr.]
1) í samráði og samvinnu við helstu hagsmunaaðila verkefnisins.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra er heimilt að ákveða að tilteknir skýrt afmarkaðir, minni byggingarhlutar, eða byggingar, séu boðnir út í formi langtímaleigu.]
1)
1)L. 53/2013, 2. gr.
3. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn félagsins skal skipuð þremur mönnum og jafnmörgum til vara. Þeir skulu kosnir á aðalfundi ár hvert.
![](/lagas/hk.jpg)
Framkvæmdastjóri skal hafa haldgóða menntun eða reynslu af sambærilegum verkefnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri skulu vera lögráða. Þeir mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eða hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um fjármálafyrirtæki, hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga eða gjaldþrotaskipti o.fl.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri skulu hvorki taka þátt í meðferð mála þar sem þeir eiga verulegra hagsmuna að gæta né mála er varða aðila sem eru þeim tengdir persónulega eða fjárhagslega.
4. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Hlutafé félagsins við stofnun þess skal vera 20 milljónir króna og greiðast úr ríkissjóði.
5. gr. …
1)
1)L. 53/2013, 3. gr.
6. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.
[Ákvæði til bráðabirgða.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra er heimilt að heimila Nýjum Landspítala ohf. að fara í forval vegna undirbúnings útboðs fullnaðarhönnunar.]
1)
1)L. 53/2013, 4. gr.