Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um fjármálastöðugleikaráð
2014 nr. 66 28. maí
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. júní 2014. Breytt með: L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 91/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema 133. gr. sem tók gildi 16. júlí 2019).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
fjármála- og efnahagsráðherra eða
fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Markmið og skilgreiningar.
1. gr.
Markmið.
![](/lagas/hk.jpg)
[Markmið laga þessara er að tryggja reglulegt samráð og upplýsingaskipti milli ráðherra og Seðlabanka Íslands í því skyni að efla og varðveita fjármálastöðugleika í almannaþágu, sporna við uppsöfnun kerfisáhættu og stuðla að samhæfðum viðbrögðum við sérstakar aðstæður. Í því skyni er fjármálastöðugleikaráði falið skilgreint hlutverk samkvæmt lögum þessum.]
1)
1)L. 91/2019, 23. gr.
2. gr.
Orðskýringar.
![](/lagas/hk.jpg)
Í lögum þessum merkir:
1. …
1)
2. …
1)
3.
Fjármálakerfi: Allir lögaðilar sem stunda fjármálastarfsemi í skilningi laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, þ.m.t. opinberir lánasjóðir og lífeyrissjóðir, svo og fjármálamarkaðir, [kerfislega þýðingarmikil greiðslu- og uppgjörskerfi og Seðlabanki Íslands].
1)
4. …
1)
5. …
1)
6.
Fjármálastöðugleiki: Það ástand þegar ekki er rof eða veruleg truflun á starfsemi fjármálakerfisins og það býr yfir nægum viðnámsþrótti til að þola áföll og ójafnvægi án þess að veruleg neikvæð áhrif verði í miðlun fjármagns, miðlun greiðslna og dreifingu áhættu.
7. …
1)
8.
Kerfisáhætta: Þegar samspil fjármálakerfis og þjóðarbúskapar felur í sér hagsveiflumögnun, fjármálafyrirtæki verða viðkvæm fyrir aðgerðum annarra aðila og hætta er á atburðarás sem getur ógnað fjármálastöðugleika með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á þjóðarbúskapinn.
9. …
1)
1)L. 91/2019, 24. gr.
II. kafli.
Fjármálastöðugleikaráð.
3. gr.
Hlutverk og skipan.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika.
![](/lagas/hk.jpg)
[Í fjármálastöðugleikaráði sitja ráðherra, og er hann formaður ráðsins, og seðlabankastjóri. Formaður kallar ráðið saman til fundar þrisvar sinnum á ári en oftar telji annar ráðsmanna þörf á.]
1) Fjármálastöðugleikaráð setur sér starfsreglur og heldur gerðabók á fundum sínum.
![](/lagas/hk.jpg)
[Seðlabanki Íslands veitir ráðinu þær upplýsingar sem ráðið óskar eftir til að sinna hlutverki sínu og ber sjálfur þann kostnað sem af hlýst.]
1) Umsýsla vegna fjármálastöðugleikaráðs og undirbúningur funda þess er á hendi ráðuneytisins.
1)L. 91/2019, 25. gr.
4. gr.
Almenn verkefni.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálastöðugleikaráð er vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar vegna fjármálastöðugleika og samhæfir viðbúnað opinberra aðila [þegar fjármálastöðugleika er ógnað].
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Helstu verkefni fjármálastöðugleikaráðs eru eftirfarandi:
a. að móta opinbera stefnu um fjármálastöðugleika,
b. að [vakta]
1) efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að ógna fjármálastöðugleika,
c. [að meta árangur af þjóðhagsvarúðartækjum],
1)
d. …
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálastöðugleikaráð skal einkum byggja á tillögum eða greiningu [Seðlabanka Íslands]
1) við vinnslu verkefna skv. 2. mgr.
1)L. 91/2019, 26. gr.
5. gr. …
1)
1)L. 91/2019, 27. gr.
6. gr.
Sérstakar aðstæður.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálastöðugleikaráð fundar sérstaklega þegar fjármálastöðugleika er ógnað eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum eða tjóni á fjármálamarkaði. Seðlabanki Íslands skal upplýsa ráðherra, án tafar, telji bankinn að aðstæður skv. 1. málsl. hafi skapast.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðið leggur mat á til hvaða nauðsynlegu aðgerða eða ráðstafana þurfi að grípa …
1) og samræmir aðkomu stjórnvalda.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðið skal upplýsa efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um helstu aðgerðir og ráðstafanir skv. 2. mgr.]
1)
1)L. 91/2019, 28. gr.
III. kafli.
…1)
1)L. 91/2019, 29. gr.
IV. kafli.
Ýmis ákvæði.
9. gr.
Gagnaöflun. Þagnarskylda.
![](/lagas/hk.jpg)
[Seðlabanki Íslands afhendir fjármálastöðugleikaráði upplýsingar og gögn sem hann býr yfir og ráðið telur nauðsynleg vegna hlutverks síns.
![](/lagas/hk.jpg)
Upplýsingar sem veittar eru ráðinu lúta þagnarskyldu samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
[Þeir sem sitja í fjármálastöðugleikaráði …
1) eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.]
2)
1)L. 91/2019, 30. gr. 2)L. 71/2019, 5. gr.
10. gr.
Gagnsæi.
![](/lagas/hk.jpg)
[Fjármálastöðugleikaráð skal gera fundargerðir sínar opinberar innan eins mánaðar frá því að fundur er haldinn, nema ætla megi að opinber birting geti haft neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Fjármálastöðugleikaráð skal árlega, og oftar ef þörf er á, gera Alþingi grein fyrir meginþáttum í störfum sínum. Birta skal opinberlega starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs …
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Formaður fjármálastöðugleikaráðs skal halda ríkisstjórninni upplýstri um störf ráðsins og viðbúnað stjórnvalda og viðbragðsáætlanir við sérstakar aðstæður. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi, sem ekki eru jafnframt ráðherrar, skulu upplýstir með sama hætti. Ef formaður fjármálastöðugleikaráðs …
1) krefst þess að trúnaður ríki um veittar upplýsingar skal gæta fyllstu þagmælsku um þær.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði upplýsingalaga og stjórnsýslulaga um aðgang að gögnum gilda ekki um fundargerðir og þau gögn sem eru unnin fyrir fjármálastöðugleikaráð …
1) eða eru þar til meðferðar.
1)L. 91/2019, 31. gr.
11. gr.
Hæfisskilyrði.
![](/lagas/hk.jpg)
Þeim sem sitja í fjármálastöðugleikaráði …
1) er óheimilt að sinna störfum sem geta verið til þess fallin að draga megi óhlutdrægni þeirra í efa.
![](/lagas/hk.jpg)
Þeir sem sitja í fjármálastöðugleikaráði …,
1) sem og allir þeir sem sitja fundi ráðsins …
1) eða starfa á [þess]
1) vegum, skulu hver fyrir sig og af sjálfsdáðum gæta að ábyrgð sinni varðandi meðferð innherjaupplýsinga og stöðu innherja samkvæmt ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti.
1)L. 91/2019, 32. gr.
12. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast þegar gildi.