Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs
2019 nr. 151 23. desember
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. desember 2019.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
fjármála- og efnahagsráðherra eða
fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
Markmið.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra fer með yfirstjórn ÍL-sjóðs og hefur yfirumsjón með úrvinnslu og uppgjöri eigna og skulda sem verða eftir í ÍL-sjóði við uppskiptingu Íbúðalánasjóðs.
![](/lagas/hk.jpg)
Markmið uppgjörs og úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs er að lágmarka áhættu og kostnað ríkissjóðs vegna uppsafnaðs fjárhagsvanda Íbúðalánasjóðs. Kveðið skal á um áhættustefnu sjóðsins til að stuðla að þessu markmiði í reglugerð
1) sem ráðherra setur, sbr. 6. gr.
1)Rg. 759/2022.
2. gr.
Verkefnisstjórn.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal skipa þriggja manna verkefnisstjórn til ráðgjafar um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs. Einnig er heimilt að fela verkefnisstjórn afmörkuð verkefni sem varða úrvinnslu eigna og skulda.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnarmenn í verkefnisstjórn skv. 1. mgr. skulu skipaðir til þriggja ára í senn að hámarki. Þeir skulu uppfylla hæfisskilyrði stjórnarmanna lífeyrissjóða, sbr.
31. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, eftir því sem við getur átt. Þá skal a.m.k. einn stjórnarmanna hafa sérþekkingu á ríkisfjármálum.
3. gr.
Úrvinnsla eigna og skulda.
![](/lagas/hk.jpg)
ÍL-sjóður sér um umsýslu og úrvinnslu eigna og skulda sjóðsins. Heimilt er að ráðstafa lausafé og öðrum eignum sjóðsins í samræmi við markmið laga þessara.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að fela öðrum umsýslu, varðveislu og ávöxtun afmarkaðra hluta eigna sjóðsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Leita skal heimilda í fjárlögum vegna úrvinnslu eigna og skulda sem kallar á beina aðkomu ríkissjóðs.
![](/lagas/hk.jpg)
ÍL-sjóður skal tryggja lántökum nauðsynlega þjónustu og hefur hann heimildir til afskrifta, sbr.
47. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, og til beitingar greiðsluerfiðleikaúrræða, sbr.
48. gr. sömu laga, eftir því sem við á. Heimilt er að kæra ákvarðanir ÍL-sjóðs sem teknar eru samkvæmt lögum um húsnæðismál til úrskurðarnefndar velferðarmála.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal árlega gefa Alþingi skýrslu um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs og stöðu hans. Í skýrslunni skal m.a. fjallað um áhættu- og eignastýringarstefnu sjóðsins og hvernig til hafi tekist um ávöxtun eigna hans. Skýrsluna skal ræða í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður.
4. gr.
Þagnarskylda og samþykki til miðlunar trúnaðarupplýsinga.
![](/lagas/hk.jpg)
Hverjir þeir sem taka að sér verk samkvæmt lögum þessum eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.
![](/lagas/hk.jpg)
Sá sem veitir viðtöku upplýsingum í tengslum við verk sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að miðla til utanaðkomandi aðila þeim upplýsingum um lántakanda sem um getur í 2. mgr. að fengnu skriflegu samþykki þess lántakanda er í hlut á. Í samþykki skal koma fram til hvaða upplýsinga það tekur, til hvaða aðila heimilt er að miðla upplýsingum á grundvelli þess og í hvaða tilgangi upplýsingunum er miðlað.
5. gr.
Gjaldtaka.
![](/lagas/hk.jpg)
ÍL-sjóði er heimilt að innheimta gjöld fyrir veitta þjónustu samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur. Gjaldtaka skal aldrei vera hærri en sem nemur kostnaði við að veita þjónustuna.
6. gr.
Reglugerð.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal setja reglugerð
1) þar sem m.a. er kveðið á um áhættuvilja og áhættustýringu ÍL-sjóðs, hvernig eignastýringu sjóðsins og eftirliti skuli háttað og um hlutverk verkefnisstjórnar. Í reglugerð skal jafnframt kveðið á um hvernig opinberri upplýsingagjöf til verðbréfamarkaðar skuli háttað og um meðferð trúnaðarupplýsinga og viðskipti innherja.
1)Rg. 759/2022.
7. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 31. desember 2019.
Ákvæði til bráðabirgða.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að bjóða þeim starfsmönnum Íbúðalánasjóðs sem sinnt hafa verkefnum vegna ÍLS-sjóðs starf í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ákvæði
7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra skal skipa verkefnisstjórn í fyrsta sinn fyrir 1. apríl 2020.
![](/lagas/hk.jpg)
Skýrsla ráðherra til Alþingis fyrir árið 2021, sbr. 5. mgr. 3. gr., skal innihalda umfjöllun um þá vinnu sem farið hefur fram um endurskoðun laga þessara.