Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um skipagjald
2021 nr. 3 8. febrúar
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 2021.
1. gr.
Fjárhæð og álagning.
![](/lagas/hk.jpg)
Eigandi skips skal greiða árlega í ríkissjóð skipagjald af hverju skipi sem skráð er á aðalskipaskrá eins og hér segir:
Skráningarlengd skips |
Árlegt gjald (í kr.) |
< 8 metrar |
10.940 |
8–15 metrar |
19.600 |
15–24 metrar |
43.750 |
24–45 metrar |
86.800 |
45–60 metrar |
143.300 |
≥ 60 metrar |
189.700 |
![](/lagas/hk.jpg)
Samgöngustofa fer með álagningu skipagjalds.
![](/lagas/hk.jpg)
Gjald skal miðað við skráningu 1. janúar ár hvert og er gjalddagi 1. apríl og eindagi 15. maí ár hvert. Við eigendaskipti ber fyrri eigandi ábyrgð á gjaldinu þar til umskráning hefur farið fram.
![](/lagas/hk.jpg)
Við afskráningu skips skal endurgreiða eða fella niður skipagjald í hlutfalli við þann tíma sem eftir er af yfirstandandi gjaldtímabili.
2. gr.
Lögveð.
![](/lagas/hk.jpg)
Gjöldum samkvæmt lögum þessum fylgir lögveð í skipi í tvö ár frá því er gjald var kræft.
3. gr.
Umsjón innheimtu.
![](/lagas/hk.jpg)
Innheimtumenn ríkissjóðs annast innheimtu skipagjalds og skulu þeir skila því í ríkissjóð. Heimilt er að senda eiganda skips tilkynningu um álagningu skipagjalds rafrænt.
4. gr.
Kæruheimild.
![](/lagas/hk.jpg)
Greiðanda skipagjalds er heimilt að skjóta álagningu skipagjalds til yfirskattanefndar samkvæmt ákvæðum laga um yfirskattanefnd.
5. gr.
Dráttarvextir.
![](/lagas/hk.jpg)
Hafi skipagjald ekki verið greitt á eindaga skal greiða dráttarvexti, sbr. 1. mgr.
6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, af þeirri fjárhæð sem gjaldfallin er frá gjalddaga.
6. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2021.