142. löggjafarþing — þingsetningarfundur

ávarp aldursforseta.

[14:25]
Horfa

Aldursforseti (Einar K. Guðfinnsson):

Ég býð alla hv. alþingismenn sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 27. apríl 2013 velkomna til starfa á Alþingi. Sérstaklega býð ég velkomna nýkjörna alþingismenn sem ekki áttu hér fast sæti þegar Alþingi lauk störfum í aprílmánuði sl. Ég vil láta í ljós þá von að störf þessa nýkjörna þings verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.