144. löggjafarþing — þingsetningarfundur
þingsetning.
Forseti Íslands. Háttvirtir alþingismenn. Megi störf Alþingis sem nú er að hefjast verða landi og þjóð til heilla. Ég býð alla hv. þingmenn velkomna til starfa á nýju löggjafarþingi. Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.