143. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2013.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill tilkynna að stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 62. gr. þingskapa, verður flutt annað kvöld, miðvikudaginn 2. október, og hefst umræðan kl. 19.40. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða þrjár, 12 mínútur, 6 mínútur og 5 mínútur en forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu. Umræðunni lýkur upp úr kl. 22.