146. löggjafarþing — 1. fundur, 6. des. 2016.
drengskaparheit unnin.
Samkvæmt 2. gr. þingskapa ber þeim alþingismönnum sem nú taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni. Af hinum 32 nýkjörnu alþingismönnum hafa tíu áður tekið sæti á Alþingi, einn þingmaður er fjarverandi og undirritar heit sitt síðar, svo að 21 nýr þingmaður mun undirrita drengskaparheit á þessum fundi.
[21 þingmaður undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]