149. löggjafarþing — 1. fundur,  11. sept. 2018.

mannabreytingar í nefndum.

[16:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta hefur borist tilkynning, dagsett 27. ágúst 2018, um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mun taka sæti Smára McCarthys í atvinnuveganefnd. Smári McCarthy mun taka sæti Helga Hrafns Gunnarssonar í efnahags- og viðskiptanefnd og Helgi Hrafn Gunnarsson mun taka sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.