tilkynning um embættismenn fastanefnda.
Forseti vill tilkynna eftirfarandi kosningar um formennsku og varaformennsku í fastanefndum:
Á fundi allsherjar- og menntamálanefndar þann 10. september sl. var Guðmundur Steingrímsson kosinn 1. varaformaður nefndarinnar.
Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þann 15. september sl. var Birgir Ármannsson kosinn 1. varaformaður nefndarinnar.
Á fundi utanríkismálanefndar þann 17. september sl. var Hanna Birna Kristjánsdóttir kosin formaður nefndarinnar.
Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar þann 21. september sl. var Brynjar Níelsson kosinn 1. varaformaður nefndarinnar.