155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

Störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Á þessu kjörtímabili hafa verið stigin stór skref sem styrkja sérstaklega heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Má þar nefna fjarheilbrigðisþjónustu og undirbúning fyrir ívilnun í Menntasjóðnum fyrir svæði þar sem vantar sérfræðinga, eins og í heilbrigðiskerfinu. Þegar það verður tilbúið og virkjað getur það munað mjög miklu um allt land og gæti hjálpað okkur við að fá sérfræðinga til að flytja út á land. Staðan er sú að um allt land þarf að fara í endurbætur og framkvæmdir á húsnæði hjá heilbrigðisstofnunum og mögulega þarf að endurskoða þá þjónustu sem er veitt á heilbrigðisstofnunum á dreifbýlli svæðum.

Við viljum búa heilbrigðisstarfsmönnum okkar gott vinnuumhverfi. Við sjáum dæmi um að það eru sjúkrabílaskýli þar sem hefur þurft að brjóta úr veggjum til að koma nútímasjúkrabílum fyrir. Á sumum landsvæðum er heimahjúkrun enn ekki til staðar og stundum þurfa foreldrar að ferðast langar vegalengdir til að fara í mæðravernd og ungbarnavernd. Einnig vitum við að hægt væri að nýta húsnæði heilbrigðisstofnana mun betur sums staðar og jafnvel samnýta með öðrum opinberum stofnunum. Við sem búum úti á landi finnum vel fyrir því að mannauðurinn í heilbrigðiskerfinu, sem er til staðar, er mjög góður. En við þurfum að sjá til þess að vinnuumhverfi þeirra standist nútímakröfur og því er úrbóta þörf á mörgum heilsugæslum.

Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hafa tekið vel í ábendingar mínar varðandi úrbætur sem þarf að fara í á heilsugæslum í kjördæminu. Heilbrigðismál skipta okkur öll miklu máli og því þurfum við stöðugt að hafa augun á boltanum til að tryggja góða þjónustu, gott vinnuumhverfi og aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu um allt land.