Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1217, um styrki til félagasamtaka, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1256, um stöðugildi hjá ríkislögreglustjóra, frá Ingibjörgu Isaksen. Að lokum hefur borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1323, um rafkerfi á Suðurnesjum, frá Birgi Þórarinssyni.